Morgunblaðið - 07.09.2011, Side 11
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Joanne „Ég efast ekki um að ég fæ meiri athygli heima á Írlandi með því að
gera disk hér á Íslandi. Ég væri týnd eins og nál í heystakki í útlöndum.“
langur og stórkostlegur,“ segir Jo-
anne sem býr núna í Reykjavík.
Sögur í söngvunum
Diskurinn Phases var hljóðrit-
aður í Stúdíó Error, sama stúdíói
og lagið hennar „Rise“ var einmitt
tekið upp fyrir diskinn Taka 1,
með Trubatrixunum sem saman-
stóð af 16 íslenskum tónlistar-
konum auk Joanne. „Í þeirri vinnu
var með okkur upptökumaður sem
mér fannst gott að vinna með og
þá fékk ég hugmyndina að því að
fá hann til að hljóðrita minn eigin
disk. Góður vinur minn sagði eitt
sinn við mig þegar ég vissi ekkert
hvort ég ætti að gera eitthvað
með þessi lög sem ég var að
semja: Við búum öll yfir hæfi-
leikum og það er mjög eigingjarnt
að leyfa ekki öðrum að njóta
þeirra. Ég ákvað því að koma
þessu frá mér og mig langar til að
deila þeim sögum sem ég hef að
segja í söngvunum mínum. Ég er
bara sögumaður sem opnar fyrir
ímyndunarafl hlustenda. Ég vil að
hver og einn túlki eins og honum
hentar þær sögur sem ég segi í
söngvum mínum.“
Hljómsveitin varð
barnshafandi
Joanne og bandið hennar hef-
ur komið þónokkuð fram, þau hafa
m.a. spilað á Rósenberg sem og á
Höfðatorgi á Menningarnótt. „En
núna er hvíld hjá okkur í því að
koma fram, því bandið varð ræki-
lega barnshafandi,“ segir hún og
hlær. „Það er par innan bandsins
og þau eru búin að eignast stúlku.
Íslenska kærastan hans Joachims
sem leikur á afrísku trommurnar,
hún varð líka ófrísk. Og sama er
að segja um hana Ingu Dóru sem
sá um grafíkina, hún er búin að
eignast lítinn dreng. Reyndar
virðast allir í kringum mig verða
barnshafandi, vinnufélagar og aðr-
ir. Það er mikil frjósemi hvar sem
ég kem,“ segir hún og hlær.
Phases Ber í sér bæði það Ísland
og Írland sem í Joanne býr.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011
„Það eru ótrúlega margir söngvarar í
uppáhaldi og erfitt að velja einhvern
einn en í dag er það Janis Joplin.
Hún hefur fylgt mér frá því fyrir
fermingu en þá vorum við vinkon-
urnar á hippatímabili og þótti hún
ægilega töff. Við höfðum slysast til
að horfa á kvikmyndina Hárið og
komumst þá að því að Janis Joplin
hefði verið partur af hippamenning-
unni sem okkur fannst svo æðisleg.
Það var ástæðan fyrir því að við byrj-
uðum að hlusta á tónlistina hennar.
Við vinkonurnar gengum í útvíðum
buxum og skræpóttum mussum og
höfðum hárið sítt fyrir augunum. Svo
var Hárið sett upp hér heima með
Hilmi Snæ og Ingvari Sigurðssyni og
það skemmdi alls ekki fyrir,“ segir
Hildur Halldórsdóttir tónmennta-
kennari og söngkona.
Af uppáhaldslögum Joplin nefnir
Hildur „Little Girl Blue“ og segist
hafa tekið ástfóstri við það lag. Hild-
ur er ein söngkvenna hljómsveit-
arinnar Brother Grass en hefur hing-
að til ekki sungið lög Janis Joplin
með þeim.
„Þetta er kannski bara góð hug-
mynd að næsta lagi og nú get ég
komið Janis inn. Við flytjum blueg-
rass tónlist en förum stundum aðeins
út fyrir línuna og gerum þá lögin að
okkar,“ segir Hildur. Næstsíðustu
tónleikar Brother Grass verða haldn-
ir í kvöld á Rósenberg og síðustu tón-
leikarnir, eða bless í bili tónleikar,
um miðjan mánuðinn. „Við viljum
ekki kalla þetta síðustu tónleikana
því annars förum við að gráta,“ segir
Hildur í léttum dúr en hún segir frá-
bært hljómleikasumar vera að baki
og styttist nú í fyrstu plötu sveitar-
innar.
Uppáhaldssöngvari Hildar Halldórsdóttur
Morgunblaðið/Hjalti
Hljómsveitin Hildur Halldórsdóttir söngkona og tónmenntakennari, fyrir miðju, með meðlimum Brother Grass.
Hippinn Janis Joplin
Söngkona Janis Joplin varð heims-
fræg en lifði því miður ekki lengi.
Á Degi læsis, sem haldinn verður á
morgun, 8. september, er fólk um allt
land hvatt til að gera sér dagamun í
formi lesturs. Á Akureyri verður
bókakössum dreift á fjölmenna staði
s.s. á kaffihús, í verslanir, banka,
heilsugæslu og fleiri staði. Í köss-
unum eru ókeypis bækur sem fólk á
öllum aldri getur tekið heim með sér.
En að lestri loknum er bókinni komið
fyrir í sambærilegum bókakassa.
Hver bókarkápa verður merkt með
límmiða þar sem stendur „Bók í
mannhafið“. Bókakassarnir munu
standa út september mánuð og leng-
ur ef áhugi er fyrir hendi.
Þá getur almenningur einnig sett
sínar eigin bækur í mannhafið með
því að setja límmiða framan á bókina
þar sem stendur „Bók í mannhafið“
og skilja hana eftir á fjölförnum stað.
Að verkefninu standa Miðstöð
skólaþróunar við HA, Bókasafn HA,
Amtsbókasafnið og Akureyrarstofa.
Í ár taka Íslendingar í þriðja skiptið
þátt í alþjóðlegum degi læsis sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa staðið
fyrir frá árinu 1965.
Dagur læsis
Bókakössum dreift á kaffihús
og verslanir á Akureyri
Lestur Það er tilvalið að láta skemmtilegar bækur ganga manna á milli.
Patti Húsgögn
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18
Basel
Þú velur
og drauma sófinn þinn er klár
GERÐ (fleiri en 90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (fleiri en 2000 tegundir)
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Landsins mesta úrval af sófasettum
Íslensk
framleiðsla
Torino