Morgunblaðið - 10.09.2011, Page 46
46 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
4 1
2 8
5 3 2
3 1 8 2
6
7 3 2
3 1 7
6 4
2 8 6 3
5 7 3
4 8
3 1 5
6 3 8 9 5
9
8 9 7
7 4 1
5 9
1 7 8
3 1 6
6 5 2
7
1 2 7 8
2 9
7 3 4
1 4 2
5 8 6 1
6 1 3 7 9 2 8 5 4
7 8 2 5 4 1 3 6 9
9 4 5 3 6 8 1 2 7
3 6 1 9 5 4 7 8 2
2 5 9 8 1 7 6 4 3
4 7 8 6 2 3 9 1 5
8 9 6 2 7 5 4 3 1
5 3 4 1 8 9 2 7 6
1 2 7 4 3 6 5 9 8
1 2 6 7 9 3 4 8 5
3 9 4 8 5 6 2 1 7
8 7 5 2 4 1 9 6 3
2 6 7 3 1 8 5 9 4
5 3 1 4 6 9 7 2 8
9 4 8 5 2 7 1 3 6
7 1 3 9 8 5 6 4 2
6 8 2 1 7 4 3 5 9
4 5 9 6 3 2 8 7 1
7 5 4 1 2 8 9 3 6
1 8 3 7 9 6 4 2 5
9 6 2 5 4 3 8 7 1
6 2 7 3 1 4 5 9 8
8 3 1 9 6 5 7 4 2
4 9 5 8 7 2 6 1 3
2 7 6 4 8 1 3 5 9
5 4 8 2 3 9 1 6 7
3 1 9 6 5 7 2 8 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 10. september,
253. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Þú skalt ekki framar
hafa sólina til að lýsa þér um daga, og
tunglið skal ekki skína til að gefa þér
birtu, heldur skal Drottinn vera þér ei-
líft ljós og Guð þinn vera þér geislandi
röðull. (Jes. 60, 19.)
Víkverji ætlaði að leiða um-ræðuna um stöðu landsliðs-
þjálfara Íslands í knattspyrnu hjá
sér en getur ekki setið á sér eftir
umræðuna að undanförnu.
x x x
Þegar kemur að málefnum karla-landsliðsins eru „spekingar“ í
hverju horni. Liðinu er fundið allt
til foráttu og þjálfarinn sagður
ómögulegur. Ráða skal erlendan
þjálfara, hvað svo sem það kostar.
Nefnd hafa verið 75 milljóna króna
árslaun og þykir sumum „speking-
unum“ það ekki mikið. Hvílíkt rugl.
x x x
Sú var tíð að stuðningsmennenska liðsins Newcastle fjöl-
menntu á völlinn, þegar treyjurnar
voru hengdar út til þerris. Menn
báru virðingu fyrir liðinu og öllu
sem því viðkom, burtséð frá ár-
angri.
Þessi hugsunarháttur er til eft-
irbreytni, jafnt hjá félagsliðum og
landsliðum. Áhugafólk um fótbolta
á að hætta þessu tuði og styðja sína
menn í einu og öllu, ekki síst þegar
á brattann er að sækja.
x x x
Mörgum er tíðrætt um styrk-leikalista Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins og sífallandi
stöðu Íslands á honum. Í stuttu
máli þá er listinn ómarktækur og er
nærtækt að benda á að Norðmenn
voru heppnir að vinna Íslendinga í
Evrópuleiknum á dögunum þrátt
fyrir að meira en 100 þjóðir séu á
milli Noregs og Íslands á listanum.
x x x
Knattspyrnusambandi Íslands ervel stjórnað og núverandi
landsliðsþjálfari A-landsliðsins hef-
ur gert margt gott þrátt fyrir stöð-
ugar árásir. Liðinu hefur ekki vegn-
að sem skyldi en það er út í hött að
krossfesta þjálfarann. Allir sem
koma að landsliðinu reyna að gera
sitt besta og það kemur að því að
hlutirnir ganga upp. Jafnvel í næstu
keppni. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 kýr, 4 gelta, 7
heimabrugg, 8 hráslaga-
veður, 9 rekkja, 11 lengd-
areining, 13 grætur hátt,
14 þátttakanda, 15 flutn-
ing, 17 vistir, 20 skordýr,
22 hundur, 23 sætta sig
við, 24 hitt, 25 þjálfa.
Lóðrétt | 1 öskra, 2
ristill, 3 keyrir, 4 ræfil,
5 sár, 6 eldstæði, 10
önug, 12 lærði, 13 sjór,
15 gamla, 16 fjáðan, 18
kvendýrum, 19 jarð-
setja, 20 fjarski, 21
viljug.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 snarráður, 8 Japan, 9 áliti, 10 dót, 11 klasi, 13 tengi,
15 stökk, 18 angur, 21 ull, 22 spónn, 23 daunn, 24 viðunandi.
