Morgunblaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011 „Við gerðum það sem okkur var sagt að ekki væri hægt, við hófum kúabúskap með því að kaupa kýr og kvóta,“ segir Skúli. Þau hjónin breyttu loðdýrahúsi í fjós og gátu með því dregið úr stofnkostnaði en mikið þurfti þó að laga og bæta við. Skúli og Ólöf Ólafsdóttir, kona hans, tóku við sauðfjárbúi á Tann- staðabakka af foreldrum hans á árinu 1984. „Faðir minn var góður sauðfjárræktarmaður og mér þykir alltaf vænt um kindurnar.“ Það átti þó ekki fyrir Skúla að liggja að helga sig sauðfjárræktinni eins og forfeður hans höfðu gert, mann fram af manni. Mjólkurframleiðsla hófst á Tannstaðabakka 1992 og kjúklingaeldi tíu árum seinna. Annað kjúklingahús var reist 2006. Þau urðu fyrir skakkaföllum í upp- hafi kjúklingaræktarinnar og tóku síðar upp samstarf við Reykjagarð og ala nú kjúklingana sem verk- takar. Þótt kjúklingaeldið sé orðið veigamikill þáttur í starfseminni hefur Skúli mestan áhuga á jarð- rækt. „Mér finnst skemmtilegast að rækta góð og falleg tún og nota tegundir sem skila orkumiklu og lystugu fóðri,“ segir Skúli. Hann segist leggja mikla vinnu í túnræktina og fara sínar eigin leið- ir í því efni. „Ég legg drenlagnir í túnin til að losna við bleytu og er smám saman að útrýma skurðum. Það skiptir miklu máli að vera með vel lagaðar túnsléttur. Fljótlegra er að heyja og vélatraðkið verður minna. Svo er þetta miklu fal- legra,“ segir bóndinn. Skammtímalausnir duga ekki Hann segist horfa fram í tímann við þessar framkvæmdir því þær muni nýtast lengur en hann þurfi á að halda. „Það gildir ekki að vera með skammtímalausnir í landbún- aði. Við verðum að sýna náttúrunni virðingu,“ segir hann. Skúli hóf kornrækt fyrir nokkr- um árum en þá voru köld ár og ræktunin gekk illa. Hann byrjaði aftur fyrir þremur árum og fékk tvö góð ár en tekur fram að ekki sé útlit fyrir góða uppskeru á Norðurlandi í haust, nema helst í inndölum. Hann hefur þó tröllatrú á að sú ræktunarbylgja sem hafin er haldi áfram að rísa með aukinni þekkingu. „Ég tel að þeir sem fæðast hér á landi eigi rétt á því að borða það sem íslenska gróðurmoldin gefur af sér,“ segir Skúli. Hann bætir því við að veita þurfi þeim sem vilja rækta aðgang að besta ræktunarlandinu. Það sé þjóðhagslega hagkvæmt. „Mér finnst að eignarréttur á landi sé oft ofmetinn. Peningamenn eiga ekki að geta keypt besta rækt- unarlandið og lokað það af. Það verður að meta hag þjóðarinnar meira en hag einstaklingsins,“ seg- ir Skúli og rökstyður þessa skoðun meðal annars með því að sinna verði þeirri frumþörf mannsins að fá að borða. Nýtur þess að rækta falleg tún Morgunblaðið/RAX Heyskapur Skúla Einarssyni, bónda á Tannstaðabakka, þykir fallegra að líta yfir stórar túnsléttur en sundurgrafnar og segir betra að heyja á þannig túnum. Hann setur því drenlagnir í túnin í stað skurða. bakter og öðrum matarsýkingum. Skúli segir sérstaklega mikilvægt að endurnýja elstu kjúklingahúsin í landinu vegna þess að erfiðara sé að halda þeim smitfríum en þeim nýrri. „Menn reyna eftir bestu getu að laga þau til og hreinsa í stað þess að byggja ný. Það verður pattstaða í þessu þangað til ESB-málin skýr- ast,“ segir Skúli. Hann telur að opnum markaðarins sem fylgir aðild að Evrópusamband- inu myndi leika kjúklingaræktina grátt. „Það yrði fljótlegt fyrir stóra framleiðendur í Evrópu að koma okkur á hnén með undirboðum. Mat- vælaverðið ræðst af því sem mark- aðurinn þolir og því má reikna með að það fari í sama farið þegar búið verður að ryðja okkur úr vegi,“ segir Skúli. Hann telur að með aukinni þekk- ingu á ræktun korns hér á landi sé það í sjónmáli að hægt verði að rækta hýðislaust bygg með árangri en það má nýta til framleiðslu á kjúklinga- kjöti og eggjum. Bygg er þegar nokkuð notað við svínakjötsfram- leiðslu. „Ég tel að það yrði stórslys að fórna heilli búgrein sem er að ná fótfestu í framleiðslu á íslensku fóðri.“ Góður árangur Skúli er ánægður með stöðu grein- arinnar, að öðru leyti. „Hér voru ný- lega sérfræðingar frá stóru sænsku stofnræktarbúi sem við skiptum við, til að taka út búin. Þeir eru ánægðir með árangurinn hjá okkur, segja að við náum kjúklingunum stærri en bú- in úti í Evrópu,“ segir Skúli. Sami hænsnastofninn er um allan norður- hluta Evrópu. Skúli segir skýringuna á betri árangri hér væntanlega þá að umhverfið hér er hreinna og minna smitálag á fuglinum. „Þeir sem stunda eldi kjúklinga eru orðnir mjög meðvitaðir um þær hættur sem steðja að. Þá er allt eftirlit auðveld- ara vegna smæðar samfélagsins,“ segir Skúli. Allt í biðstöðu vegna ESB  Kjúklingar vaxa betur á Íslandi en úti í Evrópu  Formaður Félags kjúklingabænda segir það stórslys ef búgrein sem brátt geti notað innlent fóður yrði fórnað á altari Evrópusambandsins Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Kjúklingabú Bú þeirra Skúla Einarssonar og Ólafar Ólafsdóttur á Tannstaðabakka stendur á mörgum fótum. Leggja þau rækt við kjúklingana, eins og önnur húsdýr bæjarins. Eldið fer fram á gólfi í stórum skemmum. Tannstaðabakki » Jörðin Tannstaðabakki stendur á Heggsstaðanesi við Hrútafjörð, í Húnaþingi vestra. » Hjónin Skúli Einarsson og Ólöf Ólafsdóttur hafa fengið um 14 þúsund grunnskólabörn úr skólabúðunum á Reykjum í heimsókn og frætt þau um bú- skapinn. VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Á meðan ESB-aðild er í deiglunni eru menn afhuga því að fara í fram- kvæmdir í landbúnaði, þótt það þyrfti að gerast. Þessi umsókn setur allt í biðstöðu,“ segir Skúli Einars- son, bóndi á Tannstaðabakka í Hrútafirði og formaður Félags kjúk- lingabænda. Aðeins hefur borið á umræðu um að skort hafi kjúklinga í verslanir og að flytja þyrfti meira inn. Sala á kjúklingakjöti hefur aukist á undan- förnum árum en framleiðslan stend- ur að mestu í stað, eins og Skúli bendir á. „Sölutölur segja okkur að það þyrfti að auka framleiðsluna lít- illega en enginn hefur áhuga á því á meðan þessi umsókn er í gangi,“ seg- ir Skúli. Hann segir að opinberar tölur sýni að 50 til 60 tonn af kjúklingakjöti séu til í birgðum í landinu. „Það má lítið út af bregða í framleiðslunni til að það klárist og kannski ekki skrítið að kaupmenn séu taugastrekktir þegar birgðirnar eru ekki meiri,“ segir hann. Kæmu okkur á hnén Skúli á rætur í hefðbundnum land- búnaði og framleiðir mjólk, kindakjöt og nautgripakjöt, ásamt kjúklinga- kjöti. „Ef það verður tímabundinn skortur á kjúklingakjöti mælum við frekar með aukinni neyslu á öðrum kjöttegundum, en að flytja inn erlent kjúklingakjöt,“ segir hann. Kjúklingabændur eru í stöðugri baráttu við að halda frá sér kamfýló- Skúli á Tannstaðabakka hefur leik- ið í hljómsveitum frá því hann var í gagnfræðaskóla. Hann segist ekki hafa eins mikinn tíma fyrir spila- mennskuna og áður en er með trommusettið í fjósinu og tekur stundum trommuæfingu fyrir gesti sem þangað koma í fræðsluferðir og slær sér þá upp hjá ungling- unum. Skúli fór ungur að læra söðla- smíði á Selfossi og kynntist þar konu sinni, Ólöfu Ólafsdóttur. Hann lék þá í vinsælum dans- hljómsveitum, eins og til dæmis hljómsveitum Gissurar Geirs og Stefáns P. „Ég byggði mér ein- býlishús á Selfossi að mestu fyrir spilapeninginn,“ segir hann. Eftir að þau fluttu norður lék hann í mörg ár með hljómsveitinni Lexíu. Hljómsveitin hafði áður gef- ið út plötu og lék víða um land. Seinni árin hefur hann leikið í tríó- um og dúettum en dregið sig smám saman út úr spilamennsk- unni og lætur þátttöku í karla- kórnum Lóuþrælum að mestu duga. Honum telst til að hann hafi leik- ið í 170 danshúsum um allt land á ferlinum og margoft í sumum. „Það er ótrúlegt hvað tónlistin gefur mikið frjálsræði. Það er eins og að komast í annan heim og ég fæ útrás fyrir tilfinningarnar. Næ að hreinsa úr mér allt pex og streitu með því að setjast niður við trommusettið fimm eða tíu mín- útur á dag,“ segir Skúli. Fær útrás við trommurnar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Útrás Trommusettið er ávallt tiltækt í fjósinu. Fimm eða tíu mínútna æfing á dag kemur skapinu í lag. Skúli fær útrás fyrir tilfinningarnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.