Morgunblaðið - 07.09.2011, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011
Matt Haig mun lesa upp í Iðnó
fimmtudagskvöldið 8. sept-
ember og ræða við Ara Eldjárn
í Norræna húsinu laugardag-
inn 10. september.
Matt Haig hefur alls gefið út
6 bækur og kemur ein þeirra,
The Radleys, út í íslenskri þýð-
ingu í haust hjá Bjarti. Verið er
að framleiða bíómynd sem
byggist á bókinni. The Radleys
fjallar um fjölskyldu sem er
eins venjuleg og hugsast getur. Undir yfirborðinu
leynist þó blóðþorsti sem foreldrarnir reyna að
forða börnum sínum frá. Þýðandi bókarinnar er
Bjarni Jónsson og mun hún koma út um næstu
mánaðamót.
Bókmenntir
Radley-fjölskyldan
gefin út af Bjarti
Radley-fjölskyldan
Kristín Marja Baldursdóttir
mun lesa upp í Norræna hús-
inu laugardaginn 10. sept-
ember kl. 15.30. Bækur hennar
hafa verið þýddar á 5 tungu-
mál. Margar bóka hennar hafa
komið út í Þýskalandi og í ár
kom út nýjasta afurðin, Ster-
nen eis, sem er þýðing á nýj-
ustu bók Kristínar, Karlsvagn-
inum.
Bókin Karítas án titils hlaut
árið 2006 tilnefningu til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs.
Hópur danskra ferðamanna hefur komið til Ís-
lands til að skoða söguslóðir Karítasar, í Öræfum
og á Borgarfirði eystri.
Bókmenntir
Kristín Marja les
upp úr Karítas
Kristín Marja
Kristof Magnusson hefur þýtt
fjölda íslenskra bóka yfir á
þýsku. Nýjasta skáldsagan,
Das was ich nicht, kom út í
Þýskalandi árið 2010 og er
væntanleg í íslenskri þýðingu
hjá Forlaginu að ári. Vinnutitill
bókarinnar er Það var ekki ég
og Bjarni Jónsson þýðir. Þýsk
heimasíða höfundarins er:
www.kristofmagnusson.de Þar
má til dæmis sjá myndbönd þar sem höfundur les
úr nýjustu bók sinni.
Kristof Magnusson mun lesa upp í Iðnó mið-
vikudagskvöldið 7. september og ræða við Ólaf
Kristjánsson í Norræna húsinu sunnudaginn 11.
september.
Bókmenntir
Þýðandi er höfund-
ur hjá Forlaginu
Kristof Magnusson
Í dag og á morgun, miðvikudaginn og
fimmtudaginn, 7. og 8. september mun
Sinfóníuhljómsveit Íslands halda tónleika
undir stjórn Vladimir Ashkenazy og ein-
leikari verður Víkingur Heiðar Ólafsson.
Eru þetta upphafstónleikar sinfón-
íuhljómsveitarinnar fyrir þetta starfsár.
Á efnisskránni verða Sergei Rakhman-
inoff: Píanókonsert númer 3 og Dmítríj
Sjostakovitsj: Sinfónía númer 5. Tónleik-
arnir eru í tónleikaröð Sambands evr-
ópskra útvarpsstöðva, og verður þeim
meðal annars útvarpað í Ástralíu, Dan-
mörku, Eistlandi, Portúgal, Póllandi,
Rúmeníu, á Spáni og í Ungverjalandi.
