Morgunblaðið - 10.09.2011, Side 1
L A U G A R D A G U R 1 0. S E P T E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 212. tölublað 99. árgangur
YRÐI STÓRSLYS
AÐ FÓRNA
BÚGREININNI
SJÓN SEM
ALDREI
GLEYMIST
HOLLUSTA OG
FERSKLEIKI
Í FYRIRRÚMI
SUNNUDAGSMOGGINN ELDAR FYRIR 250 BÖRN 10KJÚKLINGABÆNDUR OG ESB 24
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Tveir til þrír Íslendingar svipta
sig lífi í hverjum mánuði að meðal-
tali. Sjálfsvígum hefur fækkað síð-
ustu þrjátíu ár og eiga sögusagnir
í samfélaginu um aukningu í kjöl-
far efnahagshrunsins ekki við rök
að styðjast, segir Högni Óskarsson
geðlæknir í Sunnudagsmogg-
anum. Þess ber þó að geta að tölur
fyrir 2010 liggja ekki fyrir.
Ung kona, Elín Ósk Reynis-
dóttir, sem nokkrum sinnum hefur
reynt að svipta sig lífi, lýsir því í
blaðinu hvernig hún stefndi á
dauðann, en ekki á lífið, en öðl-
aðist síðan von. „Ég varð að taka
þá ákvörðun að ég vildi lifa! Ég
hafði ákveðið að taka ekki eigið líf
en ekki ákveðið almennilega að
lifa lífinu.“ Hún gerði það í samtali
við sálfræðing „en það kom mér á
óvart hve það var erfitt“.
Hún segir mikilvægt að halda í
vonina. „Stundum þarf maður
meira að segja að fá lánaða von
hjá öðrum ef maður hefur hana
ekki sjálfur.“
Séra Sigurður Pálsson missti
dóttur fyrir tveimur áratugum,
unga móður þriggja drengja.
Hann segir vont ef nánir vinir að-
standenda verða vandræðalegir
og leggja ósjálfrátt á flótta. Mik-
ilvægast fyrir syrgjendur sé að
hafa eyra til að tala í. „Kærkomn-
ustu heimsóknirnar voru ekki
endilega frá fólki sem kom til þess
að segja eitthvað heldur þeim sem
faðmaði okkur og grét með okkur.
Það var gott að fá fólk í heimsókn
sem hafði heilsu til að gráta með
okkur og gerði það af einlægni.
Það var miklu dýrmætara en mörg
huggunarorð.“
Í fyrra hringdu 287 í Hjálp-
arsíma Rauða krossins, 1717, þar
af 210 vegna eigin sjálfsvígshugs-
ana. Í ár hafa alls 176 hringt, 150
vegna slíkra hugsana.
„Varð að ákveða að ég vildi lifa“
Sögusagnir um fjölgun sjálfsvíga rangar Mikilvægt að hafa alltaf von
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valdi lífið Erla Ósk Reynisdóttir
er 28 ára og segist blómstra í dag.
Ístogarinn Jón Vídalín VE 82 hefur staðið í
slipp að undanförnu en bíður nú brottfarar í
Reykjavíkurhöfn. Hann er samt ekki alveg
ferðbúinn og dundaði þessi vandvirki málari
sér við það í blíðviðrinu í gær að huga að smá-
atriðunum. Jón Vídalín var smíðaður í Japan
árið 1972 og helstu fisktegundir sem skipið ber
að landi eru karfi, ufsi, ýsa og þorskur.
Jón Vídalín tekinn í gegn
Morgunblaðið/Eggert
Málað í haustblíðunni
Ísland er eina landið í samantekt
Eurostat, hagstofu Evrópusam-
bandsins, sem er með samdrátt í
vergri landsframleiðslu á öðrum
fjórðungi þessa árs, miðað við þann
fyrsta. Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu dróst framleiðslan sam-
an um 2,8% á fjórðungnum, að
raungildi.
Meðaltalshagvöxtur ríkjanna 27
innan Evrópusambandsins var þó
ekki mikill og nam 0,2% á fjórð-
ungnum. Taka ber fram að hjá Eu-
rostat vantar tölur frá Grikklandi
og Írlandi. »26
Morgunblaðið/Ernir
Rólegt Lítið er um framkvæmdir, þó svo
að á því séu undantekningar.
Eina landið
með samdrátt
Lítið þokaðist í
viðræðum Flug-
freyjufélags Ís-
lands við Samtök
atvinnulífsins í
gær. Viðræður
stóðu yfir fram á kvöld, en þá var
ákveðið að gera hlé á þeim. Áfram-
haldandi fundir hafa ekki verið
boðaðir.
Að sögn Sigrúnar Jónsdóttur,
formanns félagsins, ber nokkuð á
milli aðila. „Ég fer yfir málin með
mínu fólki um helgina,“ segir Sig-
rún og vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um málið.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, segir for-
svarsmenn fyrirtækisins vona að
niðurstaða náist innan tíðar. „Það
er gangur í viðræðunum og verk-
efnið sem liggur fyrir er að klára
samning,“ segir Guðjón. „Við von-
umst til að þetta klárist sem fyrst.“
annalilja@mbl.is
Lítið þokast í kjara-
viðræðum flugfreyja
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sýslumennirnir í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi
og í Keflavík áætla að 249 eignir fari á uppboð á
næstu fjórum vikum og er þar um að ræða eignir ein-
staklinga og lög-
aðila, þ.e. fyrir-
tækja.
Hafa 533 eignir
þegar farið á loka-
uppboð hjá sýslu-
mönnunum fjórum
á árinu. Er því útlit
fyrir að í október-
byrjun 2011 hafi
782 eignir farið
undir hamarinn, að
frátöldum þeim
eignum sem teknar
verða af uppboðs-
skrá áður en til
uppboðs kemur.
Til samanburðar
fóru 1.138 eignir á
lokauppboð hjá sýslumönnunum fjórum í fyrra en
nákvæm skipting milli einstaklinga og fyrirtækja lá
ekki fyrir hjá sýslumönnum í gær. Eins og sýnt er á
kortinu hér fyrir ofan hafa 188 eignir farið á loka-
uppboð á Suðurnesjum á árinu og telur sýslumað-
urinn í Keflavík að fjöldi uppboða geti slegið met í ár.
Eigur fólks fari ekki á uppboð
Eins og rifjað er upp í Morgunblaðinu í dag lýsti
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra yfir and-
stöðu við að eignir færu á uppboð þegar hún boðaði
aðgerðir í skuldamálum heimilanna í stefnuræðu í
októberbyrjun í fyrra. Orðrétt sagði Jóhanna:
„Það gengur ekki að eigur fólks séu settar á upp-
boð fyrr en allar aðrar leiðir hafa verið fullreyndar. Í
einhverjum tilvikum er sú leið hins vegar óhjá-
kvæmileg og þá verðum við að geta treyst á leigu-
markaðinn og félagslegar húsnæðislausnir,“ sagði
forsætisráðherra meðal annars í ræðu sinni.
Hátt í 250
uppboð í
september
Tölur sýslumanna suður með
sjó og á höfuðborgarsvæðinu
Hafa sótt um greiðsluaðlögun
til Umboðsmanns skuldara
Suðurnes
Lokauppboð og umsóknir
um greiðsluaðlögun
2009 2010 2011*
* Fyrstu níu mánuðir ársins
98
280 274
188
86
400(Næstu fjórar vikur)
MUppboðshamrinum slegið ótt og títt »16