Lóðrétt 2 nepja, 3 rindi, 4 ásátt, 5 urinn, 8 sjúk, 7 hiti, 12 sök,
14 ein, 15 sess, 16 ölóði, 17 kunnu, 18 aldna, 19 grund, 20 rann
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Léttu spilin. V-NS.
Norður
♠9
♥1096
♦ÁD10976
♣G43
Vestur Austur
♠K64 ♠D875
♥DG753 ♥Á82
♦G832 ♦4
♣D ♣98752
Suður
♠ÁG1032
♥K4
♦K5
♣ÁK106
Suður spilar 3G.
Eddie Kantar heldur því fram að
hæfileikinn til að vinna flókin spil sé
léttur í vasa: „Það er ekki nógu mikið
af þeim,“ segir hann: „Hitt skiptir
meira máli að klúðra ekki léttu spil-
unum.“
Norður opnar á 2♦, veikum, suður
segir frá spaðanum en fær engar und-
irtektir og lýkur sögnum í 3G. Út
kemur hjarta upp á ásinn og ♥8 til
baka. Greinilega létt spil.
Ef tígullinn bregst verður laufið að
gefa fjóra slagi. Tæknilega rétta
íferðin í laufið er að leggja fyrst niður
♣Á í fjarlægri leit að blankri drottn-
ingu. Ef drottningin fellur ekki, er
best að spila litlu á tíuna og ná þannig
drottningunni annarri eða þriðju í
austur. Ekki flókið, en hversu margir
annars ágætir spilarar gætu „gleymt“
að leggja niður ♣Á áður en þeir spila
tígli á blindan?
10. september 1877
Framfari, fyrsta blað Íslend-
inga í Vesturheimi kom út.
Áratug síðar hófst útgáfa
Heimskringlu og Lögbergs.
10. september 1911
Minnisvarði um Jón Sigurðs-
son var afhjúpaður við Stjórn-
arráðshúsið við Lækjartorg en
þá voru rúm hundrað ár frá
fæðingu Jóns. Styttan, sem er
eftir Einar Jónsson og var
gerð „fyrir samskot lands-
manna,“ eins og sagði í Árbók-
um Reykjavíkur, var flutt á
Austurvöll árið 1931.
10. september 1942
Þýsk sprengjuflugvél skaut á
tvo bæi í Breiðdalsvík og að
fimm vélbátum úti fyrir Aust-
urlandi. Skemmdir urðu á hús-
um og bátum en fólk sakaði
ekki.
10. september 1998
Háhyrningurinn Keiko var
fluttur með stórri herflutn-
ingavél frá Bandaríkjunum og
til Vestmannaeyja þar sem
honum var komið fyrir í Klett-
svík. Keiko hafði verið fang-
aður hér við land tæpum
tveimur áratugum áður, en
hann varð frægur þegar hann
kom fram í kvikmyndum.
Keikó drapst við Noreg í des-
ember 2003.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Kristján Eldjárn Hjartarson á Tjörn í Svarfaðardal
fagnar 55 ára afmæli sínu í dag. Hátíð er í Svarf-
aðardal um helgina því fé verður smalað af
Sveinsstaðaafrétti í dag og réttað í Tungurétt á
morgun. Kristján lætur sig yfirleitt ekki vanta í
göngur og er í Gangnamannafélagi Sveinsstaðaaf-
réttar, „sem er mikið menningarfélag og sér um
göngur í okkar afrétti. En ég verð að sleppa því
þetta árið. Það gerist ekki oft að ég þurfi að sleppa
göngum en ég verð að beygja mig undir það í þetta
skipti,“ segir hann. Kristján slasaðist alvarlega í
umferðarslysi í júní sl. „Það lögðust saman hryggj-
arliðir og ég hef þurft að kljást við það í sumar að ég þarf annaðhvort
að liggja eða standa en má ekki setjast niður. En þetta er allt að koma,“
segir Kristján. Hann er staðráðinn í að reyna að komast í Tungurétt á
morgun. „Það er alltaf mikil hátíð og gleði hér í kringum göngur og ég
hlakka til helgarinnar,“ segir hann. Kristján og Kristjana Arngríms-
dóttir eiginkona hans eru landsþekkt fyrir söng og hljóðfæraleik. „Við
höfum lítið getað sinnt þessu í sumar eftir slysið en við tökum upp
þráðinn um leið og við getum farið að keyra á milli staða.“ omfr@mbl.is
Kristján Eldjárn Hjartarson er 55 ára í dag
Hlakka til helgarinnar
Hlutavelta
Alexandra Björg
Jóhannesdóttir og
Móheiður Þórð-
ardóttir héldu tom-
bólu við Bónus í
Hveragerði og
söfnuðu 3.500 krón-
um til styrktar
Rauða krossinum.
