Morgunblaðið - 13.09.2011, Page 7
misseri er stór hluti þess hagnaðar
tilkominn vegna endurmats á lána-
bók á fyrirtækjasviði bankans. Arð-
semi af reglulegri starfsemi er ekki
ásættanleg til lengri tíma litið,“ segir
ennfremur í tilkynningu bankans.
Kom verulega á óvart
Friðbert Traustason, formaður
Samtaka starfsmanna fjármálafyrir-
tækja, gagnrýnir Arion banka fyrir
það hvernig staðið var að uppsögn-
unum. Enginn aðdragandi hafi verið
að þeim og hann fengið að vita af
þessu í gærmorgun, um það leyti
sem uppsagnarbréfin voru afhent.
Friðbert segir að miðað við hvað
uppsagnirnar á viðskiptabankasviði
séu hlutfallslegar miklar, eða um 6%,
þá sé aðdragandinn yfirleitt lengri.
Samkvæmt lögum um hópuppsagnir
beri einnig að tilkynna um uppsögn
30 dögum áður en hún tekur gildi.
Um uppsagnirnar sjálfar segir
Friðbert þær hafa komið sér veru-
lega á óvart. Bankinn hafi smátt og
smátt verið að fækka fólki gegnum
starfsmannaveltu, fækka útibúum
og starfsmenn farið á eftirlaun.
„Við héldum að það yrði látið
duga. Það er eðlileg krafa að stönd-
ugri fyrirtæki landsins séu ekki að
standa í hópuppsögnum. Ríkið hefur
haldið aftur af sér í uppsögnum og
hið sama ættu stóru fyrirtækin að
gera í þessu ástandi,“ segir Friðbert.
Hann telur skýringar Arion banka
á uppsögnunum einnig vera „sér-
kennilegar“. Sér vitanlega hafi
meira en nóg verið að gera á við-
skiptabankasviði við lánafyrir-
greiðslu hjá fyrirtækjum og einstak-
lingum. Könnun hafi t.d. sýnt að
ákveðnir hópar innan bankans væru
að vinna langt umfram vinnuskyldu.
Jafnframt sé skortur á lögfræðing-
um og viðskiptafræðingum innan
bankanna.
Morgunblaðið/Eggert
Arion banki Þrátt fyrir góða afkomu segir bankinn upp 57 starfsmönnum.
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Engar uppsagnir eru fyrirhugaðar á
næstunni í Íslandsbanka og Lands-
bankanum, en í gær var tæplega 60
starfsmönnum Arion banka sagt upp
störfum.
„Uppsagnir eru ekki fyrirhugaðar
svo ég viti til,“ segir Steinþór Páls-
son, bankastjóri Landsbanka Ís-
lands. „Hugsanlega þurfum við að
fara í einhverjar aðgerðir í framtíð-
inni, en á þessari stundu er ekkert
slíkt í kortunum.“
Í fréttatilkynningu, sem Arion
banki sendi frá sér í gær segir að
rekstur íslenska fjármálakerfisins sé
of kostnaðarsamur. Steinþór segist
að mörgu leyti geta tekið undir það.
„Já, hann (kostnaðurinn) er tölu-
verður. En við erum með fólk í vinnu
sem býr yfir mikilli þekkingu og það
er dýrmætt að halda í hana,“ segir
Steinþór. Hann segir að um 20
starfsmönnum hafi verið boðin
starfslok í sumar, þeir hafi ýmist
verið komnir með full lífeyrisréttindi
eða verið við það að fá þau.
„Íslandsbanki er sífellt að leita
hagræðingar í rekstri. Engar
ákvarðanir hafa verið teknar um
breytingar á fjölda starfsfólks hjá
bankanum,“ segir Birna Einarsdótt-
ir, bankastjóri Íslandsbanka.
Uppsagnir eru
ekki á döfinni
Engin slík áform
hjá Landsbanka
og Íslandsbanka
Birna Einarsdóttir Steinþór Pálsson
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 | volvo.is
VOLVO XC70 DÍSIL VOLVO XC60 DÍSIL VOLVO XC90 DÍSIL
Notar aðeins 5,6 lítra á
hundraðið í langkeyrslu.
Það fer ekki á milli mála
að hér er ekta Volvo á
ferð. Kjóstu einstakan
sportjeppa og finndu fyrir
sterkri nærveru Volvo
XC60 AWD.
Verð frá 8.490.000 kr.
Notar aðeins 5,7 lítra á
hundraðið í langkeyrslu.
Áttu erfitt með að velja
málamiðlun? Söðlaðu
um. Vertu hvoru tveggja
með Volvo XC70 AWD.
Verð frá 8.890.000 kr.
Notar aðeins 6,8 lítra á
hundraðið í langkeyrslu.
Volvo XC90 AWD er
birtingarmynd heilbrigðrar
hugsunar og áratuga
rannsókna á öryggi og
yfirburðatækni. Veldu
heilbrigði.
Verð frá 10.890.000 kr.
Notar aðeins 4,1 lítra á
hundraðið í langkeyrslu.
Upplifðu þægindi og
munað. Volvo V70 er einn
þægilegasti bíll sem fæst.
Sjáðu hvað herragarðs-
vagninn gerir fyrir þig.
Verð frá 6.190.000 kr.
Frítt í bílastæði
í Reykjavík.
Nýr Volvo S60 er vitsmunaleg leið til
að tækla spennu og gleði, af öryggi.
Verð frá 5.690.000 kr.
Skoðaðu úrval sparneytinna dísilbíla frá Volvo.
Veldu Volvo og lágmarks losun CO2.
Veldu Volvo og lágmarks eldsneytisnotkun.
Berðu saman verð og búnað Volvo við aðra lúxusbíla.
Veldu nýjan Volvo sem fær frítt í stæði.
Veldu Volvo R-Design, sportútfærslu.
Sérpantaðu nýjan Volvo eins og þú vilt hafa hann.
Spyrðu um framlengda verksmiðjuábyrgð í allt að 5 ár.
Öryggi er lúxus. Lifðu í lúxus. Veldu Volvo.
VOLVO V70 DÍSIL