Morgunblaðið - 10.09.2011, Síða 50

Morgunblaðið - 10.09.2011, Síða 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011 Hamtónleikar hafa alltafverið annað og meiraen bara tónleikar. Þeg-ar þessi besta rokk- hljómsveit Íslandssögunnar kemur fram er um messu að ræða. Helgi- athöfn. Eitthvað heilagt. Ég þykist vita að margir þeir sem lesa þetta nú viti upp á hár hvað ég er að meina. Ham, eins og bestu hljóm- sveitir sögunnar, nær tengingu við eitthvað annað og meira en bara samsetta hljóma og hávaða. Það er líka merkilegt að upplifa að þessi vissa, þessi tilfinning er að erfast niður um kynslóðirnar. Mér tuttugu árum yngri menn standa nú opinmynntir við skör meist- aranna fremst við sviðið og gefa sig fullkomlega á vald hinu guð- dómlega rokki – nákvæmlega eins og maður sjálfur gerði á sínum tíma. Í pökkuðum sal Nasa var að finna ungviði, gömlu hundana, enn eldri hunda og svo hæfilega rokk- skaddaða skrifstofumenn. Ham fer víða. „Ham!!! Ham!!! Ham!!! Ham!!! Ham!!!“ var kyrjað af krafti og Ham-liðar gengu að lokum ábúð- arfullir í salinn og settu sig í stell- ingar. Fyrsta lagið, „Alcoholismus chronicus“ vatt sér af stað; þyngslaleg og drynjandi stemma þar sem Bakkus fær rækilega á baukinn frá Hertoganum og hans mönnum. Næsta lag var svo vel til fundið en trukkað var af krafti í gegnum hið frábæra „Auður Sif“ af frumburði Ham, stuttskífunni mögnuðu Hold. Við tók svo vel heppnuð stemningsuppbygging, öll lög plötunnar nýju voru spiluð í bland við eldri gæðinga og af þeim er svo sannarlega nóg. Það hefur komið fram hér að ný plata Ham er ekkert minna en stórkosleg og á því var glæsilega hnekkt þessa svitastokknu kvöldstund. Það er sama hvort Ham er í hæga eða hraða gírnum, þetta svínvirkar allt saman. „Sviksemi“, „Dauð hóra“, „Ingimar“ og „Einskis son“ hljóma einhvern veginn eins og þau hafi alltaf verið í glæstum lagasarpi Ham. Stemningin lá svo línulega upp á við eftir því sem á leið kvöld- ið. „Partýbær“ setti allt á annan endann að vanda (djöfull er það geðveikt lag) og „Animalia“ og „Musculus“ orkuðu á svipaðan hátt. Pytturinn framan við sviðið var orðinn sæmilega hams-laus þegar hér var komið sögu, aðdá- endur dásamlega týndir í heilnæm- ustu rokksköddun sem er að finna hér á landi. Er það vel. Ham-liðar stóðu sína plikt 100% og Óttarr Proppé sinnti lagakynn- ingum af sinni alkunnu smekkvísi. Látum hann eiga lokaorðin, með tilvitnun í hið stórkostlega lag „Veisla hertogans“: „ …en í kvöld munum við drekka, í kvöld munum við dansa. Svartklæddir herrar og frúr í nafni hertogans!!!“ Nasa Ham bbbbb Útgáfutónleikar Ham vegna plöt- unnar Svik, harmur og dauði. Fimmtudagurinn 8. september. Swords of Chaos hituðu upp. ARNAR EGGERT THORODDSEN TÓNLEIKAR „Við erum Ham … þið eruð Ham“ Morgunblaðið/Eggert Messa „...þegar þessi besta rokkhljómsveit Íslandssögunnar kemur fram er um messu að ræða.“ Bassinn S. Björn Blöndal í sveiflu. Meðlimir allir st́óðu sína plikt 100% og gott betur en það meira að segja. Hertoginn Bakkus fékk rækilega á baukinn frá Hertog- anum og hans mönnum í „Alcoholismus chronicus“ . Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Hljómsveitin Grafík var meðal helstu sveita níunda áratugarins. Hún var stofnuð af Rafni Jónssyni og Rúnari Þórissyni á Ísafirði og gaf út sína fyrstu plötu, Út í kuld- ann, árið 1981. Árin 1984 til 1987 naut hún mikilla vinsælda hérlendis og átti mörg vinsæl lög, þau allra þekktustu líklega „Mér finnst rign- ingin góð“ og „Presley“. Endurreisn Grafík hefur verið endurreist nokkrum sinnum síðan hún lagði fyrst upp laupana og nú er von á veglegum safnpakka fyrir jólin sem inniheldur m.a. tvö ný lög. Mun hljómsveitin halda tónleika vegna þessa í haust að sögn Rúnars. „Þetta hefur staðið til allt frá árinu 2004,“ útskýrir hann. „Þá komum við saman til að fagna tutt- ugu ára afmæli plötunnar Get ég tekið cjéns með tónleikum. Rabbi (Rafn Jónsson) var þá með okkur en svo lést hann skömmu fyrir tón- leikana. Í samráði við fjölskyldu Rabba var afráðið að halda tón- leikana engu að síður, enda hafði þetta ekki síst verið að hans frum- kvæði. Þá kom upp sú hugmynd að gera tónleikamynd og það þróaðist svo út í heimildarmynd.“ Um tvöfalda geislaplötu verður að ræða og mun heimildarmyndin fylgja með í pakkanum, en hún verður á bilinu 40 til 60 mínútur. Bjarni Grímsson, Frosti Runólfsson og Jónatan Garðarsson hafa verið að vinna myndina, en tveir þeir fyrstnefndu unnu heimildarmynd- ina um Hjálma, Hærra ég og þú. „Þetta voru fimm plötur sem Grafík gaf út á sínum tíma og það er frekar að við séum að tína „worst of“ af þeim en að þetta verði „best of“,“ segir Rúnar og hlær. „Þetta verður því myndarlegur þverskurður en alls verða þarna 32 lög, 16 lög á hvorum diski.“ Rúnar, Helgi Björns söngvari, Egill Rafnsson, sonur Rabba og Jakob Smári Magnússon bassaleik- ari smelltu sér síðan í hljóðver í mánuðinum og tóku upp þrjú lög en tvö þeirra fara inn á safnplöturnar. „Við tókum upp í Hljóðrita þar sem við unnum þrjár síðustu Graf- íkplöturnar. Það er svo merkilegt, að það var árið 2002 eða 2003, skömmu áður en Rabbi kveður okk- ur að við hittumst þrír, ég, hann og Helgi og semjum einhver átta lög saman. Það var ekkert rætt hvað ætti að gera við þetta, hvort þetta yrði plata eða hvað. En þessi lög mynda a.m.k. grunninn að þessu nýja efni sem við vorum að taka upp.“ Grafík gefur út  Tvöföld safnplata, heimildarmynd og tvö ný lög á leiðinni Í þá gömlu... Grafík-liðar í árdaga. –– Meira fyrir lesendur Morgunblaðið gefur út glæsi- legt sérblað um Heimili og hönnun föstudaginn 16. sept. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 12. sept. MEÐAL EFNIS: Ný og spennandi hönnunInnlit á heimili Lýsing Skipulag á heimilinu Stofan Eldhúsið Baðið Svefnherbergið Barnaherbergið Málning og litir Gardínur, púðar, teppi og mottur Blóm, vasar og kerti Innanhússhönnun Þjófavarnir Ásamt fullt af öðru spennandi efni um heimili, hönnun og lífsstíl NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569 1105 Í blaðinu verða kynntir geysimargir möguleikar sem í boði eru fyrir þá sem eru að huga að breytingar á heimilum sínum. Skoðuð verða húsgögn í stofu, eldhús, svefnherbergi og bað, litir og lýsing ásamt mörgu öðru sem er huggulegt fyrir veturinn. Heimili & hönnun SÉRBLAÐSÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.