Morgunblaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011 VIÐTAL Karl Blöndal kbl@mbl.is „Það sem bankarnir og ríkisstjórnin gerðu á Ís- landi fyrir hrunið var glæpsamlegt,“ segir Noam Chomsky. „Það var byggt á ótrúlegum tálmyndum um það hvernig hagkerfi virka. Þetta var eins og að kasta þjóðararfinum fyrir fráleitar trúarsetningar, markaðsbókstafstrú. Það var augljóst að þetta myndi hrynja. Ég vil taka fram að það sama á við um Bandaríkin, þótt ekki sé í sama mæli. Seðlabankastjórarnir Greenspan og Bernanke hefðu getað stungið á húsnæðisbólunni en þeir sögðu að hún gæti ekki verið vandamál vegna þess að markaðirnir segja að allt sé í lagi. Þetta var bara trúarsetn- ing og átti sér hvorki stoð í fræðunum né reynsl- unni. Það sama gerðist á Íslandi.“ Chomsky er staddur hér á landi á vegum Há- skóla Íslands og flutti í gær fyrirlestur í Há- skólabíói um heimsmálin þar sem útgangs- punkturinn var valdarán Augustos Pinochets í Síle 11. september 1972 og hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september 2001. Hann svaraði nokkrum spurningum blaðamanns eftir fyrirlesturinn. Arabíska vorið og lýðræðið Tæpum tíu árum eftir hryðjuverkin krefst al- menningur í arabalöndum lýðræðis líkt og í Austur-Evrópu árið 1989. Chomsky telur ekki viðeigandi að líkja arabíska vorinu við atburðina í Austur-Evrópu 1989. „Helstu valdakerfi heimsins studdu uppreisnirnar,“ sagði hann. „Það gerist nánast aldrei. Valdakerfi heimsins kæfa venjulega tilraunir til að koma á lýðræði. Þau studdu hins vegar tilraunirnar í Austur- Evrópu vegna þess að það gróf undan óvini þeirra.“ Hann segir að þess vegna viti allir um glæp- ina sem Rússar frömdu í Austur-Evrópu, en fáir viti um mun verri glæpi Bandaríkjamanna í Mið-Ameríku. „Þetta var óvinur og þess vegna studdum við lýðræði þar – upp að vissu marki. Það má ekki vera of mikið lýðræði, en nóg til að steypa stjórnunum sem þar voru,“ segir hann. „Uppreisnirnar í arabaheiminum eru annað mál. Þar er um að ræða ríki háð Bandaríkja- mönnum, Bretum og Frökkum, sem styðja kúg- unarstjórnir á meðan það er hægt.“ Ný staða í Rómönsku-Ameríku Chomsky segir að erfitt sé að meta líkurnar á að almenningi í arabalöndunum takist að knýja fram lýðræði. „Það væri nær að líkja ástandinu þar við Rómönsku-Ameríku undanfarin tíu ár,“ segir hann. „Þar hafa orðið mjög afgerandi breytingar á undanförnum tíu árum. Þetta er í fyrsta skipti í þau fimm hundruð ár sem liðin eru frá því að landkönnuðirnir komu sem íbúum álfunnar hefur tekist að rísa upp og koma á um- talsverðu lýðræði.“ Chomsky bendir á að þar hafi áður verið gerðar tilraunir og nefnir Síle, sem lék stórt hlutverk í ræðu hans. „Þær tilraunir höfðu alltaf verið bældar niður, en nú tókust þær og það eru miklar breytingar í Rómönsku-Ameríku,“ segir hann. „Eitt merkið um þessar breytingar er að hverri bandarísku herstöðinni á fætur annarri hefur verið lokað í Suður-Ameríku.“ Hættir að geta pantað valdarán Chomsky segir að Bandaríkin hafi ekki styrk til að gera neitt í málinu. „Bandaríkjamenn geta ekki látið heri þessara landa ræna völdum eins og hægt var í stjórnartíð Kennedys, Johnsons og Nixons og Reagans.“ Þó hafa verið gerðar þrjár valdaránstilraunir til að kæfa lýðræði, í Venesúela, Haítí og Hond- úras, og það hafi tekist í tveimur síðastnefndu löndunum. „En þetta eru máttlítil lönd og Bandaríkjunum hefur ekki tekist að stöðva lýð- ræðisþróun undanfarinna ára þótt þeir hafi reynt,“ segir hann. „Nú held ég að sú tíð sé liðin að Bandaríkin geti látið heri fremja valdarán, að minnsta kosti í Suður-Ameríku.“ Chomsky telur að spár um aukin völd Kín- verja séu ýktar. „Í Kína hefur átt sér stað stór- kostlegur hagvöxtur, en ég held að margt blekki,“ segir hann. „Það á ekki eftir að verða tilfærsla á völdum þannig að kerfi þar sem Kín- verjar drottna taki við af kerfi þar sem Banda- ríkjamenn ráða lögum og lofum. Um þetta er mikið rætt, en ég held að það séu ýkjur. Tökum til dæmis staðlaða samanburðarkvarða um heil- brigði og félagslega og efnahagslega þætti, þá er Kína í 90. sæti við hlið El Salvador og Dóm- iníska lýðveldisins. Þjóðarframleiðsla miðað við höfðatölu er langt undir ríkjum Evrópu. Hag- vöxtur landsins er gríðarlegur, en forsendurnar eru veikar. Kína er aðallega samsetningarverk- smiðja. Partarnir og tæknin koma annars stað- ar frá, Taívan, Japan, Suður-Kóreu, Singapúr, Evrópu og Bandaríkjunum. Þar á virðisaukinn sér stað. Ef viðskiptahallinn við Kína er rétt reiknaður og miðað við virðisaukann minnkar hann um 25% og staða Taívans og Japans batn- ar að sama skapi því að þar eru verðmætin. Þeir munu fyrr eða síðar fikra sig upp tæknistigann, en það er ekki auðvelt og þeir eiga í miklum vandamálum innanlands.