Morgunblaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011
Blöð úti í heimi, sem hallast undirsjónarmið félagshyggju og
vinstristefnu, sum hver ágætlega
læsileg blöð, heita á máli íslenskra
fréttaskýrenda „stórblöð“.
Stórblaðið New York Times, Stór-blaðið Washington Post, Stór-
blaðið Le Monde.
Eigi Bretland í hlut er talað umhið áhrifamikla blað The Gu-
ardian og hið áhrifamikla Independ-
ent, því þótt þetta séu góð og gild
vinstri blöð ná þau ekki með góðu
móti „stóra“ stimplinum.
The Telegraph sem er breiðsíðameð mikla útbreiðslu er hins
vegar oftast nær „hið hægrisinnaða
Telegraph“, ef ekki verður komist
hjá því að vitna í það, sem er þó oft-
ast hægt.
Þessi skemmtilega stimplun gildirlíka um einstaklinga.
Ef maður þætti jafn ákaflega hall-ur undir hægrisinnuð viðhorf
eins og „málvísindamaðurinn“ Noam
Chomsky hallast til vinstri yrði talað
um slíkan mann feimnislaust sem
„hinn hægri sinnaða öfgamann“.
Og þá væri sem betur fer enginhætta á að slíkum yrði sér-
staklega boðið hingað í tilefni ald-
arafmælis H.Í.
Enda yrðu þá uppi slík mótmæliog ofsi í háskólanum að það
yrði bara til leiðinda og veisluspjalla.
Að vísu yrðu þá ekki mótmælendur á
ferð heldur „aðgerðasinnar“.
Háskóli Íslands
Stimpillinn gildir
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 9.9., kl. 18.00
Reykjavík 10 heiðskírt
Bolungarvík 9 léttskýjað
Akureyri 6 skýjað
Kirkjubæjarkl. 9 léttskýjað
Vestmannaeyjar 10 alskýjað
Nuuk 5 skúrir
Þórshöfn 9 skýjað
Ósló 16 léttskýjað
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 17 heiðskírt
Helsinki 15 skýjað
Lúxemborg 22 alskýjað
Brussel 21 skýjað
Dublin 21 léttskýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 22 skýjað
París 22 skýjað
Amsterdam 18 súld
Hamborg 17 skúrir
Berlín 17 skýjað
Vín 20 skýjað
Moskva 13 skýjað
Algarve 31 heiðskírt
Madríd 35 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 27 heiðskírt
Róm 27 léttskýjað
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 27 léttskýjað
Montreal 22 skýjað
New York 25 heiðskírt
Chicago 18 skúrir
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:36 20:14
ÍSAFJÖRÐUR 6:37 20:24
SIGLUFJÖRÐUR 6:19 20:07
DJÚPIVOGUR 6:05 19:45
Neytenda-
stofa skoði
auglýsingu
Umhverfisstofnun barst nýlega
ábending um auglýsingu í Bænda-
blaðinu 18. ágúst sl. á léttu klifur-
hjóli sem sé „nýjung í smala-
mennsku!“, „tætir ekki upp gróður“
og sé „umhverfisvænt“. Morg-
unblaðið birti frétt um þessa auglýs-
ingu.
Fram kemur í frétt á vef Um-
hverfisstofnunar að hún telji að með
villandi upplýsingum í auglýsing-
unni felist brot á upplýsingarétti
neytenda og stofnunin hafi því vísað
þessu máli til umfjöllunar Neyt-
endastofu.
Umhverfisstofnun vill að þessu
gefna tilefni vekja athygli á að allur
akstur utan vega, á vélknúnum öku-
tækjum, er bannaður, nema á jökl-
um, svo og á snjó utan vega utan
þéttbýlis svo fremi sem jörð er
snævi þakin og frosin. Í reglugerð
eru tilgreindar undanþágur vegna
sérstakra starfa, en ekki er heimilt
að aka utan vega innan miðhálendis
Íslands vegna starfa í landbúnaði,
t.d. smölunar fjár. „Umhverfis-
stofnun hefur því bent fyrirtækinu
Kasma ehf. á að efni umræddrar
auglýsingar er villandi og til þess
fallið að hvetja til ólögmæts ut-
anvegaaksturs hjá þeim sem smala
fé,“ segir í frétt Umhverfisstofn-
unar.
í dag.
Fjöldi tilboða
í tilefni dagsins.
Opið frá 10 til 16.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Sölusýning
Nauðsynlegar lagabreytingar varð-
andi skattlagningu kolvetnisvinnslu
og leyfisveitingar hafa verið sam-
þykktar á Alþingi. Útboð á sérleyf-
um á Drekasvæðinu mun því hefjast
3. október eins og ráð var fyrir gert,
segir í frétt frá iðnaðarráðuneytinu.
Lögin tóku gildi á miðnætti í fyrri-
nótt og í gær var fyrsta rannsókna-
leyfið veitt. Það féll í skaut norska
fyrirtækinu TGS-NOPEG. Leyfið
felur í sér heimild til að safna yfir-
borðssýnum af hafsbotni á Dreka-
svæðinu og jafnframt er gefin heim-
ild til að kanna fyrirhugaða
sýnatökustaði með botnsjá. Leyfið
veitir rétt til leitar að kolvetni á
norðanverðu Drekasvæði.
Á heimasíðu Orkustofnunar kem-
ur fram að í samræmi við lagaákvæði
hafi verið leitað umsagnar sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðuneytis,
sem leitaði umsagnar Hafrann-
sóknastofnunarinnar, og umhverfis-
ráðuneytis, sem leitaði umsagnar
Umhverfisstofnunar og Náttúru-
fræðistofnunar Íslands. Leyfið gildir
til og með 8. september 2012.
Leitarleyfið veitir ekki einkarétt
til rannsókna né heldur rétt til
vinnslu á olíu eða gasi í kjölfar rann-
sókna. Orkustofnun fær afhent öll
gögn, sem safnað er samkvæmt leit-
arleyfinu, til varðveislu og getur not-
að þau í þágu þekkingaröflunar ís-
lenska ríkisins um auðlindir, en
gætir jafnframt trúnaðar um þau
gagnvart öðrum aðilum.
Þess má geta að á þriðjudaginn
verður opinn hádegisfundur um olíu-
útboðið á Drekasvæðinu á Háskóla-
torgi HÍ, stofu 101.
Norskt fyrirtæki fær rannsóknaleyfi