Morgunblaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011 ✝ Þuríður Sig-urrós Bene- diktsdóttir fæddist 4. maí 1915 á Hömr- um í Haukadal. Hún lést á hjartadeild Landspítalans 31. ágúst 2011. For- eldrar hennar voru Benedikt Jónasson, f. 18. feb. 1888 á Stóra-Vatnshorni í Haukadal, d. 14. sept. 1948, og Guðrún Guðjóns- dóttir f. 28. jan. 1894, á Gilsbakka, í Miðdölum, d. 4. okt. 1976. Þur- íður var elst af fjórtán systkinum en þau eru í aldursröð: Kristín, f. 14. feb. 1917, d. 1. des. 1998, Fanney, f. 15. sept. 1918, d. 28. maí 2008, Jónas Kristinn, f. 26. mars 1920, d. 25. nóv. 1971, Guð- jón, f. 3. júní 1921, Jón, f. 26. jan. 1923, Ragnheiður, f. 2. júlí 1924, Guðmundur Sigurvin, f. 3. sept. 1925, d. 3. sept. 2003, Elísabet f. 31. jan. 1927, d. 19. apríl 2002, Ólafur Árni, f. 25. sept. 1933, Svavar Reynir, f. 18. mars 1935, Elsa, f. 30. júlí 1936, Hreinn, f. 9. des. 1937, og Fjóla, f. 24. júlí 1939. Maki Þuríðar var Kristján Jós- 1987, og b) Rakel, f. 7. des. 1990, sambýlismaður hennar er Bjarki Rúnar Guttormsson, f. 9. mars 1988. Hilmar, f. 6. mars 1943 á Oddsstöðum í Miðdölum, d. 13. mars 2009, kvæntur Hjördísi Ósk- arsdóttur, f. 20. jan. 1941 í Reykjavík, börn þeirra: 1) Jón Sverrir, f. 18. des. 1967, kvæntur Hólmfríði Láru Skarphéð- insdóttur, f. 20 okt. 1970, börn þeirra: a) Arnór Ingi, f. 2 júní 1989, og b) Hjördís Anna, f. 23. okt. 1990, sambýlismaður hennar er Björn Kolbeinn, f. 7. des. 1978, barn þeirra, drengur, f. 16 ágúst 2011. 2) Þuríður Kristín, f. 19. jan. 1969, maki Baard Hermansen, f. 31. maí 1966, barnsfaðir Sigurður Ingvarsson, f. 10. des. 1961, börn þeirra: a) Hilma Kristín, f. 5. nóv. 1994, og b) Sara Diljá, f. 10. júní 1996. Hjördís átti fyrir börnin: 1) Óskar, f. 15. apríl 1956, 2) Jó- hönnu, f. 10. nóv. 1958, 3) Lárus, f. 22. jan. 1960, 4) Kristján, f. 4. okt. 1961, og 5) Pál, f. 25. nóv. 1964. Þuríður og Kristján bjuggu lengst af á Oddsstöðum í Mið- dölum en eftir lát Huldu dóttur þeirra flutti Þuríður að Breiðaból- stað í Miðdölum og annaðist upp- eldi dóttursona sinna ásamt föður þeirra og alfarið eftir lát hans. Hún flutti til Reykjavíkur 1986. Útför Þuríðar fer fram frá Kvennabrekkukirkju í dag, 10. september 2011, og hefst athöfnin kl. 14. efsson, f. 16. júlí 1911 á Skallhóli í Miðdölum, d. 7. ágúst 1959, for- eldrar hans voru Jósef Jónsson, f. 3. ágúst 1882 á Hamra- endum í Miðdölum, d. 14. ágúst 1959, og Ólafía M. Ólafs- dóttir, f. 29. sept. 1879 á Bálkastöðum í Hrútafirði, d. 24. ágúst 1953. Börn þeirra: Hulda Hlíf, f. 17. feb. 1938 á Krossi í Haukadal, d. 19. jan. 1964, gift Inga Níelsi Karlssyni, f. 21. mars 1929 á Fitjum í Hrófbergs- staðahreppi, d. 20. maí 1976, synir þeirra: 1) Rúnar Karl, f. 29. júlí 1958, d. 7. okt. 1960; 2) Kristján Jósep, f. 12. nóv. 1959, kvæntur Kristjönu Kjartans Arnardóttur, f. 12. feb. 1962, börn þeirra: a) Ingi Örn, f. 26. júlí 1980, börn hans Bríet Fríða, f. 16. júlí 2001, og Matthías Helgi, f. 25. maí 2009, og b) Hulda Margrét, f. 1. des. 1988; og 3) Karl, f. 27. mars 1961, kvæntur Guðrúnu Á. Rögnvalds- dóttur, f. 29. maí 1961, börn þeirra: a) Ingi Níels, f. 14. okt. Langt úr fjarlægð, elsku amma mín, ómar hinzta kveðja nú til þín. En allt hið góða, er ég hlaut hjá þér, ég allar stundir geymi í hjarta mér. Ég man frá bernsku mildi og kærleik þinn, man hve oft þú gladdir huga minn. Og glæddir allt hið góða í minni sál, að gleðja aðra var þitt