Morgunblaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011 Með breyttu hugarfari getur þú öðlast það líf sem þú óskar þér. NLP er notað af fólki um allan heim sem hefur náð frábærum árangri í lífinu. NLP er öflugasta sjálfstyrkingarnámskeið sem völ er á. Námskeið í NLP tækni verður haldið 23. - 25.sept. og 30.sept - 2.okt. 2011 www.karieythors.is; rosamatt@gmail.com; Sími: 894-2992 NLP Practitioner „Hugurinn ber þig alla leið“ - Er sjálfstraustið í ólagi? - Viltu betri líðan? - Skilja þig fáir? - Viltu vinna bug á einhverju í fari þínu? - Gengur öðrum betur í lífinu en þér? - Gengur illa að klára verkefni? - Er erfitt að höndla gagnrýni? © Kári Eyþórs. Kári Eyþórsson MPNLP Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Lilja Mósesdóttir alþingismaður segir að Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hafi farið á skjön við stefnu VG í Magma-mál- inu. Hann hafi staðfest það sjálfur í Morgunblaðinu í gær. Hún segist efast um tilgang flokksráðsfunda, samþykktir þeirra séu hunsaðar, eins og fjármálaráðherra hafi gert. Lilja segir að viðræður Steingríms og Ross Beaty, aðaleiganda Magma Energy, um að Magma myndi ekki ásælast nema 50% hlut í HS Orku hafi átt sér stað eftir að fyrir lá flokksráðssamþykkt um að ráð- herrar myndu beita sér fyrir að koma HS Orku í samfélagslega eigu. „Ég velti því fyrir mér af hverju Steingrímur átti viðræður við Ross Beaty í september 2009, þegar þessi samþykkt lá fyrir, því á þessum tíma voru fulltrúar Grindavíkurbæjar og Landssambands lífeyrissjóða í við- ræðum við fjármálaráðherra um að kaupa hlut Íslandsbanka í HS Orku og það hefði tryggt samfélagslega eign á fyrirtækinu,“ segir Lilja. Ráðherra þarf að svara betur Lilja telur að fjármálaráðherra þurfi að svara betur fyrir ýmsa þætti málsins. „Ég vil til dæmis fá betri svör við þeirri spurningu hvers vegna það tókst ekki að ná sam- komulagi við Grindavíkurbæ og líf- eyrissjóðina um þessi kaup haustið 2009.“ Hún segir að ein leiðin til að fá svör við slíkum spurningum sé að leita þeirra í óundirbúnum fyrir- spurnartíma á Alþingi. Það sé þó ekki vænlegur kostur, þar sem Lilja er ekki í þingflokki og því erfitt fyrir hana að komast þar að, þannig að hún mun að öllum líkindum senda skriflega fyrirspurn. Lilja segir að margt af því sem komið hefur fram um málið að und- anförnu hafi ekki komið sér á óvart. „Ég var búin að heyra það á óform- legan hátt frá ýmsum, að samninga- viðræður við Ross Beaty hefðu stað- ið yfir á þessum tíma, þó að innlendir aðilar hefðu allan tímann haft áhuga á að kaupa hlutinn. En ég átti erfitt með að trúa þessu, því flokkurinn var svo einhuga í þeirri afstöðu sinni að HS Orka ætti að fara aftur í sam- félagslega eigu. En núna er ég búin að fá eitthvað handfast og þetta eru mikil vonbrigði með formann flokks- ins sem fjármálaráðherra.“ Á flokksráðsfundi VG sem haldinn var á Hvolsvelli 28.-29. ágúst 2009 var því beint til ráðherra flokksins að tryggja hagsmuni þjóðarinnar með því að halda HS Orku í samfélags- legri eigu. Lilja segist efast um til- gang þess að mæta á flokksráðsfundi og móta þar stefnuna með grasrót- inni þegar ekki er farið eftir þeim samþykktum. „Ég geri ráð fyrir að aðrir félagar í flokknum velti þessu líka fyrir sér.