Morgunblaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011 Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Samkvæmt þjóðhagsreikningi Hag- stofunnar fyrir árið 2010 jókst halla- rekstur ríkissjóðs um tuttugu millj- arða og fór úr því að vera 123 milljarðar árið 2009 yfir í að vera 143 milljarðar í fyrra. Hallinn nam 9,3% af landsframleiðslu í fyrra og jókst úr því að vera 8,3% árið á undan, þvert á markmið efnahagsáætlunar stjórn- valda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hagstofan birti þjóðhagsreiking síð- asta árs í gær en samkvæmt honum nam samanlagður tekjuhalli hins op- inbera, það er að segja sú starfsemi ríkisins og sveitarfélaga sem er fjár- mögnuð með skattheimtu, 155 millj- örðum í fyrra eða sem svarar 10% af landsframleiðslu en það er svipaður hallarekstur og var hjá gríska ríkinu í fyrra. Niðurstaða þjóðhagsreikningsins er umtalsvert verri en ríkisreiknings síðasta árs. Hann sýndi halla upp á 123 milljarða en mismunurinn skýr- ist að stærstum hluta af því að ein- skiptishagnaður ríkisins vegna Avens-viðskiptanna svokölluðu kem- ur ekki fram í þjóðhagsreikningnum. Rétt er að taka fram að stofnanir á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn horfa fyrst og fremst á niðurstöðu þjóðhagsreikninga þegar kemur að mælingum á árangri í ríkisfjármál- um. Samkvæmt þjóðhagsreikningi juk- ust heildartekjur ríkisins um 23 millj- arða í fyrra. Skatttekjur ríkissjóðs hækkuðu um tæpa 15 milljarða og munaði þar mestu um auknar skatt- tekjur af vöru og þjónustu og hærri eignaskatta. Á sama tíma jukust út- gjöld ríkissjóðs verulega eða um 42 milljarða. Eins og fram kemur í út- gáfu Hagstofunnar um þjóðhags- reikninginn þá skýrist hækkunin að stórum hluta af 55,5 milljarða króna aukningu í áföllnum ríkisábyrgðum vegna bankanna og 33 milljarða eig- infjárframlagi til Íbúðalánasjóðs. Blikur á lofti Það að hallarekstur ríkissjóðs skuli beinlínis aukast milli ára á meðan inntak efnahagsáætlunar stjórnvalda og AGS er að koma böndum á skulda- söfnun ríkisins og gera ríkisfjármálin sjálfbær hlýtur að teljast áhyggju- efni. Þrátt fyrir að hægt sé að færa rök fyrir því að batamerki sjáist á ríkisrekstrinum milli ára að undan- skildum áföllnum kostnaði vegna rík- isábyrgða og eiginfjárframlags til Íbúðalánasjóðs vegur á móti að ekki er enn útséð með frekari útgjöld rík- issjóðs vegna sambærilegra mála. Þannig má nefna að kostnaður rík- isins vegna yfirtöku Landsbankans á SpKef liggur ekki enn fyrir, en full- yrt hefur verið að hann gæti hlaupið á tugum milljarða króna. Einnig er ljóst að Íbúðalánasjóður mun þurfa frekari fjárframlög frá ríkinu í ár. Falli þessi kostnaður á ríkið í ár eru litlar líkur á því að markmið fjárlaga um tæpra 40 milljarða króna halla- rekstur í ár náist. Eins og fram kom í afkomutölum ríkissjóðs fyrir fyrstu sjö mánuði ársins er hallinn kominn í 64 millj- arða í ár og þar af leiðandi þurfa tekjur ríkisins að skila sér inn í stór- felldum mæli umfram gjöld það sem eftir lifir árs eigi markmið fjárlaga að nást. Það yrði þvert á spár AGS en í sjöttu endurskoðun efnahags- áætlunarinnar kemur fram að útlit er fyrir að útgjaldahlið ríkissjóðs eigi eftir að þyngjast á síðari helm- ingi ársins. Hallarekstur jókst þvert á áætlanir stjórnvalda og AGS Morgunblaðið/Ómar Fjárlagagat Fjárlagagatið stækkaði frá árinu 2009 til 2010 þvert á mark- mið efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þjóðhagsreikningur » Hallinn á rekstri ríkissjóðs var 143 milljarðar króna í fyrra eða sem nemur 9,3% af lands- framleiðslu. » Hallareksturinn jókst um 20 milljarða milli ára þvert á markmið efnahagsáætlunar stjórnvalda og AGS. Hallinn var 8,3% af landsframleiðslu árið 2009.  Fjárlagahalli ríkissjóðs í fyrra nam 9,3% af landsframleiðslu  Jókst um 20 milljarða Sigurður Kári Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, segir reglur Seðlabankans um gjaldeyris- höft skorta lagastoð. Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp til laga um gjald- eyrismál, sem ætlað er að festa gjaldeyrishöftin í sessi, en hingað til hefur Seðlabankanum verið heimilað að setja reglur og innleiða gjaldeyr- ishöft að fengnu samþykki viðskipta- ráðherra. Í grein í Morgunblaðinu í gær sagði Birgir Tjörvi Pétursson lög- maður að engar viðurlagaheimildir hefðu verið lögfestar, samhliða lög- unum, og Alþingi hefði verið óheimilt samkvæmt stjórnarskrá að fram- selja vald til þess að setja refsireglur til Seðlabankans. Sigurður Kári segir að ástæðan fyrir því að frumvarpið, sem byggist í grunninn á reglum Seðlabankans, sé sett fram núna sé tvíþætt. Annars vegar séu gjaldeyrishöftin að renna út og hins vegar hafi stjórnin áttað sig á því að lagastoð skorti fyrir regl- unum. „Ég held að stjórnarflokkarn- ir séu í verulegum vanda ef í ljós kemur að reglur Seðlabankans hafi ekki haft lagastoð. Til dæmis hefur Seðlabankinn verið með fjölmörg mál til rannsóknar vegna meintra brota á gjaldeyrislögum, eignir ein- staklinga hafa verið kyrrsettar vegna þessa. Ef staðan er sú að gjaldeyrishöftin skorti lagastoð, þá þarf að kanna hvort framfylgni og framkvæmd þessara reglna kynni að hafa bakað ríkissjóði skaðabóta- skyldu, ekki bara vegna þeirra sem hafa þurft að sæta rannsókn eða kyrrsetningu eigna, heldur líka vegna allra þeirra takmarkana á ráð- stöfunarrétti manna yfir eigum sín- um sem gjaldeyrishöftin hafa leitt af sér,“ segir Sigurður Kári. „Ég held að ríkisstjórninni og Seðlabankanum sé óhætt að búa sig undir að hafa valdið bæði ríkissjóði, borgurum og fyrirtækjum þessa lands stórkost- legu tjóni með því að standa ekki rétt að málum við setningu reglnanna,“ segir hann. Leitað var eftir viðbrögðum Seðla- banka Íslands við vinnslu fréttarinn- ar, en svör bárust ekki í gær. Einnig var leitað viðbragða efnahags- og viðskiptaráðherra, án árangurs. Segir reglur um höft skorta lagastoð  Telur framfylgni hafta hugsanlega hafa bakað ríkinu skaðabótaskyldu Gjaldeyrir Fyrir liggur frumvarp sem ætlað er að festa höftin í sessi. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Framtakssjóður Íslands hefur keypt nærri 16% hlut í N1. Þetta kom fram í tilkynningu sem send var á fjölmiðla í gær. Sjóðurinn kaupir 10,3% hlutafjár af skilanefnd Glitnis og 5,5% af Íslandsbanka. Endanlegt kaupverð mun ráðast af niðurstöðu rekstrar á árinu 2011 og tekur, skv. tilkynningu, mið af heild- arvirði félagsins við fjárhagslega endurskipulagningu þess. Þá eru viðskiptin háð samþykki Samkeppn- iseftirlits. Framtakssjóðurinn er í eigu hóps lífeyrissjóða auk VÍS og Lands- bankans. Að sögn Finnboga Jóns- sonar, framkvæmdastjóra sjóðsins, mun Framtakssjóðurinn ásamt Ís- landsbanka sem á um 20% og nokkrum öðrum eigendum stofna félag um eignarhlut sinn og mun sá hópur verða með samtals um 55% hlut í félaginu. N1 rekur um 100 þjónustustöðvar hringinn í kringum landið. Aðspurð- ur segir Finnbogi ekki ráðgert að svo stöddu að leggjast í gagngerar breytingar á rekstrinum, en N1 hef- ur þegar gengið í gegnum verulega uppstokkun eftir að hafa lent í eigu bankanna í kjölfar efnahagshruns. „Mér sýnist fyrirtækið vera mjög áhugavert í þeirri mynd sem það er í dag, en auðvitað skoðum við alla möguleika varðandi frekari þróun þegar fram líða stundir,“ segir hann. Í tilkynningu kemur fram að stefnt sé að skráningu N1 í kauphöll á árinu 2013. Framtakssjóður Íslands kaupir stóran hlut í N1  Mun stofna félag ásamt Íslandsbanka og fleiri aðilum til að stýra meirihlutaeign í N1  Skráning á markað 2013 Morgunblaðið/Ómar Risi N1 er með stærstu fyrirtækjum landsins með um 100 þjónustustöðvar um land allt. Eigendur fyrirtækisins stefna á skráningu á markað árið 2013. ● Hagnaður fasteignafélagsins Regins ehf., dótturfélags Landsbankans, fyrstu sex mánuði ársins 2011 nam 66 millj- ónum króna samanborið við 48 milljóna króna hagnað á sama tímabili árið 2010. Félagið hefur stækkað mikið milli ára en eignasafn þess um mitt ár 2010 var 23 milljarðar króna, samanborið við 34 milljarða um mitt ár 2011. 66 milljóna króna hagnaður hjá Regin ● Einar Sveinsson og tengd félög hafa aukið hlut hlut sinn í Nýherja og fara nú með 15,2% hlutafjár í félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphall- arinnar. Þar kemur fram að auk Einars hafa félögin Áning-fjárfestingar ehf., Gildruklettar ehf. og Hrómundur ehf. keypt hlut í Nýherja en Einar Sveinsson á 100% í Áningu- fjárfestingum ehf., 33% í Gildruklettum ehf. og 55% í Hrómundi ehf. Einar og tengd félög með yfir 15% í Nýherja Stuttar fréttir…                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +/0-+1 ++,-20 3+-.24 3+-510 +,-,4 +23-11 +-1303 +/.-+2 +14-0, ++,-,0 +/0-0 ++,-, 3+-153 3+-++/ +,-/.3 +23-43 +-125, +/.-0/ +05-+3 3+,-5,12 ++/-5. +/,-51 ++/-5. 3+-101 3+-+/ +,-/4. +22-34 +-1213 +/1-32 +05-1, Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.