Morgunblaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
5 7 1
8
4 3 5
7 4
1 3 9 5 6
6 3 8 7
3
8 1 6 5
7 4 8 1
4 9 7
2 3
5 2
6 1 9 4
1 4 7
2 5 9 1 3
6 4
1 9 5
7 2
6 4 2 3
7
8 9
6 8 3
4 1
2 7 1
1 7
8 6 9
6 2 5
5 4 6 8 3 7 9 2 1
1 8 7 9 2 4 6 5 3
9 3 2 5 1 6 8 4 7
3 1 8 4 5 2 7 9 6
2 9 4 7 6 1 3 8 5
6 7 5 3 9 8 2 1 4
7 2 9 6 4 5 1 3 8
4 6 3 1 8 9 5 7 2
8 5 1 2 7 3 4 6 9
9 8 2 4 7 5 6 3 1
5 6 7 1 2 3 4 9 8
4 1 3 8 9 6 7 2 5
2 3 5 6 1 4 9 8 7
1 7 6 9 8 2 3 5 4
8 4 9 3 5 7 2 1 6
6 9 4 5 3 8 1 7 2
3 2 8 7 4 1 5 6 9
7 5 1 2 6 9 8 4 3
8 9 3 7 2 4 1 5 6
6 2 5 1 8 9 7 3 4
7 4 1 6 3 5 9 8 2
4 5 6 3 7 8 2 1 9
2 1 8 9 4 6 3 7 5
3 7 9 5 1 2 6 4 8
5 8 7 2 6 1 4 9 3
1 6 4 8 9 3 5 2 7
9 3 2 4 5 7 8 6 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 13. september,
256. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Varpið allri áhyggju yðar
á hann, því að hann ber umhyggju fyr-
ir yður. (1Pt. 5, 7.)
Unglingar kunna að koma orðumað hlutunum. Sonur Víkverja
var á vappi í miðborginni kvöld eitt á
dögunum þegar bláókunnugur ung-
lingur vatt sér upp að honum og
mælti: „Heyrðu, djöfull ert þú geð-
veikt tanaður miðað við hvað þú ert
vangefið ljóshærður!“
Sonurinn starði stundarkorn á
unglinginn meðan hann melti orð
hans en komst fljótt að þeirri nið-
urstöðu að um hól væri að ræða.
Þakkaði hann unglingnum fyrir vik-
ið pent fyrir sig – enda vel upp alinn.
x x x
Í umferðinni kennir margra grasa.Með skömmu millibili hefur Vík-
verji séð tvennt sem hann gerði satt
best að segja ekki ráð fyrir að berja
augum árið 2011.
Fyrst keyrði hann meðfram bíl í
Ártúnsbrekkunni þar sem barn, á að
giska fimm til sex ára, var laflaust í
aftursætinu og hafði stungið höfðinu
inn á milli framsætanna. Engum
hefði brugðið við þessa sjón fyrir
þrjátíu árum en í dag sker þetta í
augu.
Hitt atvikið var ekki síður sláandi.
Þá nam Víkverji staðar á umferð-
arljósum við hlið bíls, þar sem
kornabarn sat í aftursætinu. Barnið
var vissulega ólað vel og vandlega
niður í barnastól en á hinn bóginn
var móðirin með sígarettu í munn-
vikinu í framsætinu og púaði af
áfergju. Víkverji gat hvorki séð að
nokkur gluggi né rifa væri opin á
bílnum. Þetta var ömurlegt að sjá og
í sannleika sagt þurfti Víkverji að
klípa sig til að ganga úr skugga um
að hann væri ekki að dreyma.
x x x
Víkverji heyrði af manni sem upp-lýsti samviskusamlega á síðu
sinni á Snjáldrunni (e. Facebook) að
hann hefði farið á Húsmóðurina þá
um kvöldið og það hefði verið hrika-
lega skemmtilegt. Fékk hann þegar
„svert læk“ á færsluna með þeim
orðum að hann væri alvöru eig-
inmaður. Gilti þá einu að maðurinn
var víst að tala um leikrit sem ber
þetta skemmtilega nafn „Húsmóð-
irin“. Næst ætlar kappinn víst að
fara á Skugga-Svein! víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 kjáni, 4 fjárhæð, 7
kraninn, 8 níutíu ára, 9
beita, 11 á kirkju, 13 elli-
móð, 14 stóra, 15 felling, 17
hyggin, 20 stór gryfja, 22
búvara, 23 leyfir, 24 var á
hreyfingu, 25 magrar.