Ashkenazy er á heimavelli þegar litið
er til efnisskrárinnar. Hann hefur hljóð-
ritað píanókonserta Rakhmaninoffs í tví-
gang sem einleikari, undir stjórn André
Previn og Bernards Haitink, og útgáfurn-
ar þykja enn meðal þeirra bestu á mark-
aðnum. Heildarflutningur Ashkenazys á
sinfóníum Sjostakovitsj kom út hjá Decca á
níunda áratugnum og var nýverið endur-
útgefinn í tilefni sjötugsafmælis hans. Í til-
kynningu frá Sinfóníuhljómsveit Íslands
segir einnig; „Ekki er síður tilhlökkunar-
efni að Víkingur Heiðar og Ashkenazy
leiði nú saman hesta sína í annað sinn í
hinum glæsilega þriðja píanókonserti Rak-
hmaninoffs. Fáir píanókonsertar gera við-
líka kröfur til einleikarans og sá þriðji,
sem er bæði óvenjulangur og sérlega flók-
inn enda sérsniðinn að risavöxnum hönd-
um tónskáldsins. Með kvikmyndinni Shine
komst konsertinn í hóp vinsælustu klass-
íkera.“
Sinfónía númer fimm eftir Sjostakovitsj
er einnig vel þekkt en hann samdi hana í
miklum ótta útaf stjórn kommúnista í landi
sínu og þykir verkið magnað.
borkur@mbl.is
Sérsniðinn að risavöxnum höndum
Sinfóníuhljómsveitin með upphafstónleika í
kvöld og á morgun undir stjórn Ashkenazy
Morgunblaðið/Golli
Upphafstónleikar Hér er Ashkenazy með Víkingi Heiðari á æfingu í Hörpunni í gær.
Denise Epstein, dóttir rithöfund-
arins Iréne Némirovsky, mun lesa
upp í Iðnó föstudagskvöldið 9. sept-
ember og ræða við Friðrik Rafns-
son, þýðanda
skáldsögu henn-
ar, í Norræna
húsinu laug-
ardaginn 10.
september. Bókin
Frönsk svíta eftir
Irène Ném-
irovsky kemur út
um þessar mund-
ir hjá Forlaginu.
Fyrir seinni
heimsstyrjöldina
var Némirovsky vinsæll höfundur í
Frakklandi. Hún var dóttir vel
stæðs bankamanns í Úkraínu en í
rússnesku byltingunni þurftu þau að
flýja land og flúðu til Frakklands.
Némirovsky hafði alist upp í alls-
nægtum í Úkraínu og talaði þegar
frönsku áður en fjölskylda hennar
settist að í París. Hún náði sterkum
tökum á frönskunni og var orðin
þekktur franskur höfundur þegar á
þrítugsaldri. En í seinni heimsstyrj-
öldinni voru bæði hún og eiginmað-
urinn send í útrýmingarbúðir gyð-
inga og létu lífið þar en þá var Iréne
aðeins 39 ára gömul. Dætrum þeirra
var þyrmt af þýskum hermanni og
bjargað af nágranna hjónanna.
Dóttir Némirovsky, Denise Ep-
stein, er gestur Bókmenntahátíðar í
ár en hún kynnir verk móður sinnar.
Epstein var ung að árum þegar móð-
ir hennar lést í útrýmingarbúðum
nasista en hún náði að taka með sér
á flótta tösku móður sinnar sem
geymdi óútgefin handrit.
Denise Epstein mun opna ljós-
myndasýningu um ævi og ritverk
móður sinnar næstkomandi mið-
vikudag, hinn 7. september kl. 17, í
Borgarbókasafninu í Reykjavík.
Sýningin ber yfirskriftina „Ég skrifa
á brennheitu hrauni …“ en hún er
skipulögð á vegum Alliance fran-
çaise í Reykjavík og er liður í hátíð-
arhöldum vegna aldarafmælis fé-
lagsins á árinu og stendur til 30.
september, aðgangur er ókeypis.
borkur@mbl.is
Úr klóm
kommún-
ista í klær
nasista
Iréne
Nemirovsky
Sitaru vakti fyrst al-
þjóðlega athygli þeg-
ar stuttmynd hans Waves
hlaut verðlaun ... 32
»
Bókmenntahátíðin í Reykjavík hefst
í dag, miðvikudaginn 7. september,
og stendur fram til sunnudagsins 11.
