Morgunblaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011
Segir trúnaðinn fyrir bí
Telur að afar fáir Suðurnesjamenn treysti nú orðum ríkisstjórnarinnar
Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, segir
ljóst að þær seinkanir sem hafi orðið á fram-
kvæmdum í Helguvík megi rekja til fjármálaráð-
herra, Steingríms J. Sigfússonar, sem hafi verið
að plotta á bak við tjöldin. Vísar hann þar til frétta
Morgunblaðsins af aðdraganda kaupa Magma
Energy Sweden A.B. á hlut HS Orku.
„Fjármálaráðherra er að leggja að því fyrirtæki
að finna sér aðra samstarfsaðila. Með því er verið
að fara á bak við okkur því við höfum treyst á að
HS Orka komi sterk inn með orku fyrir álverið.
Það hefur alltaf staðið til og við treystum því
ennþá.“
Lýsir vonbrigðum með ríkisstjórnina
Norðurál og HS Orka hafi farið saman af stað
með verkefnið en það hafi helst verið deilt um hve
mikið orkumagn HS Orka ætti að leggja í það. Úr-
slit í gerðardómi liggi fyrir í lok september en þar
greinir Norðurál á við HS Orku og Orkuveitu
Reykjavíkur vegna orkusölusamninga um álver í
Helguvík.
„Við höfum orðið fyrir miklum vonbrigðum með
stöðuna á ríkisstjórnarheimilinu er varðar Suð-
urnes. Það virðist vera alveg sama hvaða mál
koma upp varðandi okkur, þau eru öll stöðvuð,“
segir Ásmundur. Sá trúnaður sem var, og var þó
aldrei mikill, sé fyrir bí.
Ásmundur segist telja að afar fáir Suðurnesja-
menn treysti nú orðum ríkisstjórnarinnar eftir
það sem fram sé komið núna. Það sé alveg ljóst.
„Þegar þessar staðreyndir blasa við er maður
hugsi yfir stöðu þessa fólks. Bæði fjármálaráð-
herra gagnvart sínu fólki og auðvitað gagnvart
okkur á Suðurnesjum, segir Ásmundur. „Við erum
búin að vera að berjast í þessum atvinnumálum
fyrir daufum eyrum ríkisstjórnarinnar.“
Bíða eftir að geta hafið framkvæmdir
Ásmundur segist upplifa stöðuna þannig að það
hafi verið farið á bak við sveitarstjórnarmenn.
Fólk á Suðurnesjum sé undrandi en upplifi þetta í
raun sem mikla höfnun frá ríkisstjórninni.
Ásmundur segir Norðurál tilbúið að hefja fram-
kvæmdir við álverið í Helguvík af fullum krafti um
leið og búið sé að tryggja 150 megavött sem sam-
svari fyrsta áfanga af þremur. Áætluð heildar-
orkuþörf er um 450 megavött.
Hann telur að ríkisstjórnin hefði getað veitt
leyfi til virkjana og þannig komið vinnu við álverið
í gang. Suðurnesjamenn hafi beðið of lengi, sam-
félagið sé orðið þreytt á biðinni.
sigrunrosa@mbl.is
„Þegar þessar stað-
reyndir blasa við er
maður hugsi yfir
stöðu þessa fólks.“
Ásmundur Friðriksson
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir að Björn Sigurðs-
son rútubílstjóri hafi aldrei nefnt neina upphæð við Vega-
gerðina og því hafi það verið þeirra mat að greiða honum
300 þúsund krónur í bætur fyrir það tjón sem hann lenti í í
Múlakvísl í sumar. Eins og kom fram í Morgunblaðinu í
gær er Björn ósáttur við upphæðina sem Vegagerðin býð-
ur honum en rúta hans fór á bólakaf í Múlakvísl þegar
hann var fenginn til að ferja fólk yfir ána eftir að brúin fór í
sundur 9. júlí sl. Hann segir tjónið á rútunni líklega vera
upp á 4,6 milljónir.
„Við buðum honum 900.000 kr. í heildina fyrir hans þátt,
hann vinnur í um tvo daga og lendir svo í þessu óhappi. Við
höfum annars vegar verið að meta hans kostnað við flutn-
ingana á meðan hann var í þeim og að reyna að taka ein-
hvern þátt í tjóninu. En hann hefur aldrei nefnt neinar töl-
ur við okkur,“ segir Hreinn. Vegagerðin bauð Birni 600
þúsund krónur fyrir vinnuna og 300 þúsund krónur fyrir
olíu og viðgerðir á rútunni. ingveldur@mbl.is
Hefur aldrei nefnt neinar
tölur við Vegagerðina
Töldu þrjú hundruð þúsund
krónur bæta tjónið að hluta
Nýr fundur hefur
ekki verið boð-
aður í kjaradeilu
Flugfreyjufélags
Íslands, en at-
kvæðagreiðsla
um verkfall flug-
freyja hjá Ice-
landair hefst á
morgun og stend-
ur fram á föstu-
dag. Fyrirtækið
segir ótímabært
að huga að ráðstöfunum vegna
þessa.
Verði verkfallsboðun samþykkt,
leggja flugfreyjurnar niður störf 26.
og 27. september, sem er eftir tæpar
tvær vikur, og 3. og 4. október.