hjartans mál. Og hvar um heim, sem liggur leiðin mín þá lýsa mér hin góðu áhrif þín. Mér örlát gafst af elskuríkri lund, og aldrei brást þín tryggð að hinztu stund. Af heitu hjarta allt ég þakka þér, þínar gjafir, sem þú veittir mér. Þín blessuð minning býr mér ætíð hjá, ég björtum geislum strái veg minn á. (JK) Þuríður Kristín. Nú er lífsljósið hennar Þuru frænku minnar slokknað. Það log- aði lengi og á eftir að lýsa okkur, frændfólki hennar og afkomend- um, um langa hríð. Hún var föð- ursystir mín og elst fjórtán systk- ina sem öll voru fædd og uppalin á Hömrum í Haukadal í Dölum vest- ur. Fullu nafni hét hún Þuríður Sigurrós, bar nafn föðurömmu sinnar en var alltaf kölluð Þura af ættingjum og vinum. Hún lifði tímana tvenna, fædd í miðri fyrri heimsstyrjöld og lengi fram eftir ævi bjó hún hvorki við rafmagn né önnur nútímaþægindi. Hún hóf búskap ásamt manni sínum, Krist- jáni Jósepssyni, á Krossi í Hauka- dal en þau fluttust síðan að Óspak- sstaðaseli í Hrútafirði árið 1939. Sú jörð er nú fyrir löngu komin í eyði. Faðir minn, Jón Benedikts- son, var vinnumaður hjá systur sinni þegar hún bjó í Óspaksstaða- seli, þá ungur maður, og á margar góðar minningar frá þeim tíma. Eftir tveggja ára búskap í Óspak- sstaðaseli fluttust þau að Odds- stöðum í Miðdölum og þar bjó hún fram til ársins 1964 er hún fluttist að Breiðabólstað og að lokum fluttist hún til Reykjavíkur þar sem hún hélt heimili um skeið ásamt Kristínu systur sinni. Síð- ustu árin bjó hún í Furugerði 1 og sá þar um sig sjálf nær til hinstu stundar. Lífsgangan var henni ekki auð- veld. Árið 1959 missti hún sinn góða mann, ári síðar dó elsta barnabarnið og 1964 lést einka- dóttir hennar, Hulda, af barnsför- um frá tveimur litlum drengjum. Tók hún þá við uppeldi þeirra og ól þá upp ásamt tengdasyni sínum og fluttist að Breiðabólstað þar sem hún bjó næstu tuttugu og tvö árin. Á Breiðabólstað reið enn eitt áfall- ið yfir þegar tengdasonur hennar, Ingi Karlsson, lést skyndilega. Fyrir rúmum tveimur árum dó Hilmar sonur hennar og var hún þá búin að missa bæði börnin sín. Í huga mínum var Þura, frænka mín, sannkölluð hversdagshetja. Hún var æðrulaus allt til hinstu stundar og lét ekki bugast þó að lífið legði henni á herðar þungar byrðar. Snemma var hún tápmikil og gekk til allra verka jafnt úti sem inni. Hún var alla tíð létt á fæti og taldi ekki eftir sér að taka til hendi þar sem þess var þörf. Hún hafði yndi af bóklestri ef stund gafst til og var ótrúlega minnug en andlegri reisn hélt hún allt til hinstu stundar. Hún barst aldrei á og tranaði sér ekki fram en vann störf sín í hljóði. Það var gott og gefandi að eiga með henni stund og minnist ég margra stunda sem ég átti með henni, bæði vestur í Dölum og eins eftir að hún fluttist til Reykjavíkur. Að leiðarlokum þakka ég henni samfylgdina og bið henni blessun- ar á nýjum leiðum. Samúðarkveðjur sendum við Gulla og foreldrar mínir til afkom- enda hennar og allra þeirra sem þótti vænt um hana. Ólafur H. Jónsson. Þuríður Benediktsdóttir Elsku Hjálmar bróðir. Það er sárt og ótímabært að þurfa að kveðja þig svona fljótt. Nú er baráttu þinni lokið. Hún er búin að vera þér og þínu fólki mjög erfið. Þér tókst að takast á við þennan sjúkdóm af þvílíku æðruleysi að ekki var annað hægt en að dást að þér. Þegar ég nefndi það við þig svaraðir þú því til að nóg væri nú samt sem þyrfti fyrir þér að hafa. Við trúum því að nú líði þér betur