Morgunblaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011 Bílaumboðið Askja, Krókhálsi 11, býður til jeppasýningar og reynslu- aksturs milli kl. 12 og 16 í dag, laugardag. Þarna verða Mercedes- Benz jeppar til sýnis og reynslu- aksturs. Jeppasýning Öskju Morgunblaðinu hafa borist eft- irfarandi athugasemdir frá Ís- landsbanka vegna fréttaflutnings um söluferli á hlutabréfum Geysis Green Energy í HS Orku: „Íslandsbanki vísar á bug öllum fullyrðingum um að bankinn hafi rofið trúnað við tilboðsgjafa í tengslum við söluferlið og hafnar þeirri fullyrðingu afdráttarlaust að hafa tekið við fyrirmælum frá stjórnvöldum um fyrirkomulag sölunnar. Íslandsbanki annaðist ráðgjöf við sölu á hlutabréfum Geysis Green Energy í HS Orku. Það var ákvörðun þáverandi stjórnar GGE að selja hlutabréfin í lokuðu sölu- ferli þar sem völdum aðilum var boðið að gera tilboð. Markmið bankans var að tryggja endur- heimtur af útlánum til GGE yrðu sem mestar þar sem bankinn hafði veð í hlutabréfaeign félagsins í HS Orku. Það skal upplýst að á lokametr- um söluferlisins höfðu borist tvö tilboð í hlutabréf GGE í HS Orku. Farið var yfir tilboðin og þau met- in á hlutlægan hátt og gengið var að því tilboði sem metið var hærra.“ Segir bank- ann ekki hafa rofið trúnað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann í gærmorgun fullkomna bruggverksmiðju í atvinnuhúsnæði í Kópavogi. Einn maður var hand- tekinn og játaði hann að hafa kom- ið verksmiðjunni upp. Ekki er talið að starfsemin hafi staðið lengi yfir. Að sögn Ómars Smára Ár- mannssonar, aðstoðaryfirlögreglu- þjóns, fundust fimm 200 lítra tunn- ur og stórt suðutæki af fullkominni gerð. Um 800 lítrar af gambra voru í tunnunum og nokkrir tugir lítra af landa. Ómar Smári sagði aðspurður við mbl.is að glöggur lögreglumaður hefði runnið á lykt- ina af brugginu. Ómar Smári sagði að maðurinn, sem handtekinn var, hefði viður- kennt að hafa leigt húsnæðið og sett verksmiðjuna upp. Talið er að framleiðslan hafi verið á byrjunar- stigi. Er málið talið upplýst. Lögregla hefur ekki orðið vör við mikið af landa í umferð á und- anförnum mánuðum. Ómar Smári segir að talið sé að landafram- leiðsla sé frekar lítil og þá stað- bundin. Hins vegar aukist hún oft á haustin þegar framhaldsskólar hefjast og menn geri sér vonir um að hægt sé að selja unglingum landa. Glöggur lögreglumaður rann á lyktina af brugginu Morgunblaðið/Júlíus - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Ný sending Sturtusett Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? NAPOLI hitastýrt sturtusett 26.900,- Ný sending Ermar og peysur Bæjarlind 6, sími 554 7030 Opið í dag kl. 10-15 Eddufelli 2, sími 557 1730 Lokað í dag www.rita.is Norræna Atlantssamstarfið (NORA) hefur að markmiði að styrkja sam- starf á Norður-Atlantssvæðinu og þannig skapa sterkt norrænt svæði sem einkennist af öflugri sjálfbærri efnahagsþróun. Ein af leiðunum að þessu markmiði er veiting styrkja tvisvar á ári til samstarfs- verkefna með þátttöku að lágmarki tveggja af fjórum aðildarlöndum (Græn- landi, Íslandi, Færeyjum og sjávarbyggð- um Noregs). Nú óskar NORA eftir verk- efnahugmyndum með umsóknarfrest þann 3. október 2011. Í aðgerðaáætlun NORA fyrir árið 2011 er sjónum sérstaklega beint að fámennum samfélögum á starfsvæðinu. Þess vegna vill NORA gjarnan fá umsóknir vegna verkefna sem miða að framleiðslu eða starfsemi í fámennum byggðum. Þess utan geta umsóknir heyrt undir fjögur megináherslusvið NORA, sem eru: Auðlindir sjávar Verkefni þar sem unnið er út frá sjálfbærni og nýsköpun að bættri nýtingu afurða, líftækni, sem og framleiðslu aukaafurða og sjávarafurða. Ferðaþjónusta Áhersla á verkefni sem bjóða upp á nýja þjónustu á sjálfbæran hátt, t.d. menn- ingar- og náttúrutengd ferðaþjónusta. Upplýsinga- og samskiptatækni Verkefni þar sem þróun upplýsingatækni er markmiðið. Samgöngur og flutningar Áhersla á verkefni sem bæta flutninga og samgöngur á svæðinu og verkefni þar sem bæta á öryggi og viðbúnað á hafinu. Undir heitið „Annað svæðasamstarf“ heyra verkefni sem ekki falla að áðurnefndum flokkum, en geta engu að síður fallið að markmiðum NORA. Til dæmis verkefni í landbúnaði, orkugeira eða verkefni þar sem fengist er við önnur sameiginleg úrlausnarefni á svæðinu. NORA veitir styrki að hámarki 500.000 danskar krónur á ári og að hámarki í þrjú ár. Lágmarksskilyrði er að þátttaka sé frá að tveimur NORA-löndum, en það er eftir- sóknarvert að löndin séu fleiri. Þá hefur NORA á undanförnum árum lagt áherslu á samstarf við nágranna til vesturs og þar af leiðandi er jákvætt að verkefnaþátttaka sé frá Kanada eða skosku eyjunum. Umsóknarfrestur er mánudagurinn 3. október 2011. Útfylla skal umsóknareyðublað sem sækja má á heimasíðu NORA, www.nora.fo og þar er einnig að finna leiðbeiningar undir valtakkanum „Guide til projektstøtte“. Þá er umsækjendum velkomið að leita til skrifstofu NORA í Færeyjum, eða til landskrifstofa í viðkomandi löndum um nánari upplýsingar og ráðgjöf. Tengiliður á Íslandi er: Sigríður K. Þorgrímsdóttir, Byggðastofnun, s. 455 5400 og netfang sigga@byggdastofnun.is Senda á umsóknina rafrænt (á word- formi) til NORA og sömuleiðis útprent- aða og undirritaða umsókn með pósti. Fylgigögn, eins og verklýsing og annað ítarefni, sendist rafrænt (á word, excel eða pdf-formi).                              ! " ! #                      $ %&  Nordisk Atlantsamarbejde  '()* +), -./'.  - 0&& 12 3 -4 567 3 8119 :    ; <57= >9 ?7 79 3 4; <57= >9 ?7 91 NORA styrkir samstarf á Norður- Atlantssvæðinu Upplýsingar veitir stjórnandi kórsins Garðar Cortes í síma 892 2497 Óperukórinn í Reykjavík býður nýja félaga velkomna Messa eftir Robert Sund Frumflutningur á Íslandi Requiem Mozarts Í minningu Mozarts og íslenskra tónlistarmanna Frostrósir Þátttaka í klassískum jólatónleikum Jólatónleikar Jólasöngvar og forsöngur í fjöldasöng Mörg spennandi verkefni framundan, m.a.: Laugavegi 63 • S: 551 4422 Ekta dúnúlpur m/hettu frá kr. 39.900,- ljósar og svartar HAUSTYFIRHAFNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.