“ Steingrímur þarf að svara  Lilja Mósesdóttir: Steingrímur J. gekk gegn samþykkt flokksráðsfundar VG  Var búin að heyra af viðræðum hans við Magma, en átti erfitt með að trúa því „Þetta eru mikil vonbrigði með for- mann flokksins sem fjármálaráðherra“ Lilja Mósesdóttir Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Nokkrir framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu hafa út- vistað íþróttakennslu til líkamsræktarstöðva. Skóla- meistarar láta vel af fyrirkomulaginu. Þeir segja nem- endur ánægða, mæting hafi stórbatnað og vel sé fylgst með ástundun og iðkun nemenda, þó kennslan fari fram utan veggja skólanna. Einn þessara skóla er Borgarholtsskóli, en þar er ekk- ert íþróttahús og fer íþróttakennslan meðal annars fram í World Class í Spönginni. Bryndís Sigurjónsdóttir skólameistari segir að samningur við stöðina hafi verið í gildi í nokkur ár og að íþróttakennarar skólans séu í stöðinni á tilteknum tímum, en að auki geti nemendur mætt í stöðina þegar þá lystir á þeim tímum árs sem skólinn starfar. Hún segir að vel sé fylgst með bæði mæt- ingu og iðkun nemendanna, en rúmlega 1500 nemendur stunda nám við skólann. „Það er skylda á öllum náms- brautum að sækja íþróttatíma og það er alltaf merkt við krakkana þegar þau mæta.“ En hvers vegna varð World Class fyrir valinu? „Við ákváðum þetta vegna þess að stöðin er við hliðina á skól- anum og nemendur eru enga stund að skjótast þangað yfir,“ segir Bryndís. Auk þess að sækja tíma í World Class fara nemendur skólans einnig í líkamsrækt í Heilsuakademíunni í Egilshöll og stæla þar líkama sinn með skautahlaupum og fótbolta. „Með þessari fjöl- breyttu kennslu erum við að leggja grunn að lífsstíls- breytingu nemendanna,“ segir Bryndís. Öll íþróttakennsla í Menntaskólanum í Kópavogi fer fram í líkamsræktarstöðinni Sporthúsinu, sem er skammt frá skólanum. Þetta fyrirkomulag hefur verið við lýði undanfarin ár. „Það var erfitt að fá nemendur til að mæta í hefðbundna íþróttatíma og við höfðum barist við lélega mætingu í mörg ár,“ segir Margrét Friðriks- dóttir skólameistari. „Við höfum aldrei átt íþróttahús og vorum á flakki um bæinn. Íþróttahúsin í Kópavogi eru mjög þéttsetin og okkur voru oft boðnir einhverjir jað- artímar sem hentuðu nemendum engan veginn.“ Vel fylgst með mætingu og ástundun Í skólanum eru 1100 nemendur og fá þeir allir kort í Sporthúsinu. Margrét segist ekki vita hvort verið sé að spara fjármuni með þessari útvistun, erfitt sé að segja til um það, því að margir þættir skipti þarna máli. Að sögn Margrétar fá nemendurnir kort í Sporthús- inu, rétt eins og allir aðrir viðskiptavinir stöðvarinnar og vel er fylgst með mætingu og ástundun þeirra. Hún segir að ástæðan fyrir því að Sporthúsið hafi orðið fyrir valinu, en ekki einhver önnur líkamsræktarstöð í bænum, sé að samstarf skólans við stöðina eigi sér nokkra sögu og auk þess sé Sporthúsið sú líkamsræktarstöð í bænum sem er næst skólanum. „Við viljum að sjálfsögðu skoða alla möguleika. En með því að vera með samning við einn að- ila náum við kostnaðinum niður,“ segir Margrét. Morgunblaðið/Eggert Menntaskólaíþróttir Nokkrir framhaldsskólar hafa gert samninga við líkamsræktarstöðvar um íþróttakennslu. Framhaldsskólar útvista íþróttakennslunni  Íþróttir menntskælinga kenndar í líkamsræktarstöðvum Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að gefa kost á sér til áframhaldandi forystustarfa fyrir Samfylkinguna. Lands- fundur flokksins verður haldinn 21.