Morgunblaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 33
Sjálfur hefði ég ekki veðjað áþað að æringinn Sveppi ogvinir ættu möguleika á aðstanda undir kvikmynd í
fullri lengd. Og það þremur. Og það
myndum sem hafa notið feikilegra
vinsælda hér á landi og dregið að sér
tugi þúsunda áhorfenda. En það eru
engu að síður staðreyndir málsins.
Lyklarnir að þessari farsæld eru
nokkrir. Fyrir utan náttúrulegan
sjarma Sveppa og félaga (hann, Villi
og Gói skila allir sínu upp í topp) þá
felast vinsældirnar í þessum „kýlum
á þetta“-anda sem umleikur mynd-
irnar. Ég tek ofan fyrir Braga leik-
stjóra og hans fólki fyrir að vera
ekki að flækja sig um of í dýrum
tæknibrellum eða öðru því sem kann
að blasa við fólki sem leggur af stað
út í kvikmyndagerð. Þess í stað var
treyst á þá töfra sem Sveppi hafði
verið að knýja fram á litla skjánum
og það traust hefur skilað sér í þess-
um „litlu“ en lokkandi barnamynd-
um sem bera með sér ósvikinn,
skandinavískan anda. Enn einn lyk-
illinn felst svo í því að þetta eru
myndir sem taka sig aldrei alvar-
lega, höfundar leyfa sér að gera grín
að sjálfum sér og myndinni sem þeir
eru að búa til. Fullorðna fólkið fær
þá sitthvað fyrir sinn snúð í formi
lúmskra brandara sem beint er sér-
staklega að þeim.
Söguþráðurinn er annars á þá leið
að Ilmur týnist inni í töfraskáp og
tríóið galvaska fer í það að reyna að
bjarga henni með hinum og þessum
ráðum. Á eftir þeim er svo vondi
karlinn, leikinn af ljúflingnum Halli
Ingólfssyni sem er hvað þekktastur
fyrir tónlist sína, hvort heldur í
gegnum leikhús eða hljómsveitir.
Hallur er einkar sannfærandi í sinni
rullu og gerir þetta vel. Tempóið
dettur aldrei niður í þær níutíu mín-
útur sem myndin varir en brýnasta
verkefni svona mynda er eðlilega að
halda fjörugum barnshugunum upp-
teknum og það er gert á glúrinn
hátt, framvindan reglulega brotin
upp með fyndnum athugasemdum
eða skemmtilegum innkomum ein-
hverra aukaleikaranna. Sem sagt,
hið allra besta mál. Allir á Sveppa!
Æringjar „…tríóið galvaska fer í það að reyna að bjarga henni með hinum og þessum ráðum.“
Sveppi karlinn
kann þetta
Sambíóin
Algjör Sveppi og töfraskápurinn
bbbbn
Leikstjórn: Bragi Þór Hinriksson. Aðal-
hlutverk: Sverrir Þór Sverrisson, Vil-
helm Anton Jónsson, Guðjón Davíð
Karlsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Hall-
ur Ingólfsson. 90 mínútur. Ísland 2011.
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
KVIKMYNDIR
AF VIÐBURÐUM
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Ég er orðinn gamall. Þaðhlýtur bara að vera. Hér sitég á básnum mínum í Morg-
unblaðshöllinni fögru við Rauðavatn
á föstudegi og held varla haus.
Getur verið að ég sé þunnur?Ég fékk mér bara tvær litlar
bjórflöskur í gær, að vísu rétt fyrir
og um miðnætti. Getur verið að ég,
36 ára fjölskyldumaður, þoli ekki
lengur að fá mér 660 ml. af bjór?
Eða er ég að drepast af því ég sofn-
aði á öðrum tímanum í nótt og vakn-
aði kl. 7? Það skyldi þó aldrei vera.
Í gær fór ég nefnilega á tónleikameð bestu hljómsveit í heimi,
HAM. Frábærir tónleikar og það
suðaði í eyrunum á mér þegar ég
lagðist til hvílu. Hljóðkerfið var svo
sannarlega í góðu lagi. HAM hóf leik
um kl. 23.30. Þá var löngu kominn
háttatími hjá mér og kollega mínum.
