Morgunblaðið - 27.10.2011, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 27.10.2011, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2011 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, seg- ir að ekki hafi tekist að ná því mark- miði síðustu kjarasamninga að koma gangverki atvinnulífsins af stað, skapa störf og auka tekjur. Brýnasta úrlausnarefnið nú sé að auka hag- vöxt og fjölga störfum. Formanna- fundur ASÍ krefst þess að ríkis- stjórnin grípi þegar til bráðaaðgerða í atvinnumálum og sýni jafnframt fram á hvernig hún hyggst stuðla að auknum fjárfestingum með því að leggja fram nauðsynlegar efnahags- og fjárfestingaráætlanir í samræmi við gefin fyrirheit í kjarasamningum. Gylfi flutti setningarræðu á for- mannafundi ASÍ í gærmorgun og Jó- hanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra ávarpaði fundarmenn. Atvinnumálin voru í öndvegi fund- arins sem haldinn var daginn eftir að hagdeild ASÍ kynnti svarta eða að minnsta kosti gráa spá um efnahags- horfur á næstu árum. Þar kom fram að útlit væri fyrir mun minni fjár- festingar en gert hefur verið ráð fyr- ir í forsendum gildandi kjarasamn- inga. Það þýðir að verðmætasköpun í þjóðfélaginu eykst minna og áfram verður atvinnuleysi. Brýnast að auka hagvöxt Gylfi fór yfir þróun mála síðustu árin. Sagði að tekist hefði að verja kaupmátt þeirra tekjulægstu í hruninu og með kjarasamningunum í vor hefði hafi verið byrjað að byggja upp kaupmátt hins almenna launamanns. Þá hafi mikilvægar réttarbætur náðst fram. Hann eyddi hins vegar lengra máli í það sem ekki hefði tekist og hvernig ætti að koma samfélaginu upp úr hjólförunum. „Augljóslega er brýn- asta úrlausnarefnið að auka hagvöxt og fjölga störfum,“ sagði Gylfi og rifjaði upp samkomulagið sem gert var við ríkisstjórn og atvinnurekend- ur í vor um að auka fjárfestingar til að leggja grunn að meiri hagvexti og verðmætasköpun í framtíðinni. Nefndi hann bæði bráðaaðgerðir til að skapa störf, svo sem fjárfestingar í samgöngumannvirkjum og viðhaldi og nýbyggingu fyrir hið opinbera og langtímauppbyggingu og þróun. „Það er mikill ábyrgðarhluti að ein- staka ráðherrar geta einfaldlega slegið samkomulag við okkur út af borðinu án þess að ríkisstjórnin bregðist við í heild sinni.“ Jóhanna Sigurðardóttir fullyrti að mörg þeirra fyrirheita og umbóta- verkefna sem ríkisvaldið hefði heitið við gerð kjarasamninganna væru nú þegar í höfn og flest í góðum farvegi. Vegagerðin væri undatekningin, vegna þess að ekki hefði náðst sam- staða um innheimtu veggjalda. Kvaðst forsætisráðherra harma að sá þáttur kjarasamninga hefði ekki náðst fram. Gylfi sagðist þeirrar skoðunar að mestu tækifærin til hagvaxtar hér á landi væru í græna hagkerfinu en þau væru ekki nógu vel nýtt. „Við höfum einnig mikil tækifæri í end- urnýjanlegri orku og verðum að sýna meiri áræðni í að sækja þau,“ sagði Gylfi. Kvaðst hann binda mikl- ar vonir við að samstaða tækist um rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða, þá væri hægt að sækja þar fram af meiri þrótti og þunga með áherslu á nýjar greinar. „Hér verða stjórnvöld hins vegar að leggja meiri þunga á vogarskálarn- ar. Heimurinn er enn einu sinni að glíma við erfiðleika á