-23. október. Jóhanna upplýsti um ákvörðunina í bréfi sem hún sendi til flokks- félaga í gær. Í því segir hún m.a.: „Satt best að segja renn- ur mér blóðið til skyldunnar að leggja áfram mitt lóð á vogarskálarnar og mig langar að leiða til lykta þau fjöl- mörgu mikilvægu mál sem við í Samfylkingunni höfum sett á dagskrá stjórnmálanna á undanförnum árum.“ Jóhanna vill sitja áfram á formannsstóli Jóhanna Sigurðardóttir Aðeins fjórðungur landsmanna styður ríkisstjórnina, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. 26% landsmanna eru fylgjandi ríkisstjórninni en 74% andvíg. Í frétt Stöðvar 2 í gær- kvöldi kom fram að nánast enginn munur er á milli afstöðu kynjanna til stjórnarinnar. Í könnun sem gerð var í apríl nutu ríkisstjórnarflokkarnir stuðn- ings 43% þjóðarinnar. Flestir voru óákveðnir eða vildu ekki svara þegar þeir voru spurðir hvaða flokk þeir myndu kjósa ef gengið yrði til kosninga nú. En af þeim sem svöruðu sögðust rúmlega 50% kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 23% Samfylkinguna, 14% Framsókn- arflokkinn, 12% Vinstri græna og 1% Hreyfinguna. Um var að ræða símakönnun sem var gerð á fimmtudagskvöldið. Úr- takið var 800 manns. 74% landsmanna eru andvíg ríkisstjórn- inni – rúm 50% styðja Sjálfstæðisflokkinn Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis- ráðherra finnst ómaklega vegið að ríkisstjórninni í ummælum forseta Íslands í fjölmiðlum um síðustu helgi. Ólafur Ragnar sagði í viðtali við fréttastofu RÚV að stjórnin hefði látið undan þrýstingi og ofbeldi Evr- ópuþjóða með því að fallast á kröfur Breta og Hollendinga. Kom fram í kvöldfréttum RÚV í gærkvöldi að Jóhanna ætlaði að ræða við forset- ann um þetta mál við fyrsta tæki- færi. Hún sagði þessi ummæli Ólafs koma sér á óvart. „Það er alveg ljóst að ef þetta er rétt eftir forseta haft þá er þarna mjög ómaklega vegið að ríkisstjórninni og fráleitt að halda því fram að ríkisstjórnin hafi látið aðrar þjóðir beygja sig,“ sagði Jó- hanna í samtali við RÚV. Ætlar að ræða við Ólaf við fyrsta tækifæri Fresta þurfti réttum um einn dag í Undirfells- rétt í Vatnsdal vegna þoku í leit- um. Réttað er í Undirfellsrétt í dag en venjulega er byrjað á föstu- degi. Tafir urðu við smölun á Grímstungu- og Haukagilsheiðum vegna þoku. Jón B. Bjarnason, bóndi í Ási í Vatnsdal og gangnastjóri á Hauka- gilsheiði, segir að niðdimm þoka hafi verið á þriðja dag og lítið hægt að smala í Fljótsdrögum. Einnig urðu tafir hjá gangna- mönnum á Víðidalstunguheiði þar sem slydda og þoka tafði leitir. Lít- ið var hægt að smala á miðvikudag- inn og seint var farið af stað á fimmtudagsmorgun. Gangnamenn á vesturheiðinni komust ekki til byggða í fyrrakvöld og því þurfti að fresta Valdarásrétt, sem átti að vera í gær, til dagsins í dag. Niðdimm þoka hefur tafið gangnamenn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.