Morgunblaðið - 07.09.2011, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011
Morgunblaðið/RAX
Telur nefndin ekki ástæðu til að
gera veigamiklar breytingar á mark-
miðsákvæði náttúruverndarlaga en
leggur til að skýrar verði kveðið á um
almannarétt í ákvæðinu. Nauðsyn-
legt sé að skýra betur gildissvið lag-
anna að því er varðar vernd lífríkis
hafsins og styrkja þann verndarþátt.
Ekki eru lagðar til breytingar á af-
mörkun gildissviðs náttúruverndar-
laga gagnvart lögum um vernd, frið-
un og veiðar á villtum fuglum og
villtum spendýrum eða lax- og sil-
ungsveiðilögum. Nefndin telur hins
vegar fulla ástæðu til að huga að því
að fella lög um landgræðslu og lög
um skógrækt inn í náttúruverndar-
lög.
Sem fyrr greinir leggur nefndin til
í hvítbókinni að flokkun á friðlýsingu
svæða verði endurskoðuð og hún
gerð markvissari. Jafnframt er lögð
áhersla á að ákvörðun um friðlýsingu
þurfi að taka á forsendum náttúrunn-
ar sjálfrar. Við undirbúning slíkrar
ákvörðunar þurfi að vega saman
hagsmuni almennings eða þjóðarinn-
ar í heild af vernd náttúrunnar ann-
ars vegar og hins vegar hagsmuni
landeigenda og annarra þeirra sem
ákvörðunin snertir beint. Nauðsyn-
legt sé að virða stjórnarskrárvarin
eignarréttindi landeigenda og þann
ráðstöfunarrétt sem í þeim felst.
Nefndin skoðaði ýmsar hliðar al-
mannaréttar í náttúruverndarlögum
en telur ekki nauðsynlegt að ráðast í
verulegar breytingar á þeim kafla
laganna. Hins vegar sé full
ástæða til að endurskoða heimild
landeigenda til að banna för og
dvöl gangandi fólks um afgirt
óræktuð lönd sín. Nauðsyn-
legt sé að setja ramma um
þessa heimild, þannig að í
lögunum verði tiltekið
hvaða aðstæður réttlæti
slíkt bann.
Svandís Svavarsdóttir umhverf-
isráðherra kynnti hvítbókina á
fundi ríkisstjórnar í gær. Hvítbókin
verður síðan til umfjöllunar á Um-
hverfisþingi sem umhverfisráðu-
neytið efnir til 14. október nk. Í
framhaldinu hefst opið umsagn-
arferli um bókina sem lýkur 1. des-
ember. Að því loknu fer í gang
vinna við gerð frumvarps um
breytingar á náttúruverndarlögum
þar sem umræðan á umhverf-
isþingi og framkomnar at-
hugasemdir verða hafðar til hlið-
sjónar. Reiknar ráðuneytið með að
nýtt frumvarp komi til kasta Al-
þingis næsta vor.
„Það sem helst stendur upp úr
eru vinnubrögðin sem þarna er
beitt. Sú mikla vinna sem lögð
hefur verið í að gera heildar-
úttekt á lagaumhverfi nátt-
úruverndar hér á landi, með
hliðsjón af þeim lögum og
reglum sem tíðkast er-
lendis, leggur grunninn
að vandaðri lagasmíði
enda verulega mik-
ilvægt að samhæfa
löggjöfina, horfa
heildstætt yfir lagaumhverfið og
nálgast allan málaflokkinn með
gagnrýnum augum,“ segir Svandís
við Morgunblaðið um hvítbókina.
Á næstu vikum og mánuðum
verði kallað eftir áliti almennings
á þessum tillögum, m.a. á um-
hverfisþingi, svo hægt verði að
taka tillit til sem flestra sjón-
armiða.
„Að öllu þessu loknu ættum við
að geta endurskoðað nátt-
úruverndarlög, þannig að nátt-
úruvernd verði hafin til vegs og
virðingar og staða hennar styrkt
til muna,“ segir Svandís.
Hvítbók um heildarendurskoðun
náttúruverndarlaga hefur ekki áð-
ur verið unnin hér á landi en er í
samræmi við vinnubrögð sem
tíðkast á Norðurlöndum. Umhverf-
isráðherra skipaði nefndina í nóv-
ember árið 2009. Vinna nefnd-
arinnar hefur verið tvíþætt,
annars vegar tillögur að frumvarpi
til breytinga á lögum um nátt-
úruvernd, sem nefndin skilaði af
sér í desember 2010, og hins veg-
ar gerð hvítbókarinnar, sem var
meginstarf nefndarinnar.
Grunnur að vandaðri lagasmíð
SVANDÍS KYNNTI HVÍTBÓKINA Í RÍKISSTJÓRN Í GÆR
Svandís
Svavarsdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg