Morgunblaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 15
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Allt er fertugum fært var sagt í eina
tíð en Bretar á fimmtugsaldri glíma
við fleiri vandamál en jafnaldrar
þeirra annars staðar á Vest-
urlöndum. Goðsögnin um „miðald-
urskrísuna“ virðist því eiga við góð
rök að styðjast. Streita og þunglyndi
eykst umtalsvert hjá Bretum um
leið og þeir komast á fertugsald-
urinn og þeir eru óhamingjusam-
astir á milli fertugs og fimmtugs,
samkvæmt rannsókn sem greint er
frá á vef BBC. Hins vegar ná þeir
betra jafnvægi á sextugs- og sjö-
tugsaldri.
En hvað veldur?
Að komast á miðjan aldur, eiga
fleiri ár að baki en framundan eru,
getur eitt og sér verið streituvaldur.
Hugsanir um drauma og væntingar
æskuáranna sækja á og margir
ganga í gegnum ítarlega og stund-
um sársaukafulla sjálfskoðun. Við
bætist svo breytt hormónastarfsemi,
úthald minnkar og útlit breytist.
En hver er skýringin á því að
Bretar skera sig úr í rannsókn á
geðheilbrigði sem gerð var meðal 13
þúsund íbúa 12 landa? 27% Breta á
fimmtugs- og sextugsaldri segjast
þjást af þunglyndi á meðan með-
altalið er 17%.
Richard Layard, prófessor við
London School of Economics, segir
hamingju nátengda menningu. „Það
vantar félagslegan stuðning í Bret-
landi og almenna hvatningu fyrir
fólk að margra mati.“
Góðu fréttirnar eru þær að Bret-
ar eru líklegri til að leita sér hjálpar
við geðrænum vandamálum nú en
áður. Og svo má ekki gleyma því að
eftir sextugt eykst bjartsýnin og
hamingjan sömuleiðis, þrátt fyrir
fleiri hrukkur og grá hár.
Bretar finna loks ham-
ingjuna um sextugt
Morgunblaðið/Ásdís
Á miðjum aldri Það getur verið erfitt að sætta sig við að eiga fleiri ár að
baki en framundan í lífinu. Það gerist þó að lokum hjá flestum.
„Miðaldurskrís-
an“ raunveruleg
skv. rannsókn
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011
Sturtusett
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
NAPOLI
hitastýrt
sturtusett
26.900,-
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Einn fórst og að minnsta kosti fjórir
slösuðust, einn þeirra lífshættulega,
í sprengingu sem varð í franskri
vinnslustöð fyrir kjarnorkuúrgang í
gærmorgun. Stöðin er nálægt borg-
inni Avignon í Suður-Frakklandi.
Eftirlitsstofnun með frönskum
kjarnorkuverum (ASN) tilkynnti
fyrst eftir sprenginguna að talin
væri hætta á að geislavirk efni lækju
frá stöðinni. Hættusvæði var skil-
greint í kringum kjarnorkustöðina.
Margir geislanemar eru umhverfis
stöðina og varð hvergi vart aukinnar
geislunar. Verksmiðjubyggingin
reyndist óskemmd. Frönsk stjórn-
völd lögðu sig fram við það í gær að
vinna gegn ótta við geislamengun og
sagði talsmaður franska orkumála-
ráðuneytisins að sprengingin hefði
„ekki valdið neinum leka á geislavirk-
um efnum“.
Sprengingin varð í ofni sem not-
aður var til að bræða málmkenndan
kjarnorkuúrgang með litla eða mjög
litla geislun, að sögn talsmanns EDF.
„Í ofni af þessari tegund er tvenns
konar kjarnorkuúrgangur. Málm-
hlutir á borð við loka, dælur og verk-
færi og eldfimur úrgangur á borð við
hlífðarföt tæknimanna og vinnuvett-
lingar.“ Eldur sem kviknaði við
sprenginguna var fljótt kæfður.
Centraco-kjarnorkuvinnslustöðin
tilheyrir Socodei, sem er dótturfyr-
irtæki EDF. Hlutabréf í EDF féllu
um meira en 6% í gær. Stöðin er um
20 km norðan við sögufrægu borgina
Avignon, en þar er fjöldi ferðamanna
á þessum árstíma.
Frönsk stjórnvöld tilkynntu í júní
sl. að þau ætluðu að verja einum
milljarði evra í frekari þróun orku-
öflunar með kjarnorku og leggja sér-
staka áherslu á öryggismál. Frakkar
anna megninu af raforkuþörf sinni
með kjarnorkuknúnum raforkuver-
um. Önnur Evrópuríki, t.d. Þýska-
land, hafa hafnað fjölgun kjarnorku-
vera eftir slysið í Fukushima--
kjarnorkuverinu í Japan.
Slys í kjarnorkustöð
Einn fórst og fjórir slösuðust í sprengingu í Suður-Frakklandi Óttast var að
geislavirk efni lækju út í andrúmsloftið en óttinn reyndist ástæðulaus
Montpellier
Marseille
Avignon
Frakkland
París
Kjarnorkuslys
L’Alysée
Reuters
Sprenging í Marcoule Hinir slösuðu voru fluttir á brott með þyrlu. Einn lést og fjórir slösuðust í sprengingunni.
Hægriflokkurinn í Noregi vann
mest á í sveitarstjórnarkosningum,
sem fram fóru í gær, og jók fylgi sitt
um rúm 9 prósentustig, samkvæmt
útgönguspám seint í gærkvöldi. Út-
lit var fyrir að flokkurinn fengi rúm
28% atkvæðanna og er það mesta
fylgi hans í sveitarstjórnarkosn-
ingum frá árinu 1979 þegar hann
fékk 29,2%.
Framfaraflokkurinn tapaði mestu
fylgi, eða rúmum 6%, og fékk rúm
11% atkvæðanna í landinu öllu.
Þetta er mesta fylgistap flokksins í
sextán ár.
Verkamannaflokkurinn er enn
stærsti flokkur Noregs, fékk tæp
32% atkvæða og jók fylgi sitt um
rúm 2%, samkvæmt kosningaspán-
um. Forystumenn flokksins sögðust
vera ánægðir með niðurstöðuna og
töldu ekki að flokkurinn hefði notið
góðs af samúðarbylgju vegna
hryðjuverkanna í Osló og á Útey.
Halvorsen hættir
Samstarfsflokkar Verkamanna-
flokksins í ríkisstjórninni töpuðu
fylgi. Sósíalíski vinstriflokkurinn
fékk rúm 4%, tapaði nær tveimur
prósentustigum og Miðflokkurinn
fékk tæp 7%, tapaði prósentustigi,
samkvæmt tölum sem birtar voru á
miðnætti að staðartíma.
Kristin Halvorsen, leiðtogi Sósíal-
íska vinstriflokksins, tilkynnti í gær-
kvöldi að hún hygðist draga sig í hlé
vegna fylgistapsins og nýr leiðtogi
yrði kjörinn á næsta ári.
Hægri-
flokkurinn
sigraði
Framfaraflokkurinn
tapaði mestu í Noregi
Evrópusambandið (ESB) og Banda-
ríkin ætla að berjast gegn ólöglegum
og stjórnlausum fiskveiðum.
Maria Damanaki, framkvæmda-
stjóri sjávarútvegsmála ESB, og dr.
Jane Lubchenco, aðstoðarráðherra
sjávarútvegs- og loftslagsmála
Bandaríkjanna, undirrituðu samn-
ing þess efnis í síðustu viku. Þetta er
fyrsti tvíhliða samningur ESB og
Bandaríkjanna um aðgerðir gegn
ólöglegum fiskveiðum.
Lubchenco sagði að ólöglegar
fiskveiðar væru ein helsta ógnin við
sjálfbæran sjávarútveg og fjölbreytt
lífríki hafsins.
ESB áætlar að ólöglegar fisk-
veiðar ræni sem svarar 23 millj-
örðum dollara (2.715 milljörðum
króna) frá löghlýðnum sjómönnum
og sjávarútvegi á ári hverju.
Sömdu um
fiskveiðar
Netbókabúðin
Amazon á nú í
viðræðum við
bókaútgefendur
um að opna raf-
rænt bókasafn.
Þjónustan, sem
verður aðeins í
Bandaríkjunum
til að byrja með,
verður með þeim hætti að áskrif-
endur borga árgjald og geta þá
tekið út rafbækur úr safni að vild,
segir í frétt The Wall Street Jo-
urnal. Útgefendur eru sagðir enn
á báðum áttum en þjónustan yrði
sambærileg við rafrænar mynd-
bandaleigur sem eru nú að ryðja
sér til rúms.
BANDARÍKIN
Amazon undirbýr
opnun bókasafns
Ellefu ára drengur hefur fengið
inngöngu í lögfræðideildina í einum
virtasta háskóla Kína, Renmin í
Peking. Hann er yngsti nemandinn
sem hefur verið tekinn inn í skól-
ann og þegar eru á kreiki sögu-
sagnir um að skýringin felist í djúp-
um vösum föður hans. Drengurinn,
sem heitir Xu Hengrui, er þó byrj-
aður í náminu enda engin ákvæði
um lágmarksaldur í lögum skólans.
KÍNA
Ellefu ára og byrj-
aður í háskólanámi