september. Stella Soffía Jóhann-
esdóttir er framkvæmdastjóri hátíð-
arinnar og aðspurð hvað aðgreini
þessa hátíð frá öðrum segir hún að
það sé svo margt en helst vilji hún
nefna hvað það séu sterkar konur á
þessari hátíð. „Á hátíðinni í ár er
óvenjumikið af öflugum konum,“
segir Stella. „Nóbelsverðlaunahaf-
inn Herta Müller kemur, baráttu-
konan og rithöfundurinn Nawal el
Saadawi og Denise Epstein mætir
og kynnir verk móður sinnar sem
lést í fangabúðum nasista. Annað
sem er sérstakt í ár er nýr dag-
skrárliður um fjarverandi höfund.
Hugmyndin er að hafa þar til um-
fjöllunar höfunda sem annaðhvort
komast ekki vegna þess að þeir búa
við heft ferðafrelsi, pólitískar of-
sóknir eða hafa látið lífið vegna þess.
Í þetta skiptið er það rússneska
blaðakonan Anna Politkovskaja,“
segir Stella.
Politkovskaja var myrt í Moskvu
7. október 2006 en hún hafði fjallað
af mikilli hörku um ástandið í Téts-
níu og ekki síst um spillta stjórn
Pútíns. Aldrei hefur komist upp hver
myrti hana en flestum er ljóst að það
var af pólitískum ástæðum. Fimmtu-
dagskvöldið 8. september klukkan
átta verður lesið uppúr bók hennar
Rússland Pútíns, sem kom út hjá
Urði bókafélagi sumarið 2009. Upp-
lesturinn fer fram í Iðnó en fyrr um
daginn verður rætt um verk Polit-
kovskaju í Norræna húsinu.
„Bókmenntahátíðin í ár er til-
einkuð minningu Thors Vilhjálms-
sonar, eins stofnenda hátíðarinnar,“
segir Stella. „Thor var formaður ís-
lenska PEN-klúbbsins og ötull bar-
áttumaður málfrelsis rithöfunda og
þess vegna er þessi viðburður um
fjarverandi höfund tileinkaður
honum. Hugmyndin er komin
frá Sjón og hann mun sjá
um þennan dagskrárlið.
En það er svo mikið í boði
að menn verða að líta inn,“
segir Stella sem bendir
á heimasíðu hátíð-
arinnar fyrir frekari
upplýsingar,
www.bokmenn-
tahatid.is.
borkur@mbl.is
Öflugir kvenrithöfundar
streyma inn í borgina
Bókmenntahá-
tíðin í Reykjavík
hefst í dag
Morgunblaðið/Kristinn
Hátíð Stella Soffía innan um allan þann texta sem mun flæða um borgina.
Bókmenntahátíðin í Reykjavík
er haldin í tíunda sinn nú í ár en
hún er tileinkuð Thor Vilhjálms-
syni. Það má segja að í ár sé
sérstök veisla af því að Ísland
er heiðursgestur í Frankfurt og
svo fær Reykjavík bók-
menntahátíðarstimpil á sama
tíma. En Reykjavík mun bera
bókmenntatitil UNESCO frá og
með árinu í ár. Borgin stendur
fyrir ýmsum viðburðum vegna
þessa. Ljóst er að Frankfurt-
armessan hefur orðið til þess
að erlendir bókamenn horfa
meira til þessarar bók-
menntahátíðar en vanalega.
Mun fleiri útgefendur munu
mæta á Útgefendaþingið. Þýsku
útgefendurnir eru mjög spennt-
ir fyrir því enda eru að koma út
hátt í 200 íslenskar bækur í
Þýskalandi í ár. Amazon er að
fara að gefa út 10 íslenskar
bækur í Bandaríkj-
unum. Mikil sam-
vinna er í gangi á
milli Bók-
mennta-
hátíðarinnar
og Frankfurt-
armessunnar.
Samvinna á
milli hátíða
Í MINNINGU THORS
Thor Vilhjálmsson