Sigrún Jónsdóttir, formaður
Flugfreyjufélags Íslands, segir að
flugfreyjur séu ákveðnar í að standa
saman. „En hópurinn er auðvitað
ekki sáttur við að þurfa að grípa til
þessara aðgerða,“ segir Sigrún.
Guðjón Arngrímssson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, segir að ekki
sé farið að gera neinar ráðstafanir
vegna hugsanlegrar röskunar á
flugi. „Við höfum bara fulla trú á að
það verði samið.“ annalilja@mbl.is
Kosið verður
um verkfall
Flugfreyjur Ice-
landair kjósa um
verkfall á morgun.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Töluvert öskufok hefur verið á
miðju sunnanverðu landinu und-
anfarna daga, en talið er að um sé
að ræða gosösku úr báðum gosum.
Víða sjá Sunnlendingar ekki til
fjalla sökum öskufoks, en ekki er
talið að gróður beri skaða af. Á höf-
uðborgarsvæðinu er einnig svifryk
sem kemur úr jökulleirum suður af
Langjökli.
Í gær höfðu íbúar á Rangár-
völlum ekki séð til fjalla í þrjá daga
vegna ösku og moldarmisturs. „Ég
held að saman við þetta blandist
uppblástur, það hefur verið mjög
þurrt í talsverðan tíma,“ segir
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri. „Þessi stöðuga norðan- og
norðvestanátt rífur upp jarðveg,
þar sem jarðvegurinn er opinn.“
Að sögn Sveins er ástandið mun
verra á þeim stöðum þar sem ösku-
fall var verst, t.d. undir Eyjafjöllum
og í Fljótshlíð. „Þetta minnir okkur
á að við eigum ennþá eftir að greiða
skuld okkar við landið,“ segir hann.
Það þarf úrkomu
„Vindurinn á að ganga niður á
morgun, þannig að vonandi minnk-
ar öskufokið þá. En um miðja viku
eru meiri úrkomulíkur, þannig að
það ætti að duga til að slá á þetta,“
segir Haraldur Eiríksson, veður-
fræðingur á Veðurstofu Íslands.
„Það þarf úrkomu til að binda
þetta. Þó það hefðu ekki verið nein
eldgos, þá hefðum við engu að síður
fengið moldrok“
Haraldur segist ekki hafa fengið
fregnir af því að öskufokið hafi
valdið skaða. „En sjálfsagt veldur
þetta einhverjum óþægindum.“
Sáu ekki til fjalla í þrjá daga
Öskufok og
svifryk byrgir
landsmönnum sýn
Gjóskufok Þéttur og afmarkaður straumur gjósku- og jarðvegsfoks barst yfir landið sunnan- og vestanvert frá
Grímsvötnum og uppblásturssvæðum sunnan Langjökuls. Það kemur vel í ljós í þessari gervitunglamynd.
„Matið er ekki komið. Það tekur að-
eins lengri tíma að skoða bílinn en
búist var við. Það er nokkuð meira
að honum en við héldum,“ segir
Björn Sigurðsson, bílstjóri rútunnar
sem fór í Múlakvísl. Matsmenn frá
Sjóvá og Bifreiðaskoðun fóru til Vík-
ur til að meta tjónið á rútunni á
föstudaginn og býst Björn við nið-
urstöðunum í vikunni.
Rútan er 8́1 módel og orðin of gömul til að vera
annað en skyldutryggð að sögn Björns. Trygging-
arnar bæta því ekki tjónið á rútunni en farþega-
trygging bætti allt tjón á farangri farþeganna.
Aðeins skyldutryggð
BJÖRN BÍLSTJÓRI
Björn
Sigurðsson
Gólfþjónustan er með sérlausnir
í smíði borða fyrir fyrirtæki og heimili.
Við smíðum borð algjörlega eftir þínu
máli svo sem borðstofuborð, sófaborð
og fundarborð.
SÉRSMÍÐI ÚR
PARKETI
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225
Illugi Gunnars-
son, þingmaður
Sjálfstæðis-
flokksins, sem
sat í stjórn Sjóðs
9, hyggst snúa
aftur á þing í
kjölfar álits lög-
mannsstofunnar
Lex. Illugi tók
sér leyfi frá
þingstörfum eft-
ir að rannsóknarnefndin vísaði
málum peningamarkaðssjóða til
athugunar hjá sérstökum saksókn-
ara. Í áliti Lex kemur fram að
miðað við þær upplýsingar sem
liggja fyrir sé ekki sjáanlegt að
neitt hafi verið athugavert við
fjárfestingarheimildir, fjárfest-
ingastefnu eða samsetningu eigna
Sjóðs 9 hjá Glitni banka miðað við
þágildandi lög og reglur.
Rannsókn sérstaks saksóknara á
málefnum Sjóðs 9 stendur enn yf-
ir. „Þetta mál er skammt á veg
komið, við erum með gífurlegan
fjölda mála og þetta er ekki eitt
þeirra mála sem lengst eru komin
hjá embættinu,“ segir Ólafur Þór
Hauksson, sérstakur saksóknari.
annalilja@mbl.is
Illugi tekur
á ný sæti
á Alþingi
Illugi Gunnarsson