og enginn vafi er að fólk- ið okkar, sem á undan er farið, hefur tekið vel á móti þér. Það er alveg einstakt að sjá þá umhyggju og hlýju sem þú naust í umsjón Ragnheiðar og dætra ykkar í þínum veikindum og gerði það þér mögulegt að vera nánast alveg heima. Þar sem þér leið best umvafinn börnunum þínum og barna- börnum. Þú varst mjög um- hyggjusamur fjölskyldufaðir og alltaf tilbúinn að liðsinna öðrum þegar þú komst því við. Það koma snemma í ljós hve umhyggjusamur þú varst gagn- vart öðrum. Þú varst ekki nema 10 ára þegar þú læddist inn í herbergi til mömmu og pabba og sóttir litla bróður þegar hann var veikur og hafð- ir hann uppi í hjá þér svo mamma gæti sofið. Þú varst vinnusamur alla tíð enda ekki gamall þegar þú fórst að vinna. Hjálmar Haraldsson ✝ Hjálmar Har-aldsson fæddist í Neskaupstað 25. ágúst 1942. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suð- urnesja 25. ágúst 2011. Útför Hjálmars fór fram frá Grindavíkurkirkju 2. september 2011. Beita eða á sjó m.a. á Byr hjá pabba og síðar Hjálmari. Varð sjómennskan ævi- starf þitt enda var það líf þitt og yndi að vera á sjó. Við systkinin er- um fædd og uppal- in austur á Norð- firði og eru bernskuminning- arnar bara ljúfar og góðar. Við systurnar erum tvær og feng- um við svo oft að fara með þér þegar þú varst að fara í sendi- ferðir og alltaf vildi þú leiða okkur. Fyrstu nælonsokkana sem við systurnar eignuðumst gafst þú okkur og vorum við mjög upp með okkur yfir þeirri gjöf. Á sumrin stífluðuð þið lækinn sem rann rétt utan við húsið og var það mikið athafna- svæði, báta- og bílaútgerð. Á veturna voru grafin stærðar snjóhús í gilinu við lækinn. Einu sinni neglduð þið gömul skíði undir gormadívan og dróguð hann langt upp á Jónst- ún. Síðan var brunað niður brekkurnar, þvílíkt ævintýri. Þó að þið Sæmi bróðir væruð í þessum leikjum ykkar þá mátt- um við Unna alltaf vera með. Haustið 1960 fluttum við frá Norðfirði vestur á Flateyri og þar kynnist þú henni Ragn- heiði, ástinni í lífi þínu. Minningarnar eru svo marg- ar og ómetanlegar sem við eig- um um þig, kæri bróðir, og munum við varðveita þær. Við Sæþór erum þakklát fyr- ir þann tíma sem við höfum átt með ykkur Ragnheiði. Við fór- um í margar útilegurnar sam- an, meðal annars ógleymanlega berjaferð á Vestfirði. Berja- ferðir var eitt af því skemmti- legasta sem þú gerðir. Eitt skipti þegar við vorum á ferða- lagi saman í Haga í Mjóafirði (þar sem þú varst í sveit hjá ömmu og afa) tókst þú upp litla birkihríslu og gafst mér og spurðir hvort ég vildi ekki eiga í garðinum mínum. Elsku Ragnheiður. Megi Guð styrkja þig og fjölskyldu þína á þessum erfiðu tímum. Guð blessi minningu míns kæra bróður og mágs með kæru þakklæti fyrir allt á lífsleiðinni. Marta og Sæþór. Okkur langar til að minnast föðurbróður okkar hans Hjamma frænda eins og við kölluðum hann með örfáum orð- um. Margar minningar fljúga í gegnum hugann og mörg tár renna niður vangana þegar hugurinn reikar. Við vorum svo lánsöm að Hjammi frændi var hluti af okkar daglega lífi frá því við fæddumst. Það var ekki ósjaldan sem Hjammi og Ragn- heiður kíktu í kaffi til mömmu og pabba. Þá var mikið rætt og oft á tíðum barst umræðan að sjónum og öllu sem honum tengdist. En á sjónum leið Hjamma vel, hann var vinsæll og farsæll skipstjóri sem stýrði skipi sínu af miklum sóma. Hjammi frændi var mikill ljúflingur og rólyndismaður, alltaf var hann glaður og aldrei