Morgunblaðið - 10.09.2011, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011
SÓFAR Í ÚRVALI
Á VERDI SEM KEMUR Á ÓVART!
119.900.-verd
Andri Karl
andrikarl@mbl.is
Ekkert varð úr fyrirhugaðri aðal-
meðferð í máli ákæruvaldsins gegn
foringja og meðlimi Black Pistons
sem átti að halda áfram í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Við upp-
haf þinghalds kom í ljós að gefin
hefur verið út framhaldsákæra og
þriðji maðurinn ákærður fyrir þátt
sinn í málinu.
Manninum hafði í gær ekki verið
birt ákæra og var því ekkert hægt
að segja til um efni hennar, en ljóst
er að hann er ákærður fyrir þátt
sinn í frelsissviptingunni. Kom
þetta í ljós eftir að skýrsla var tekin
af fórnarlambinu á nýjan leik.
Í raun má segja að um sé að ræða
unglingspilt því hann er fæddur ár-
ið 1994. Gert var ráð fyrir að hann
myndi mæta sem vitni í málinu en
það breyttist s.s. Við þinghaldið
kom fram að ekki hefði verið hægt
að hafa uppi á piltinum, og því hefði
honum ekki verið birt ákæran.
Af þessum sökum þurfti að fresta
aðalmeðferðinni. Piltinum sem
ákærður er verður gert að taka af-
stöðu til ákærunnar í milliþinghaldi
sem og einnig hinum ákærðu. Þá er
stefnt á að klára málið 12. október
nk.
Mennirnir tveir sem áður höfðu
verið ákærðir, Ríkharð Júlíus Rík-
harðsson, 33 ára, og Davíð Freyr
Rúnarsson, 28 ára, eru ákærðir fyr-
ir að hafa haldið ungum karlmanni,
fæddum 1989, frá kvöldi þriðjudags
11. maí sl. fram að hádegi daginn
eftir. Á þeim tíma eiga þeir báðir að
hafa gengið í skrokk á unga mann-
inum, notað til þess vopn á borð við
þykkar rafmagnssnúrur, belti,
slíðrað skrautsverð og hníf auk
þess að kýla og sparka.
Atlagan fór samkvæmt ákæru
fram á nokkuð löngum tíma, í
skömmtum, því farið var í nokkrar
bílferðir yfir nóttina, og var fórn-
arlambinu haldið í iðnaðarhúsnæði
í Reykjavík um tíma.
Þriðji maðurinn
ákærður í Black
Pistons-málinu
Piltur fæddur 1994 ákærður
Ljúka á málinu 12. október
Réttarhöld Sakborningar leiddir
fyrir héraðsdómara í lok ágúst.
„Þetta er bara
bull,“ segir Guð-
mundur Magn-
ússon, formaður
Öryrkjabanda-
lags Íslands, um
grein SA um
mikla hækkun á
kaupmætti bóta.
Hann segist eiga
eftir að skoða
þessa útreikn-
inga SA betur en segir þó alveg
ljóst að þetta geti ekki átt við um
örorkubætur. „Það er ekki nóg með
að bæturnar hafi verið skertar,
heldur hafa réttindin verið skert al-
veg jafnt og þétt frá hruni.“
Bætur og réttindi
verið skert jafnt og
þétt frá hruni
Guðmundur
Magnússon
Kaupmáttur lágmarksbóta almanna-
trygginga og atvinnuleysisbóta hefur
hækkað mun meira en kaupmáttur
launa á síðast liðnum áratug. Þetta
kemur fram í grein í fréttabréfi Sam-
taka atvinnulífsins, sem birtir út-
reikninga um kaupmáttarþróunina.
„[...]kaupmáttur lágmarksbóta al-
mannatrygginga hækkað 50% meira
en kaupmáttur launa almennt. At-
vinnuleysisbætur hafa hækkað 20%
umfram laun. Kaupmáttur lágmarks-
bóta almannatrygginga var í júlí í ár
næstum tveimur þriðju hlutum (65%)
hærri en árið 2000,“ segir í greininni.
Fram kemur að lágmarksbætur al-
mannatrygginga eru nú rúmlega 196
þúsund kr. á mánuði en lágmarkslaun
eru 182 þúsund kr.
Rifjað er upp að árið 2007 var
ákveðið að hækka tekjutryggingu um
næstum helming og árið 2009 var tek-
in upp svonefnd uppbót vegna fram-
færsluviðmiðs.
Fram kemur í útreikningum SA að
kaupmáttur launa skv. launavísitölu
Hagstofunnar var 4% lægri í júlí á
þessu ári en að meðaltali árið 2006,
,,Það er afar hagstæð niðurstaða fyrir
launafólk í ljósi þess að kaupmáttur
launa almennt var mjög mikill það ár
og að landsframleiðsla á mann lækk-
aði mun meira, eða 7,5% á milli 2006
og 2010 og þjóðartekjur á mann þre-
falt meira, eða 23% á þessu tímabili.
