Morgunblaðið - 21.09.2011, Page 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2011
✝ Þorvaldur S.Hermannsson
fæddist í Vest-
mannaeyjum 2. maí
1949. Hann lést á
Landspítalanum 11.
september 2011.
Foreldar Þor-
valds voru Her-
mann Kristinn Ingi-
berg Jónsson,
fæddur 5. desem-
ber 1898, d. 20. júní
1989 og Þorsteina Margrét Þor-
valdsdóttir, fædd 21. maí 1911,
d. 15. mars 1976. Þorvaldur
kvæntist Elísabetu Sigtryggs-
dóttur, fædd 15. ágúst 1950,
þann 26. desember 1969, þau
slitu samvistum. Börn þeirra
eru: a) Hermann Þorvaldsson,
fæddur 3. maí 1971. Unnusta
hans er Harpa Steinarsdóttir.
Sonur þeirra er Gabríel Leví.
Fyrir á Hermann dæturnar El-
ísabetu Önnu og Sigrúnu. b) Sig-
rún Þorvaldsdóttir, fædd 10.
október 1974. Synir
Sigrúnar eru Guð-
mundur Aron,
Ágúst Marel og
Dagur Smári. c)
Þorsteinn Þor-
valdsson, fæddur
28. desember 1982.
Systkini Þorvalds
eru: a) Kristinn
Breiðfjörð, fæddur
25. desember 1938,
látinn 28. janúar
1943. b) Kristín Breiðfjörð, fædd
2. nóvember 1943, látin 29. júlí
2001. c) Kristinn Guðni, fæddur
4. ágúst 1945. Eiginkona hans er
Margrét Hólmfríður Kristjáns-
dóttir, f. 21. september 1942.
Þorvaldur stundaði sjómennsku
um tíma og einnig netagerð.
Þorvaldur var virkur fé-
lagsmaður Taflfélags Vest-
mannaeyja.
Þorvaldur verður jarðsung-
inn frá Selfosskirkju í dag, 21.
september 2011 kl. 13:30.
Ég vil minnast Þorvaldar Her-
mannssonar hér í fáum orðum.
Þorvaldur var starfsmaður
Netagerðarinnar Ingólfs í Vest-
mannaeyjum til margra ára.
Hann vann þar þegar eldgosið
varð í Heimaey 1973, og flutti
ásamt fjölskyldu sinni til Hafnar-
fjarðar, eins og fleiri starfsmenn
netagerðarinnar. Þau bjuggu á
Hverfisgötu í Hafnarfirði í íbúð
með annarri ungri fjölskyldu.
Þetta voru sérkennilegir
tímar. Hluti af starfsmönnum
netagerðarinnar var í Eyjum að
bjarga síldar- og loðnunótum, en
jafnframt var sett upp starfsstöð
í Grindavík og Hafnarfirði, og
einnig var unnið í Þorlákshöfn.
Menn voru svo sendir á milli
staða eftir þörfum.
Þorvaldur var einn af þessum
harðduglegu mönnum netagerð-
arinnar, og ekki var spurt um
vinnutíma, heldur hvað þurfti að
klára, og var vinnutími oft langur.
Um tíma starfaði Þorvaldur
við útgerð okkar hjóna í Eyjum
við veiðarfærin og annað, sem til
féll. Þá varð þessi vísa til og mál-
uð á kaffimálið hans, en hún segir
svolítið um starfsandann á þeim
tíma. Vísan er byggð á „Hif op,
æpti karlinn, inn með trollið inn“,
eftir Jónas Árnason:
Með trollið allt í henglum, héldu þeir í
land
þar beið hann þeirra hann Þorvaldur,
með nál og netaband.
Með útvarpið á fullu, og enginn
lækkaði,
því vinurinn var í Brasil og fötum fækk-
aði.
Þorvaldur var áhugamaður um
skák og tók virkan þátt hjá Tafl-
félagi Vestmannaeyja.
Fyrir stuttu áttum við Þor-
valdur gott samtal. Hann lét vel
að hag sínum, búinn að fá nýja
íbúð á leigu og virtist bjart fram-
undan, og var ákveðinn í að
standa sig gegn Bakkusi, en það
var þrautin þyngri að sigrast á
þeim vágesti, sem allt of oft tekur
völdin.
Nýlega greindist hann með al-
varlegan sjúkdóm og lést
skömmu síðar.
Aðstandendum vottum við
hjónin samúð okkar. Blessuð sé
minning Þorvaldar Her-
mannssonar.
Sigurður Ingi Ingólfsson.
Þorvaldur S.
Hermannsson
✝ Sigríður J.Guðmunds-
dóttir fæddist í
Reykjavík 24. des-
ember 1932. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 10. sept-
ember 2011. For-
eldrar hennar voru
hjónin Guðmundur
Bjarnason, f. 12.
des. 1896 í Stein-
nesi, d. 5. des. 1967, og Jóhanna
Margrét Magnúsdóttir f. 9. júlí
1907 á Grund, Gerðahr., Gull,
d. 28. feb. 1979. Systkini Sigríð-
ar eru Ingibjörg, Guðrún, Jón
Bjarni, Birna Ingunn, Steinunn
Anna, Helga Margrét, Gísli,
Hálfdán Björn og Einar Sölvi.
Á aðfangadag 1956 giftist
Sigríður J.Guðmundsdóttir
Níelsi Hafsteini Hansen, f. 13.
júní 1930, d. 19. júlí 1996 og
áttu þau 6 börn saman en áður
átti Sigríður J. eina dóttur,
Helgu Soffíu Hólm, f. 27. júní
1952, eiginmaður hennar er
Markús Kristinn Magnússon, f.
5. október 1951 og eiga þau
þrjú börn, a) Kristjana, f. 4.
október 1973. Hún á dótturina
Natalíu, f. 7. september 2010, b)
Sigurður Hafsteinn, f. 7. maí
barnsmóðir hans er Halla Berg-
mann Gunnarsdóttir, f. 11. júlí
1959, sonur þeirra er Bjartmar
Atli, f. 11. október 1980. Sam-
býliskona Ægis er Elizabeth
Sara Tan Gammon, f. 4. apríl
1962. Börn hennar eru: a) Em-
illy Anna, f. 29. maí 1989,
barnsfaðir hennar er Þorsteinn
Ingólfsson, f. 22. ágúst 1984,
sonur þeirra er Mikael Aldan, f.
24. nóvember 2008, b) Bruno
John Roy, f. 10. maí 1991, c) Ja-
mie Elizabeth, f. 1. mars 1995.
3) Margrét, f. 12. júní 1963, eig-
inmaður hennar er Jónas Sturla
Sverrisson, f. 24. janúar 1963,
þau eiga 2 börn saman en fyrir
á Margrét Þóru Mar-
grétardóttur, f. 22. ágúst 1983,
eiginmaður hennar er Hallur
Karlsson, f. 17. janúar 1983. a)
Berglind Ýr, f. 16. ágúst 1997,
sambýlismaður hennar er Kol-
beinn Ísólfsson, f. 16. apríl
1996. b) Níels Ingi, f. 3. júlí
1997. 4) Bára, f. 20. maí 1968,
fyrrverandi eiginmaður hennar
er Jón S. Garðarsson, f. 11. júní
1966, þau eiga 2 börn saman, a)
Oliver Snær, f. 5. nóvember
1995, b) Nökkvi Snær, f. 5. nóv-
ember 2002. Sambýlismaður
Báru er Hjörleifur Kristinsson,
f. 14. ágúst 1962, sonur hans er
Ástþór Hjörleifsson, f. 12. febr-
úar 1997. 5) Guðmundur, f. 6.
febrúar 1970.
Útför Sigríðar J. fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 21. sept-
ember 2011, og hefst athöfnin
kl. 13.
1980. Sambýlis-
kona hans er Hjör-
dís Björk Ólafs-
dóttir, f. 1.
nóvember 1980.
Þau eiga dótturina
Júlíu Dís, f. 18. jan-
úar 2009, c) Guð-
mundur Ívar, f. 4.
janúar 1985, sam-
býliskona hans er
Eygló Kristjáns-
dóttir, þau eiga
dótturina Soffíu Rún, f. 22. nóv-
ember 2009. Fyrst barn Sigríð-
ar J. og Níelsar Hafsteins var
drengur en hann lést ungur,
önnur börn eru: 1) Jóhanna
Margrét, f. 9. júlí 1958, eig-
inmaður hennar er Páll Hall-
dórsson, f. 17. september 1950,
þau eiga 4 börn, a) Halldór
Gunnar, f. 3. ágúst 1984, sam-
býliskona hans er Herdís Harpa
Jónsdóttir, f. 16. janúar 1987, b)
Páll, f. 12. mars 1988, sambýlis-
kona hans er Áslaug Inga
Barðadóttir, f. 27. maí 1987, c)
Hlöðver, f. 11. október 1990,
barnsmóðir hans er Linda Rut
Sigríðardóttir, f. 17. ágúst
1989, dóttir þeirra er Árný
Fjóla, f. 7. mars 2008, d) Sigríð-
ur Inga, f. 14. nóvember 1997.
2) Ægir, f. 13.október 1960,
Elsku mamma.
Það er svo óraunverulegt fyr-
ir mér að þú ert farin. Ég
kvaddi þig heima hjá þér daginn
áður en ég lagði í ferðalag til að
fagna 25 ára brúðkaupsafmæl-
inu mínu. Við borðuðum ís og
mátuðum náttsloppa og áttum
góða tíma saman. Þú varst að
fara í hvíldarinnlögn þremur
dögum síðar. Ég hugsaði að það
væri gott að þú fengir góða
umönnun á meðan ég væri í frí-
inu.
Næsta sem ég vissi eftir nán-
ast algjört sambandsleysi við
umheiminn í viku var að þú vær-
ir farin frá okkur. Ég sakna
þess svo að hafa ekki verið til
staðar þegar kallið kom, en fékk
þau skilaboð að þú vildir ekki að
ég kæmi fyrr heim úr ferðalag-
inu „bara“ vegna þín, en ég
sakna þess að hafa ekki komið
heim. Ég þakka þér allt, þú hef-
ur verið mín stoð og stytta í öll
mín ár og hjálpað mér með
börnin og allt mitt líf. Takk fyrir
allt gott.
Mamma mín brosir til mín breitt, þótt
hún sé þreytt.
Mamma mín huggar mig í örmum sér,
þegar allt virðist ómögulegt hjá mér.
Mamma mín heldur ávallt í mína hönd,
líka þegar ég mun fara ókunn lönd.
Mamma mín gefur mér ráð, því hún er
svo klár.
Mamma mín gefur mér allt, ég þakklát
er, það er alveg satt.
Mamma mín, ég vil gefa þér þetta ljóð,
því þú mér ert svo góð.
Elska þig mamma mín.
(Dagný Pálsdóttir)
Þín dóttir,
Margrét.
Elsku amma mín, ég trúi því
ekki að ég eigi aldrei eftir að
hitta þig aftur og það mun taka
mig langan tíma að trúa því að
þú sért í raun og veru farin.
Þegar ég sá þig um páskana þá
fannst mér þú svo hress og mér
fannst þú hafa svo jákvæða sýn
á framtíðina að mig grunaði
ekki að ég mundi aldrei fá að
hitta og tala við þig aftur.
Þegar ég hugsa um þig eru
svo margar góðar minningar
sem koma upp í hugann og þeg-
ar ég hugsa um Hjaltabakkann
þá fyllist ég enn ró. Um leið og
ég labbaði inn heima hjá þér og
afa þá fylltist ég alltaf ró og
ánægju og fannst hvergi betra
að vera. Þú tókst mér alltaf
eins og ég var og þrátt fyrir
alla mína orku og hugmynda-
flug þá skammaðir þú mig aldr-
ei.
Þú leyfðir mér alltaf að prófa
að gera allt, jafnvel þótt þú
þyrftir að þrífa allt eldhúsið frá
gólfi upp í loft eftir að þú leyfð-
ir mér að baka eða vaska upp,
þá stóðstu alltaf þolinmóð við
hliðina á mér og leiðbeindir
mér hvað ég átti að gera.
Eini staðurinn sem ég man
að ég gat setið kjurr tímunum
saman var í fanginu á þér,
hvort sem það var að horfa á
Tomma og Jenna sem þú og afi
tókuð samviskulega upp fyrir
mig í hverri viku eða á meðan
þú varst að leggja kapal, sem
ég lærði náttúrlega á þinn hátt
þannig að hann gekk alltaf upp.
Við áttum svo margar góðar
stundir saman bæði þegar ég
var barn og þegar ég var ung-
lingur og bjó hjá þér. Við gát-
um alltaf talað saman og þú
hlustaðir alltaf á mig og sýndir
mér skilning og reyndir að leið-
beina mér.
Elsku amma mín, ég mun
alltaf vera þakklát fyrir að hafa
átt þig að og þú munt alltaf
vera stór partur af mér.
Ég er þakklát fyrir allan
þann tíma sem ég fékk með þér
og það er með miklum söknuði
sem ég kveð þig.
Þóra.
Sigríður J.
Guðmundsdóttir
Elsku frændi minn.
Ég á svo erfitt með að trúa
því að þú sért allt í einu farinn
frá fjölskyldunni okkar.
Það er svo stutt síðan ég hitti
þig við jarðarför móðursystur
okkar og þú varst þá svo hress
og kátur. Og nú ertu allt í einu
farinn frá okkur.