Við veltum því fyrir okkur, fyrrum daginn, hvort við, gömlu
fjölskyldumennirnir, ættum að
leggja þetta á okkur. Jú, þetta er nú
einu sinni HAM. En af hverju þurfa
tónleikar að byrja svona seint? Er
það einhver óskrifuð regla að því
harðari og vígalegri sem hljóm-
sveitin er, þeim mun seinna skuli
hún stíga á svið? Hvað með gömlu
fjölskyldumennina sem þurfa sinn
svefn? Mennina sem voru eitt sinn
ungir og barnlausir, fóru á galeið-
una um helgar eins og enginn væri
Illa farið með gamlan mann
Morgunblaðið/Eggert
HAM-agangur Hljómsveitin tryllti lýðinn á Nasa, fimmtudaginn sl. Fjölskyldumenn voru meðal áhorfenda.
morgundagurinn og fengu sér
Hlölla-bát í morgunmat. Er ekki
hægt að hefja tónleikana fyrr fyrir
þá gömlu hunda sem og konur í
sömu stöðu?
Af hverju er búið að leggja nið-ur níu-bíó? Það var langbesti
tíminn, börnin sofnuð og barnapían
til í slaginn.
Ég held ég þurfi að bera kremá kryppuna á mér. Ég er með
einhverja slæmsku í mjöðminni.
Líklega tók sig upp gamalt hnjask.
Nú þarf ég að fá mér Ibufen. Góða
nótt.
»Mennina sem vorueitt sinn ungir og
barnlausir, fóru á
galeiðuna um helgar
eins og enginn væri
morgundagurinn og
fengu sér Hlölla-bát í
morgunmat.
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011
EIN FLOTTASTA
SPENNUHROLLVEKJA
ÞESSA ÁRS
MÖGNUÐ
ÞRÍVÍDD
EIN BESTA MYND STEVE CARELL
OG RYAN GOSLING TIL ÞESSA
-ENTERTAINMENT
WEEKLY
HHHHH
-VARIETY
HHHH
COLIN FARRELL ER FRÁBÆR
Í ÞESSUM MAGNAÐA THRILLER
HHHH
- K.S. ENTERTAINMENT WEEKLY
- S.B. USA TODAY
HHHH
- P.H. SAN FRANCISCO
HHHH
SÝND Í ÞRÍVÍDD
-BOX OFFICE
MAGAZINE
HHHH
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 - 6:30 - 8:30 2D L
FRIGHT NIGHT kl. 8 - 10:20 3D 16
FRIGHT NIGHT kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D VIP
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 7
FINAL DESTINATION 5 kl. 10:30 3D 16
LARRY CROWNE kl. 5:50 - 8 2D 7
GREEN LANTERN kl. 10:20 2D 12
HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:20 2D 12
BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 5:30 2D L
/ ÁLFABAKKA
ALGJÖR SVEPPI kl. 5 - 5:30 2D L
FRIGHT NIGHT kl. 8 - 10:30 3D 16
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 - 10:40 2D 7
HARRY POTTER kl. 5 3D 12
FINAL DESTINATION kl. 8 - 10:20 3D 16
BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 5:30 2D L
COWBOYS & ALIENS kl 8 2D 14
HORRIBLE BOSSES kl. 10:40 2D 12
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 - 8 2D L
FRIGHT NIGHT kl. 10:10 3D 16
PLANET OF THE APES kl. 8 2D 12
FRIENDS WITH BENEFITS kl. 10:10 2D 12
BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 5:50 2D L
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ KEFLAVÍK
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 - 8 2D L
COLOMBIANA kl. 10:10 2D 12
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 2D 7
PLANET OF THE APES kl. 10:30 2D 12
BÍLAR 2 kl. 5:30 2D L
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 - 8 2D L
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 2D 7
FRIGHT NIGHT kl. 10:10 2D 16
BÍLAR 2 M. ísl. tali kl. 6 2D L
FINAL DESTINATION 5 kl. 10:10 3D 16
/ AKUREYRI
/ SELFOSSI
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 2D L
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 2D 7
FRIGHT NIGHT kl. 10:20 3D 16
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
THE TREE OF LIFE Ótextuð kl. 5:20 2D 10
CASINO JACK Íslenskur texti kl. 6 2D 16
RABBIT HOLE Íslenskur texti kl. 8 2D 12
THE BEAVER Ótextuð kl. 8 2D 12
RED CLIFF Enskur texti kl. 10 2D 14
HESHER Íslenskur texti kl. 10 2D 16
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
RYAN REYNOLDS
BLAKE LIVELY
MARK STRONG
GEOFFREY RUSH
LARRY
CROWNE
750 kr.
Tilboðil
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG
EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA
á 3D sýning
ar1000
kr.
á 3D sýning
ar1000
kr.Tilboð
750 kr.
Tilboð
750 kr.
Tilboð
750 kr.
Tilboð
750 kr.