“ Veittu sér sárin sjálfir Bent hefur verið á að hryðjuverkin 11. sept- ember 2001 hafi orðið til þess að veikja stöðu Bandaríkjanna. „Það er satt að vissu marki, en ekki gleyma því að tjónið er sjálfskapað,“ segir Chomsky. „Hefðu Bandaríkjamenn brugðist öðruvísi við hefði það ekki haft þessi áhrif. Tök- um bara stríðin tvö í Afganistan og Írak, sem nú hefur verið reiknað út að hafi kostað fjórar billj- ónir dollara. Ef útgjöld til öryggismála eru tekin með má örugglega tvöfalda þá upphæð. Þetta er ekki lág upphæð. Stríðin hafa líka grafið undan stöðu Banda- ríkjanna í heiminum. Vinsældir Baracks Obama í arabalöndunum eru nú minni en vinsældir George Bush á sínum tíma. Bandaríkjamenn hafa skaðað orðstír sinn, stöðu og getu sjálfir.“ Chomsky segir að mikið sé rætt um fjár- laghallann og skuldir Bandaríkjamanna og tel- ur of mikið gert úr. „Skuldirnar eru lang- tímavandamál sem má rekja til Ronalds Reagans og George W. Bush,“ segir hann. „Reagan breytti Bandaríkjunum úr helsta lán- ardrottni heims í helsta skuldunautinn. Þegar Bush tók við var afgangur á fjárlögum, en með galinni fjármálastefnu – skattalækunum fyrir hina ríku og taumlausri eyðslu í stríð – sneri hann því við. En þessi vandamál má leysa.“ Eins og að kasta þjóðararfinum Morgunblaðið/Kristinn Umsetinn Málvísindamaðurinn og þjóðfélagsrýnirinn Noam Chomsky hélt í gær fyrirlestur í Háskólabíói. Færri komust að en vildu og hlýddi fjöldi manns á mál hans í anddyri bíósins.  Noam Chomsky segir að aðdragandi bankahrunsins á Íslandi hafi byggst á ótrúlegum tálmyndum um hvernig hagkerfi virki  Bandaríkin veikari en áður en spár um heimsveldið Kína ýktar Það var stór stund í uppsveitum Árnessýslu í gær þeg- ar Bræðratunguvegur og Hvítárbrú voru formlega vígð. Brúin var opnuð umferð 1. desember í fyrra en beðið var með vígslu þangað til öllum framkvæmdum var lokið. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra klippti á borðann með aðstoð Hreins Haraldssonar vegamálastjóra. Nýja Hvítárbrúin er 270 metrar að lengd. Tvær ak- brautir eru á brúnni auk afmarkaðrar göngu- og/eða reiðleiðar. Heildarvegalengd nýs Bræðratunguvegar er um 7,5 km, frá Hrunamannavegi um Hvítá að Bisk- upstungnabraut. Áætlaður heildarkostnaður vegna verksins er 1.140 m.kr. Leiðin á milli Reykholts og Flúða styttist um 26 km með brúnni og verður um 10 km löng. Konurnar í sveitinni voru augljóslega ánægðar með þessar bættu samgöngur. Þær létu ekki sitt eftir liggja og mættu prúðbúnar og glaðbeittar á vígslu brúarinnar í gær. ingveldur@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Bættum sam- göngum fagnað Öllum framkvæmdum lokið og stór stund í uppsveitum Árnessýslu þegar Hvítárbrú var formlega vígð í gær Noam Chomsky er einn helsti málvís- indamaður samtímans. Kenningar hans í málvísindum hafa verið kallaðar mál- fræðibylting Chomskys. Hann er ekki síð- ur afkastamikill þjóðfélagsrýnir. Chomsky er 82 ára og er prófessor emeritus við Massachusetts Institute of Technology þar sem hann hóf störf eftir að hann lauk doktorsprófi 1955. Boðið er upp á ýmsa viðburði í ár í til- efni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands og heimsókn Chomskys er einn af þeim. Hann hélt í hádeginu fyrirlestur í nám- skeiði um áhrif hugmynda sinna á rann- sóknir og kenningar í hugvísindum og fjallaði um stjórnmál í Háskólabíói síð- degis. „Aftur og aftur hefur hann sýnt okkur að gagnrýnin hugsun og pólitísk upplýsing felur í sér að fara þurfi undir yf- irborðið,“ sagði Ástráður Eysteinsson, forseti hugvísindasviðs Háskólans, þegar hann kynnti Chomsky í Háskólabíói. Málvísindi og þjóðfélagsrýni TVEIR FERLAR CHOMSKYS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.