Þú varst svo ljúfur og blíður
Gunnar Örn
Hámundarson
✝ Gunnar ÖrnHámundarson
fæddist í Reykja-
vík 28. júlí 1952.
Hann varð bráð-
kvaddur á heimili
sínu 5. september
2011.
Útför Gunnars
fór fram frá Bú-
staðakirkju 15.
september 2011.
maður og mér alltaf
svo góður. Þegar ég
var lítil stúlka gisti
ég oft hjá mömmu
þinni og við lékum
oft saman og þú
varst mér sem
bróðir. Ég mun allt-
af geyma þær
gömlu minningar
eins og gull í hjarta
mínu.
Mig langar að
þakka þér fyrir alla samveruna í
gamla daga. Það var svo gott að
vera hjá mömmu þinni og systr-
um þínum.
Mér finnst ég eigi að eftir
hitta þig aftur, ég er ekki búin
að kveðja þig. Nú veit ég að þú
ert komin í himininn til foreldra
þinna og líður vel. Þau hafa tek-
ið vel á móti þér, elsku frændi
minn. Góða nótt og sofðu rótt og
hvíldu þar vel. Við munum hitt-
ast aftur uppi hjá Guði.
Þín kæra frænka,
Anna Jóna.
Kvaddur er elskulegur frændi
og félagi. Gunnar var sérstak-
lega frændrækinn og ljúfur á
allan máta og hafði hann mjög
góða nærveru. Mæður okkar
voru systur og flest sumur eða
haust kom hann á Krókinn, lengi
vel með móður sína með sér
meðan hún hafði heilsu til. Þau
dvöldu þá hjá foreldrum mínum
og síðustu ár hjá móður minni
eftir að faðir minn lést.
Alltaf var tilhlökkun að vita af
komu þeirra norður en þeim
fylgdi alltaf mikil kátína og
gleði. Mér þótti sérstaklega
vænt um að hann skyldi dvelja
hjá mér síðastliðið haust í
nokkra daga. Mikið var spjallað
og farnir voru margir bíltúrar
með móður mína. Sérstakt
fannst mér að Gunnar skyldi
hafa haft mynd af sér og móður
minni á forsíðunni á facebook
síðunni sinni, þar sem þau
standa við kirkju og létust þau
síðan með rúmlega tveggja
vikna millibili. Síðasta faðmlag
frá honum fékk ég við útför
móður minnar þar sem hann var
hress og kátur að vanda.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Samúðarkveðjur sendi ég til
systranna Hrafnhildar, Kolbrún-
ar og fjölskyldna þeirra.
Hvíl í friði, kæri frændi,
blessuð sé minning þín.
Kristín Bjarney
Sveinsdóttir.
✝
Þökkum innilega fyrir hlýhug, samúð og
góðar kveðjur vegna andláts okkar elskulegu
ÖNNU SIGRÍÐAR FRIÐRIKSDÓTTUR,
Dúddu,
Skúlagötu 20,
Reykjavík.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki á
hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir góða umönnun og hlýju síðastliðið
eitt ár.
Friðrik Dagsson,
María Dagsdóttir, Jón Ásbergsson,
Jón Kr. Dagsson, Erla B. Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
BJÖRN THOMAS VALGEIRSSON,
Laufásvegi 67,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti
mánudaginn 19. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Stefanía Stefánsdóttir,
Hildur Björnsdóttir, Ásgeir Bragason,
Dagný Björnsdóttir, Skúli Gunnarsson,
Valgerður Helga Björnsdóttir, Jón Hafberg Björnsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Elsku hjartans móðir okkar, unnusta, dóttir,
systir, mágkona, amma mín og stjúpmóðir,
HJÖRDÍS LINDA JÓNSDÓTTIR,
Drápuhlíð 34,
lést í faðmi ástvina sinna á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi föstudaginn
16. september.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 28. september
kl. 13.00.
Diljá Rún Jónsdóttir,
Bjarki Snær Jónsson,
Ólafur Jóhann Högnason,
Jón Grettisson, Herdís Valdimarsdóttir,
Valdimar Jónsson, Ragnheiður Hansen,
Áslaug Filippa Jónsdóttir, Dagbjartur Þórðarson,
Fjölnir Jarl Hauksson ömmumoli,
Ólafur Kári Ólafsson,
Ísold Anja Ólafsdóttir,
systkinabörn og aðrir aðstandendur.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, "Senda inn minn-
ingargrein", valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá inn
slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er
unnt að senda lengri grein.
Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Minningargreinar