Það er einnig athyglisvert að á þessu
þrengingartímabili hefur kaupmáttur
lægstu launa, atvinnuleysisbóta og
lágmarksbóta almannatrygginga
aukist verulega, og lífskjör þeirra
sem búa við þau kjör batnað samsvar-
andi.“
Kaupmáttur bóta hækkaði
Kaupmáttur lágmarksbóta almannatrygginga hækkaði 50% meira en kaup-
máttur launa að sögn SA Atvinnuleysisbætur hafa hækkað 20% umfram laun
Þriðjungi hærri en 2000
» Kaupmáttur atvinnuleysis-
bóta er þriðjungi (32%) hærri
á þessu ári en árið 2000.
» Kaupmáttur lágmarkslauna
var fjórðungi hærri (24%) en
árið 2000 en kaupmáttur
launa almennt um 10% hærri.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta leggst mjög vel í mig,“ segir
Þóra Einarsdóttir um Töfraflaut-
una, fyrstu óperusýningu Íslensku
óperunnar í Hörpu, sem verður
frumsýnd 22. október næstkomandi,
en Þóra fer með eitt aðalhlutverkið í
sýningunni. „Töfraflautan stendur
alltaf fyrir sínu,“ áréttar hún.
Allt kapp er lagt á að gera sýn-
inguna sem glæsilegasta og taka
nokkrir af fremstu söngvurum þjóð-
arinnar þátt í henni. Við sögu í óp-
erunni, sem Mozart skrifaði nokkr-
um mánuðum fyrir andlát sitt, koma
m.a. prinsar og prinsessur, nætur-
drottningar, drekar, dansandi dýr
og flautuleikarar af ýmsum toga.
Öllum hnútum kunnug
Þóra er ekki ókunnug Töfraflaut-
unni, hefur sungið í um 200 sýn-
ingum í Evrópu og oftast í hlutverki
prinsessunnar Paminu. Þegar hún
var í söngnámi hérlendis fyrir um
20 árum var hún í hlutverki eins
drengjanna þriggja, en hún
söng fyrst hlutverk Paminu í
London skömmu eftir að hún
lauk námi á Englandi. „Síðan
hefur þetta hlutverk fylgt
mér. Ég hef sungið það oft á
ári í mörgum mismunandi upp-
færslum undanfarin 10 ár og það
er alltaf jafnskemmtilegt,“ segir
Þóra.
Töfraflautan er gjarnan flutt á
móðurmáli sýningarlandsins og er
hér í þýðingu Þrándar Thoroddsen,
Böðvars Guðmundssonar, Þorsteins
Gylfasonar og Gunnsteins Ólafs-
sonar, en Þorgeir Tryggvason þýddi
og lagaði leiktextann sérstaklega að
íslensku uppfærslunni.
Tenging við áheyrendur
Þóra segir alltaf gaman að syngja
á tungumáli sem áheyrendur skilja,
því þannig náist betri tenging en
ella. Frumtextinn sé á þýsku og því
sé eðlilegt að syngja óperuna á
þýsku en sér hafi líka gengið mjög
vel að syngja á ensku. Mikill taltexti
sé í verkinu og því engin tilviljun að
óperan sé mjög oft þýdd á tungumál
landsins þar sem sýningar eru
hverju sinni.
Töfraflautan var fyrst færð upp í
alþýðuleikhúsi fyrir um 200 árum
og Þóru finnst gaman að taka þátt í
fyrsta óperuflutningnum í Hörpu.
„Þetta er fyrsta flokks tónlist-
arsalur en ekki leikhús og við ætl-
um að búa til frábæra sýningu,“
segir hún.
Pamina er dóttir Næturdrottn-
ingarinnar. „Hún er prinsessa sem
veit hvað hún vill og það er töggur í
henni. Hún er engin postulíns-
dúkka,“ segir Þóra og bætir við:
„Ég held ég sé farin að ná henni.“
Töfraflautan alltaf
jafnskemmtileg
Þóra Einarsdóttir í hlutverki Paminu í um 200 sýningum
Töfraflautan eftir W.A. Mozart er ein af allra vinsælustu óperum heims.
Í aðalhlutverkum sýningarinnar í Hörpu eru Þóra Einarsdóttir sem
Pamina, Garðar Thór Cortes og Finnur Bjarnason sem syngja hlutverk
Tamínós til skiptis (Finnur 22. október, 5. nóvember og 19. nóvember og
Garðar Thór 29. október, 12. nóvember og 25. nóvember), Jóhann Smári
Sævarsson sem Sarastró, Sigrún Hjálmtýsdóttir sem Næturdrottningin á
öllum sýningum nema 29. október, en þá syngur Alda Ingibergsdóttir
hlutverkið, Ágúst Ólafsson sem Papagenó, Valgerður Guðnadóttir sem
Papagena, Hulda Björk Garðarsdóttir, Auður
Gunnarsdóttir og Sigríður Ósk Kristjáns-
dóttir sem dömurnar þrjár, Snorri Wium sem
Mónóstatos, Kolbeinn Jón Ketilsson og Viðar Gunn-
arsson. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason og leikstjóri
Ágústa Skúladóttir.
Valinn maður í hverju rúmi
TÖFRAFLAUTAN EFTIR W.A. MOZART
Sigrún
Hjálmtýs-
dóttir
Ljósmynd/Gísli Egill Hrafnsson
Æfing Jóhann Smári Sævarsson, Þóra Einarsdóttir og Garðar Thór Cortes búa sig undir átökin.