Flóðogfjara
10. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.13 3,5 11.21 0,7 17.32 3,8 23.46 0,6 6.36 20.14
Ísafjörður 1.20 0,5 7.18 1,9 13.27 0,5 19.30 2,2 6.37 20.24
Siglufjörður 3.23 0,3 9.47 1,2 15.28 0,5 21.44 1,4 6.19 20.07
Djúpivogur 2.16 1,8 8.26 0,5 14.49 2,0 20.54 0,6 6.05 19.45
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ekki hrökkva frá þótt aðrir líti til þín
um hugmyndir og framkvæmd mála. Gættu
þess að ganga ekki of langt í átakinu í rækt-
inni. Góðir hlutir gerast hægt.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þótt rétt sé að gefa sér tíma til að
kanna málavöxtu, kemur alltaf að því að það
verður að taka ákvörðun.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Regnið er yndislegt í augum garð-
yrkjumannsins. Reyndu að njóta þess sem
þú átt og býrð við. Taktu þér tak og gerðu
garðinn kláran fyrir veturinn.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú þarft að einbeita þér að heimilinu
og fjölskyldunni í dag. Hafðu engar áhyggjur
á meðan þú sinnir þér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert hlýleg/ur og samúðarfull/ur í
garð allra sem þú hittir í dag. Allt gengur
betur ef takturinn er rólegur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þér gefst tækifæri til að kynnast nýju
fólki, og það lætur þér líða stórkostlega. Að
lykta af blómi er að upplifa augnablik og inn-
tak sköpunarinnar.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú hefur frumlegar hugmyndir um það
hvernig þú getir aukið tekjur þínar. Hvað svo
sem það er sem amar að þá mun það hverfa.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Leitaðu upplýsinga hjá öðrum
um þau mál sem þú veist að þig vantar vitn-
eskju um. Frá og með deginum í dag ættirðu
að geta horft fram á veginn.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert yfirleitt í hlutverki lítillátu
og auðmjúku manngerðarinnar, en býrð nán-
ast yfir hrokafullu sjálfstrausti þessa dag-
ana. Þig langar að setjast í helgan stein
snemma.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú þarft að eiga samskipti við
fastheldinn einstakling, ekki gleyma að vera
kurteis. Taktu verkefnum með opnum huga.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Stundum er besta aðferðin til
þess að létta af sér þrýstingi að gefast upp.
Ef þú hefur einhverjar hugmyndir varðandi
eitthvað mikilvægt skaltu bera þær undir
aðra.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það hentar þér best að vinna ein/n í
dag því aðrir munu bara tefja þig og jafnvel
eyðileggja fyrir þér. Slakaðu á í kvöld.
Stjörnuspá
Þórdís Vilborg
Sigfúsdóttir til
heimilis í Vest-
urvegi 5 í Vest-
mannaeyjum, er
75 ára í dag, 10.
september. Af-
mælisbarnið er
að heiman.
75 ára
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. 0-0 Rf6 5.
d4 Bxd4 6. Rxd4 Rxd4 7. Bg5 De7 8. Rc3
c6 9. f4 Dc5 10. Bxf7+ Kxf7 11. fxe5 Re6+
12. Kh1 Dxe5 13. Bxf6 gxf6 14. Hf5 Dd4
15. Dh5+ Ke7 16. Hd1 Db4 17. e5 Kd8 18.
exf6 Dxb2 19. Df7 He8 20. Re4 Dxc2 21.
He1 Rd4 22. Hff1 Hxe4 23. De7+ Hxe7
24. fxe7+ Kc7 25. e8=D Re6 26. Hf7 Kb6
27. De7 a5 28. Hxh7 Dxa2 29. h4 Db2 30.
Hh5 Db4 31. Dxb4+ axb4 32. Hh8 Kc7 33.
h5 Ha5 34. g4 Hg5 35. Hg1 b3 36. h6
Staðan kom upp í opnum flokki heims-
meistaramóts 20 ára og yngri sem lauk
fyrir skömmu í Chennai á Indlandi.
Bandaríski stórmeistarinn Ray Robson
(2.560) hafði um langa hríð haft gjörtapað
tafl gegn indverska alþjóðlega meistaran-
um Sundar Shyam (2.478) en sá síðar-
nefndi glutraði skákinni niður í síðasta
leik, 36. …b3-b2. Sá bandaríski nýtti sér
þetta: 37. Hxc8+! Kxc8 38. h7 Hxg4 39.
h8=D+ Rd8 40. Dxb2 Hh4+ 41. Kg2 og
hvítur innbyrti vinninginn skömmu síðar.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik