Morgunblaðið - 07.09.2011, Side 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2011
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Rúmenski kvikmyndagerðarmaðurinn Adrian
Sitaru verður kynntur á Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem Upprenn-
andi meistari og stuttmyndir eftir hann sem og
kvikmyndir í fullri lengd sýndar á hátíðinni.
Stuttmyndirnar eru The Cage, Lord og Waves
en kvikmyndirnar Hooked frá árinu 2007 og
From Love with Best Intentions, einnig nefnd
Best Intentions, sem frumsýnd var nú í sumar.
Sitaru hefur notið mikillar velgengni, myndir
hans verið sýndar víða á hátíðum og hlotið fjölda
verðlauna og má þar nefna að sú síðastnefnda
hlaut tvenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni í
Locarno í sumar, silfurhlébarða fyrir bestu leik-
stjórn og besta karlleikara í aðalhlutverki. Sit-
aru verður viðstaddur sýningar á kvikmyndum
sínum og stuttmyndum og mun svara spurn-
ingum áhorfenda að þeim loknum.
Ferskir vindar
Sitaru vakti fyrst alþjóðlega athygli þegar
stuttmynd hans Waves hlaut verðlaun á Loc-
arno-hátíðinni fyrir fjórum árum, var þar valin
besta alþjóðlega stuttmyndin. Sitaru útskrif-
aðist frá kvikmyndaakademíunni í Búkarest árið
2003 og hefur því náð frama í kvikmyndaheim-
inum á tiltölulega skömmum tíma. Sitaru til-
heyrir hópi ungra, rúmenskra kvikmyndagerð-
armanna sem vakið hafa athygli utan
heimalands síns undanfarin tíu ár eða þar um bil
og þykja bera með sér ferska vinda í rúmenskri
kvikmyndagerð, jafnan kenndir við „rúmensku
kvikmyndanýbylgjuna“. Kvikmyndagerð-
armennirnir eiga það sameiginlegt að hafa alist
upp á tímum kommúnismans í Rúmeníu, upp-
lifað fall hans og umskipti í landinu í átt að lýð-
ræði. Sitaru fæddist árið 1971 og var því á 18.
aldursári þegar einræðisherranum Ceausescu
var steypt af stóli. Þekktasta kvikmyndin sem
tilheyrir þessari nýbylgju er eflaust 4 Months, 3
Weeks and 2 Days, kvikmynd Cristian Mungiu
sem hlaut aðalverðlaun Cannes, Gullpálmann,
árið 2007.
„Slice of life“
Blaðamaður ræddi við Sitaru í fyrradag og
spurði hann fyrst út í rúmensku kvikmyndaný-
bylgjuna. „Hún hófst, að mati margra gagnrýn-
enda og að mínu mati einnig, á Stuff and Dough,
fyrstu kvikmynd Cristi Puiu sem heitir Marfa si
Banii á rúmensku og er frá árinu 2001,“ segir
Sitaru. Upp frá því hafi menn orðið varir við
breytingar í rúmenskri kvikmyndagerð, frá-
sagnartækni og stíl. „Þó að við séum ekki að
hittast og ræða dogma eða eitthvað í þá veru er-
um við að einhverju leyti með svipaðan stíl. Til
dæmis eru þessir kvikmyndagerðarmenn ekki
hrifnir af því að nota áhrifatónlist í myndum sín-
um,“ segir Sitaru. Þó sé hver leikstjóri með sína
skoðun á því hvernig best sé að segja sögu. „Það
er erfitt að segja af hverju rúmenska nýbylgjan
hefur náð slíkum vinsældum. Við erum að gera
10-15 myndir á ári, þær voru færri fyrir um sex
árum, aðeins fáeinar á ári.“
Sitaru segir myndirnar raunsæjar, það sem
kallað sé á ensku „slice of life“. Ekkert sé ýkt að
óþörfu og nýjustu kvikmyndirnar þess eðlis að
sögurnar eigi að höfða til allra, ekki bundnar við
rúmenskt samfélag, pólitík eða sögu.
Byggð á reynslu leikstjórans
– Þú ert afar hrifinn af POV-myndatökum,
þ.e. að taka myndirnar frá sjónarhorni persóna
þannig að áhorfandinn sjái hlutina með þeirra
augum.
„Já, það er þó ekki mín uppfinning,“ segir Sit-
aru kíminn. Hann hafi fallið fyrir þeirri töku-
tækni þegar hann gerði kvikmyndina Hooked.
„Ég er kannski aðeins að ýkja en þetta er fram-
tíð kvikmyndagerðar að mínu mati. Það er auð-
veldara og eðlilegra að setja áhorfendur í spor
persónanna með þessum hætti þannig að þeir
séu í miðri atburðarásinni, fylgist ekki með
henni utan frá. En þetta er mjög erfitt tækni-
lega, það er erfitt að líkja eftir augnhreyfingum í
kvikmyndum,“ segir Sitaru. Þessari aðferð sé
beitt í tölvuleikjum í síauknum mæli og í sjón-
varpsþáttum á borð við Big Brother. „Mér
finnst áhugaverðara að sjá hlutina með augum
sögupersónanna.“
Kvikmyndin From Love with Best Intentions
er að miklu leyti byggð á reynslu Sitaru en í
henni segir af 33 ára manni, Alex og móður hans
sem fær heilablóðfall. Hún er lögð inn á spítala í
heimabæ sínum en Alex býr í Búkarest. Hann
heldur til heimabæjarins til að hjúkra móður
sinni en verður afar tortrygginn í garð lækna,
hjúkrunarfólks og nánustu ættingja, fer að
hugsa órökrétt og gruna fólk um græsku, verður
taugaveiklaður og ofsóknaróður. Þó vilja allir
móður hans vel. Sitaru hefur áður sagt í við-
tölum að hann hafi mikinn áhuga á mannlegri
hegðun og þá tilhneigingu okkar mannanna til
sjálfstortímingar og virðist myndin höggva í
þann knérunn. Hann segir móður sína hafa
fengið heilablóðfall fyrir nokkrum árum en þó
hafi allt farið vel. Þetta hafi engu að síður verið
erfið lífsreynsla og hann hafi verið ósáttur við
eigin hegðun á meðan á þessu stóð. Myndin snú-
ist ekki um sjúkrahús eða heilbrigðiskerfið í
Rúmeníu heldur óttann við að missa einhvern
sér nákominn og órökrétt viðbrögð sonarins
gagnvart þeim sem eru að reyna að gera sitt
besta, hafa gott eitt í huga. „Hún er um mann
sem reynir að hafa stjórn á ástandinu en það er
asnalegt að halda að maður geti það,“ segir Sit-
aru.
Gott fyrir myndirnar
Sitaru segist hafa byrjað að gera stuttmyndir
áður en hann komst inn í kvikmyndaskólann í
Búkarest en honum hafði þá verið synjað nokkr-
um sinnum um skólavist. Það hafi því verið gott
fyrir sjálfstraustið að hljóta virt kvikmynda-
verðlaun. „Ég var heppinn,“ segir hann og hlær.
Nú líti hann slík verðlaun hins vegar öðrum aug-
um, þau séu fyrst og fremst góð fyrir kvikmynd-
irnar, tryggi þeim betri dreifingu og meiri at-
hygli. Hann gleðjist yfir verðlaunum með sama
hætti og foreldri gleðst yfir því þegar barn fær
viðurkenningu og hrós. Þá sé það gott fyrir rúm-
enska kvikmyndagerð að rúmensk kvikmynd
hljóti eftirsótt verðlaun og góða dreifingu.
– Ertu byrjaður á nýrri mynd?
„Já, reyndar, æfingar eru hafnar því í við vilj-
um hefja tökur í byrjun nóvember,“ segir Sitaru
en myndin mun heita Domestic. Sitaru hefur
þann háttinn á að láta leikara æfa vel fyrir tökur
og setja sig af fremsta megni inn í hugarheim
persóna. Handritið að Domestic var skrifað þeg-
ar For Love With Best Intentions var í fram-
leiðslu. Domestic verður svört kómedía um þrjár
fjölskyldur sem tengdar eru saman í fimm ólík-
um sögum um fólk og húsdýr.
Angist Stilla úr kvikmyndinni From Love With Best Intentions, eða Din dragoste cu cele mai bune intentii eins og hún heitir á rúmensku. Leikarinn Bogdan Dumitrache er hér næst linsu mynda-
vélarinnar en hann hlaut verðlaun á síðustu kvikmyndahátíð í Locarno fyrir bestan leik karls í aðalhlutverki og leikstjórinn Sitaru verðlaun fyrir besta leikstjórn.
Áhorfandinn í atburðarásinni miðri
Rúmenski kvikmyndaleikstjórinn Adrian Sitaru kynntur sérstaklega á Alþjóðlegri kvikmynda-
hátíð í Reykjavík, RIFF Margverðlaunaður og tilheyrir rúmensku kvikmyndanýbylgjunni
Alþjóðleg kvik-
myndahátíð í
Reykjavík,
RIFF, hefst 22.
september
næstkomandi
og lýkur 2.
október. Í ár er
sjónum beint
sérstaklega að
Rúmeníu, í
flokknum Sjónarrönd. Auk stutt-
mynda og kvikmynda Adrians Sit-
aru verða sýndar The Autobiog-
raphy og Nicolae Ceaucescu eftir
Andrei Ujica, Outbound eftir Bogd-
an George Apetri, Loverboy eftir
Catalin Mitulescu og Crulic eftir
Anca Damian. Myndirnar hafa
flestar verið valdar til sýninga á
þekktum kvikmyndahátíðum, m.a.
í Cannes, Lundúnum, Locarno og
New York. Forseti Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðarinnar í Transilvaníu,
Tudor Giurgiu, mun einnig sitja í
dómnefnd hátíðarinnar fyrir verð-
launaflokkinn Vitranir.
Sjónum beint
að Rúmeníu
SJÓNARRÖND
Adrian Sitaru
Hooked Úr kvikmynd Sitaru, Hooked, eða Pescuit Sportiv á frummálinu, frá árinu 2007.
Hún hefur hlotið fjölda verðlauna á kvikmyndahátíðum, m.a. í Stokkhólmi.
Frekari upplýsingar um Alþjóðlega kvik-
myndahátíð í Reykjavík má finna á riff.is.