sáum við hann skipta skapi. Við hefðum öll viljað hafa hann lengur hjá okkur en það er ekki spurt að því þegar ill- vígir sjúkdómar banka upp á. Við er þakklát fyrir þann tíma sem við fengum með honum og þær minningar sem við eigum í hjörtum okkar. Minningin um einstakan mann mun lifa í hjörtum okkar um ókomna framtíð. Við sendum Ragnheiði og fjölskyldu hennar okkar inni- legustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að blessa ykkur og veita ykkur styrk á sorgar- stundu. Sigurveig, Halldóra og Hafþór. Ég vil með örfáum orðum minn- ast vinar míns Runólfs Lárussonar. Við ólumst upp á kreppuárunum á Króknum og áttum heima í sama húsi um nokkurra ára skeið, Höepfnershúsinu, en það hús stóð fyrir neðan Villa Nova niðri á mal- arkambinum. Það var varnargarð- Runólfur Lárusson ✝ Runólf Láruss-on, sjómann frá Sauðárkróki fæddist 5. maí 1934. Hann lést 2. ágúst 2011. Foreldrar hans voru Lárus Runólfs- son, sjómaður og hafnarvörður á Sauðárkróki, fædd- ur 22.6. 1903, dáinn 3.10. 1981, og Ellen Guðlaugsdóttir, fædd 24.7. 1905 í Reykjavík, dáin 29.9. 1961. Systkini hans voru Unnur, fædd 26.3. 1930, látin, Soffía, fædd 4,9. 1931, látin, Lára, fædd 28.11. 1932, og Guðlaugur, fæddur 23.6. 1936. Runólfur var jarðsunginn í kyrrþey. ur fyrir neðan húsið til varnar landbroti. Í vondum veðrum gekk sjór yfir varnar- garðinn og yfir húsið og flæddi þá oft inn, því þak hússins og veggir voru lekir. Þessi húsakynni voru afar bágborin, jafn- vel þótt miðað sé við krepputíma sem þá voru. En í þetta hús fluttu fjölskyldur sem voru í litlum efnum á árunum 1936 til 1937. Í mörgum tilfellum fjölskyldur sem áttu sæg af börnum. Hver fjöl- skylda hafði til umráða stofu og eldhúskytru svo það var æði þröngt. Í húsinu voru að jafnaði á milli þrjátíu og fjörutíu krakkar þannig að það var mikið líf hjá okk- ur krökkunum. Yfirleitt kom okkur vel saman þótt eins og gengur skærist stundum í brýnur en það risti aldrei djúpt. Já það var gaman að alast upp með öllum þessum krökkum og nú eftir öll þessi ár að rifja upp þessa tíma. Runólfur var fílhraustur og samanrekinn. Það fór jafnan mikið fyrir honum og hann varð snemma óreglusamur og byrjaði innan við fermingu að reykja og neyta áfeng- is. Frá unga aldri fór hann að róa með föður sínum á trillu og varð það hans ævistarf. Þeir voru afar fengsælir fiskimenn feðgarnir. Ranni, eins og hann var kallaður, var vinmargur og hafði yndi af því að skemmta sér í góðra vina hópi. Hann var drengur góður og hafði mjög hlýtt og gott hjartalag en óreglan var honum erfið sem nátt- úrulega bitnaði mest á honum sjálf- um. Fyrir um tuttugu árum fékk hann heilablóðfall og við það lam- aðist hann öðrum megin. Eftir það var hann bundinn við hjólastól og dvaldi öll þessi ár á Heilbrigðis- stofnun Sauðárkróks. Þar voru all- ir góðir við hann og þar leið honum vel. Ávallt þegar ég fór norður á Krók heimsótti ég hann á spítal- ann. Hann varð ætíð glaður að sjá mig og rifjuðum við þá gjarnan upp gamla daga frá uppvaxtarárunum. Ég vil með þessum fátæklegu orðum minnast míns kæra vinar, Ranna, og veit að góður guð mun taka vel á móti honum. Far þú í friði. Hörður Pálsson. ✝ Kristbjörg Pál-ína Jakobs- dóttir fæddist 30. júlí árið 1913 á Gilsbakka í Eyja- fjarðarsveit. Hún andaðist á Hjúkr- unarheimilinu Hlíð 8. ágúst 2011. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sig- rún Ólafsdóttir og Jakob Jóhann- esson. Systkini Kristbjargar, þau Ólafur, Jóhannes, Áslaug Lilja og Aðalbjörg Stefanía eru öll látin. Árið 1945 kynntist Kristbjörg eiginmanni sínum, Tryggva Ingimar Kjartansyni, f. 4. febr- úar 1927, d, 22. júlí 2005. Sama búskap á jörðinni Miðhúsum í Hrafnagilshreppi og sjö árum síðar í Melgerði í Saurbæj- arhreppi. Tvö barna Krist- bjargar og Tryggva dóu í frum- bernsku, en synir þeirra eru: Aðalsteinn, f. 9. október 1946, kvæntur Hólmfríði Dóru Sig- urðardóttur, f. 3. september 1959. Haukur, f. 31. mars 1949, d. 29. maí 2011, eiginkona hans er Sigrún Kjartansdóttir, f. 16. júní 1955. Kjartan, f. 4. júlí 1951, kvæntur Sólrúnu Stefaníu Benjamínsdóttur, f. 1. mars 1956. Jakob, f. 8. ágúst 1953, eiginkona Guðrún Andr- ésdóttir, f. 28. september 1962. Sigurður Rúnar, f. 8. ágúst 1955, kvæntur Ingu Margréti Ólafsdóttur, f. 27. nóvember 1957, og Halldór Ingimar, f. 6. júní 1957, en hans kona er Guðný Sverrisdóttir, f. 3. sept- ember 1956. Útför Kristbjörgar hefur far- ið fram í kyrrþey að ósk henn- ar. ár hófu þau búskap með foreldrum Tryggva í Mikla- garði, en þremur árum síðar fluttust þau til Akureyrar. Tæpan áratug átti fjölskyldan heimili á Gleráreyrum. Ekki höfðu þau þó hjónin sagt skilið við sveitalífið því þau höfðu með sér eina kú og nokkrar kindur úr sveitinni og voru með þann bú- skap fyrst í nágrenni heimilis- ins en síðar ofan við þáverandi byggð í bænum. Árið 1957 flutt- ust þau Kristbjörg og Tryggvi í Sólvelli, býli sem var við Borg- arbrautina. Árið 1960 hófu þau Elsku amma, Það var svo gott að koma til ykkar í Brekkugötuna áður en þið fór- uð upp á Hlíð þegar afi veikt- ist, gott að koma til ykkar snemma á morgnana í morg- unkaffi og horfa með þér á Glæstar áður en ég fór í skól- ann, og þú misstir aldrei úr þætti og vissir alltaf hvað var búið að gerast. Það virðist samt vera alveg heil eilífð síðan þið fóruð úr Brekkugötunni þó það séu ekki nema 6 ár, og alveg synd að þú hafir ekki fengið meiri stuðn- ing til að fara aftur heim eftir að afi dó. Ég varð reið og var það í langan tíma og reið yfir því að loforðið sem þér var gefið var svikið. Það var svo fínt að kíkja við í mjólkurkex sem var alltaf til og sandköku. Þetta tvennt var alltaf til og oft þegar ég kom stóðstu við bekk- inn að hræra í kökur og sagðir að þetta væri nú í síðasta skipti sem þú mundir baka, en svo leið ekki langur tími, þá varstu farin að baka aftur, og mjólk- urgrauturinn sem þú sauðst var svo góður og ég hef gert margar tilraunir til að gera hann eins og þú gerðir en hann verður ekki einu sinni svipað- ur. Ég bjóst ekki við því að það yrði svona stutt á milli þín og pabba, svo núna á rúmum 2 mánuðum hef ég bæði misst uppáhaldsmanneskjuna mína og þá mikilvægustu, en ég veit að pabbi og afi og hin tvö börn- in hafa tekið á vel á móti þér. Ég var mjög ánægð að hafa náð að vera hjá þér og halda í þig þegar þú tókst síðasta andardráttinn og kvaddir þetta líf, en það er skrítið að hugsa til þess að fara inn á Akureyri og hafa þig ekki á þínum stað. Við komum til þín viku áður en þú kvaddir, í 98 ára afmælið þitt, og sú stund sem við áttum með þér var frábær, og ísinn sem við gáfum þér í afmæliskaffi rann ljúflega niður. Takk fyrir öll góðu árin sem ég var hjá ykkur afa, og góðu stundirnar sem við átt- um saman í Brekkugötunni. Góða nótt, elsku amma mín. Þín Árný Ósk og fjölskylda. Kristbjörg Pálína Jakobsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.