Lóðrétt | 1 vistaaukning, 2
viðartegund, 3 framkvæma,
4 snjór, 5 nemur, 6 tómum,
10 grípur, 12 veiðarfæri, 13
agnhald, 15 hláka, 16 skel-
dýr, 18 kirtill, 19 ástfólgnar,
20 þrjóska, 21 belti.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 viðsjálar, 8 kenna, 9 úldin, 10 Týr, 11 parta, 13 arður,
15 stekk, 18 staka, 21 ann, 22 ritin, 23 arinn, 24 siðavanda.
Lóðrétt 2 innir, 3 skata, 4 ákúra, 5 andúð, 6 skip, 7 knár, 12 tak,
14 rót, 15 sorg, 16 ertni, 17 kanna, 18 snaga, 19 aðild, 20 agns.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Seiðandi röð. S-Allir
Norður
♠DG
♥42
♦ÁK53
♣ÁD763
Vestur Austur
♠654 ♠32
♥D107 ♥K985
♦G1098 ♦D76
♣1085 ♣KG94
Suður
♠ÁK10987
♥ÁG63
♦42
♣2
Suður spilar 6♠.
Hin fagra röð í tíglinum hefur seið-
andi áhrif á vestur og hann kemur þar
máttlaust út með gosann. Þó höfðu
sagnir kallað á trompútspil: Suður
vakti á 1♠, norður sagði 2♣, suður 2♥
og norður 3G. Suður tók út í 4♠ og
norður stökk í 6♠. Hjartatrompun ligg-
ur í loftinu og því hefði vestur betur
spilað út spaða.
Sagnhafi á ellefu slagi með einni
hjartastungu og sá tólfti er líklegastur
á lauf. Svíning kemur til greina, en
betra er að reyna að fella ♣K þriðja eða
fjórða. Eftir ♦Á, tekur sagnhafi ♣Á og
trompar lauf. Spilar svo ♥Á og hjarta.
Vörnin verður að svara með trompi og
sagnhafi notar innkomuna til að stinga
lauf. Hann trompar svo hjarta og fríar
laufið með enn einni stungu. Spaðinn
fellur þægilega og blindur fær síðustu
slagina á ♦K og frílauf.
13. september 1952
Fyrsta einkasýning Gerðar
Helgadóttur myndhöggvara
hér á landi var opnuð í Lista-
mannaskálanum í Reykjavík.
„Áræði og kjarkur einkenna
verk hennar,“ sagði í umsögn í
Morgunblaðinu. „Það er mik-
ils að vænta af slíkri konu sem
Gerði.“
13. september 1980
Tveir ungir menn klifu norð-
vesturvegg Skessuhorns í
Skarðsheiði, en hann hafði
verið talinn ókleifur. Klifrið
tók sjö klukkustundir. „Leiðin
var nokkuð léttari en við höfð-
um ímyndað okkur fyr-
irfram,“ sögðu þeir í samtali
við Morgunblaðið.
13. september 1981
Borgarfjarðarbrúin var vígð,
en umferð um hana hófst árið
áður. Með brúnni styttist leið-
in milli Akraness og Borg-
arness úr 69 kílómetrum í 38
kílómetra. Framkvæmdir
stóðu í sjö ár. Brúin er 520
metrar, aðeins Skeiðarárbrúin
er lengri.
13. september 1992
Norrænu barnabókaverðlaun-
in voru veitt Guðrúnu Helga-
dóttur rithöfundi fyrir bókina
Undan illgresinu.
13. september 2004
Tuttugu og tveggja tonna ís-
jaki var tekinn úr Jökulsárlóni
á Breiðamerkursandi og flutt-
ur til Parísar þar sem hann
var hluti af Íslandskynningu.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Birgir Gilbertsson, sjóntækjafræðingur, fagnar
fertugsafmæli sínu í dag. Í tilefni afmælisins tók
hann þátt í sinni fyrstu þríþrautarkeppni fyrir
viku í Köln og lenti í 40. sæti í sínum aldursflokki.
„Ég hef aldrei verið í betra formi en í dag á fer-
tugsafmælinu mínu. Það eru þrjú ár síðan ég byrj-
aði að hlaupa, tvö ár síðan ég byrjaði að hjóla og
eitt ár síðan ég fór að synda og núna tók ég þetta
allt saman í einni keppni,“ segir Birgir og bætir
því við að aldurinn sé afstæður í þessu öllu saman.
Birgir ætlar ekki að halda stóra veislu heldur hafa
það huggulegt heima með fjölskyldunni í dag. „Ég
tók mér frí í vinnunni og hef það bara huggulegt heima. Ferðin til
Köln var eiginlega afmælisferð og ég læt það duga. Ég er ekki mikið
afmælisbarn og bið fólk bara að senda góðar kveðjur. Ég bíð með
stóru veisluna þar til seinna þegar ég er orðinn aðeins þroskaðri.
Annars var skemmtilegasta afmælið mitt þegar ég var tvítugur en þá
komu vinirnir óvænt í heimsókn með góðar veigar og góða skapið.
Það endaði á því að vera eftirminnilegasta afmælið mitt, algjörlega
óskipulagt og fjörið sjálfsprottið,“ segir afmælisbarnið Birgir Gil-
bertsson.
Birgir Gilbertsson er 40 ára í dag
Í 40. sæti á fertugsafmælinu
Hlutavelta
Freyja Jóhanns-
dóttir, Jóhanna
Björg Jónsdóttir og
Björg Elva Frið-
finnsdóttir stóðu
fyrir tombólu við
verslun Hagkaups á
Akureyri. Þær
söfnuðu 4.003 krón-
um sem þær
styrktu Rauða
krossinn með.
Flóðogfjara
13. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.47 0,4 6.49 3,9 12.58 0,4 19.04 4,0 6.45 20.04
Ísafjörður 2.55 0,3 8.49 2,1 15.05 0,3 21.00 2,2 6.46 20.12
Siglufjörður 5.11 0,2 11.18 1,2 17.14 0,2 23.35 1,3 6.29 19.55
Djúpivogur 4.02 2,1 10.13 0,4 16.18 2,1 22.26 0,4 6.13 19.34
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Reyndu að komast hjá því að verk-
efnaskrá þín lengist í dag. Taktu enga
ákvörðun fyrr en þú hefur skoðað allar hliðar
málsins gaumgæfilega.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það þarf stundum lítið út af að bera til
þess að afleiðingarnar valdi verulegum vand-
ræðum. Skilaðu því sem þú hefur fengið lán-
að.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Láttu ekki fagurgala annarra villa
þér sýn. Reyndu að halda í vonina og bjart-
sýnina.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það færi best á því að þú héldir þér
til hlés um sinn. Láttu það ekki koma þér úr
jafnvægi heldur auka þér styrk.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Vandræðaleg augnablik, sem þú óskar
þess að geta þurrkað út skipta ekki neinu
einasta máli þegar upp er staðið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Einhver sem er að reyna að koma sér
áfram, steig á tána á þér í leiðinni. Ef þú leyf-
ir sjálfum þér að blómstra muntu undrast
hvers þú ert megnugur.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er enginn skaði skeður með því að
líta fortíðina jákvæðari augum en ástæða er
til. Hvernig væri að taka skref aftur á bak og
endurmeta stöðuna?
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Hugsanir um rómantík eru þér
áleitnar í dag og þú veist ekki í hvorn fótinn
þú átt að stíga. Taktu þér tak og bættu úr
því.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Litlar tilfæringar á húsgögnunum
geta skapað mikla tilbreytingu. Athugaðu
hvort eitthvað hefur farið úrskeiðis.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Stundum er betra heima setið en
af stað farið. Gerðu frekar hlutina sjálfur; þú
færð meira út úr þeim. Hugsanlegt er að þú
hellir þér í nám, lestur og skriftir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ráðgátur eru skemmtilegar, en
ekki þegar þær leggja undir sig hugsanir þín-
ar og daglegt líf. Einhver heima fyrir þarf á
athygli þinni að halda.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Láttu það ekki slá þig út af laginu þótt
dragi úr afköstum þínum. Gættu þess að
taka engu sem sjálfsögðum hlut ella muntu
iðrast þess síðar.
Stjörnuspá
Staðan kom upp á Stigamóti Tafl-
félagsins Hellis sem var haldið í byrjun
júní síðastliðins. Davíð Kjartansson
(2294) hafði hvítt gegn Kjartani Más-
syni (1916). 18. a5! f6 svartur hefði
einnig tapað eftir 18… Dxa5 19. b4 Da3
20. Hb3 sem og eftir 18… Rc8 19. Rd7.
19. Rd3 Dxd4 hvítur hefði einnig unnið
eftir 19…Dxa5 20. Ha1. 20. axb6 cxb6
21. Re2 Dxe4 22. Ref4 Df5 23. g4 og
svartur gafst upp. Lokastaða efstu
manna varð þessi: 1.-3. Sigurður Daði
Sigfússon (2337), Davíð Kjartansson
(2294) og Einar Hjalti Jensson (2227) 5
½ vinning af 7 mögulegum. 4.-5. Jón
Trausti Harðarson (1602) og Dagur
Ragnarsson (1718) 5 v. 6.-9. Hall-
gerður Helga Þorsteinsdóttir (2019),
Jóhann Helgi Sigurðsson (2071), Jó-
hanna Björg Jóhannsdóttir (1810) og
Emil Sigurðarson (1699) 4 1/2 v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.