fjármálamörk- uðum og erfitt fyrir öll fyrirtæki að fjármagna verkefni. Þá getur skipt sköpum að hafa stjórnvöld í liði með sér í stað þess að þau sýni af sér tóm- læti, ef ekki beinlínis að þvælast fyr- ir,“ sagði Gylfi. Framkvæmdir í gangi Jóhanna sagði að fjárfestingar hefðu aukist jafnt og þétt og bætti því við að þótt formaður ASÍ væri svartsýnn ættu menn ekki að gefast upp á að ná markmiðum kjarasamn- inga. Hún nefndi að framkvæmdir væru víða í gangi, meðal annars fjór- ar virkjanir, mislangt á veg komnar, og fjórir fjárfestingarsamningar hefðu verið gerðir við erlenda fjár- festa og fjórir biðu endanlegrar samningagerðar. Forsætisráðherra sagði að örlög álvers í Helguvík yrðu ekki ráðin við ríkisstjórnarborðið því enn væri beð- ið niðurstöðu gerðardóms í Stokk- hólmi. Þótt Alcoa hefði hætt við álver á Bakka væru til margir jafngóðir eða betri kostir til nýtingar á orku- lindum norðanmanna. Vonaðist hún til að brátt sæi fyrir endann á við- ræðum Landsvirkjunar við fyrirtæki þar. „Það verður þó að viðurkennast að staðan í alþjóða efnahagsmálum er vissulega mikið áhyggjuefni og kann að hafa áhrif á vilja og getu til fjárfestinga,“ sagði Jóhanna. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði í ræðu á fund- inum að þróunin í efnahagsmálum heimsins hefði áhrif á samninga við erlenda fjárfesta. Staðan nú minnti óþægilega á aðdraganda síðustu bankakreppu. Margir fjárfestar gerðu út á á vöxt í efnahagslífinu og því mætti búast við að margir frest- uðu áformum sínum ef ný kreppa riði yfir. Hann tók þó fram að horfur Ís- lands væru góðar til langs tíma litið. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Fundað Atvinnumálin og málefni atvinnuleitenda voru í brennidepli á formannafundi ASÍ í gær. Samþykktar voru ályktanir að fundi loknum. Ekki tekist að koma atvinnulífinu í gang  Formannafundur ASÍ krefst þess að gripið verði til bráðaaðgerða í atvinnumálum „Við munum eiga mjög erfitt upp- dráttar ef ekki sér fyrir endann á framkvæmdum við álver. Okkur vantar Helguvík til að fá hjólin til að snúast,“ segir Guðbrandur Ein- arsson, formaður Verslunar- mannafélags Suðurnesja. Tilefnið er spá hagdeildar ASÍ þar sem fram kemur það mat að ekki séu líkur á að framkvæmt verði í Helguvík fyrir lok spátímans, árs- ins 2014. Suðurnes hafa sem kunn- ugt er farið illa út úr hruninu og þar er mesta atvinnuleysi á landinu. Guðbrandur telur að þessi tíðindi eigi að verða til þess að menn leggi harðar að sér við að koma Helgu- víkurverkefninu í gang. Þá leggur hann áherslu á mikil- vægi þess að vinna að aðild að ESB, það muni bæta mjög kjör launa- fólks á Íslandi og nefnir mikinn vaxtakostnað og hátt matarverð sérstaklega í því sambandi. Vantar Helguvík til að fá hjólin til að snúast í gang Guðbrandur Einarsson „Við náum ekki lífskjörunum til baka nema með öflugum hag- vexti,“ segir Sverrir Alberts- son, fram- kvæmdastjóri hjá Afli – starfs- greinafélagi á Austurlandi. Hann segir hægt að kenna stjórnvöldum um sumt, svo sem eins og stórframkvæmdir í vegagerð og stóriðju. Þar hafi ekk- ert gerst og því verði umskiptin hægari en gert var ráð fyrir. Af einstökum verkefnum nefnir Sverrir að það hafi verið vonbrigði að ekki skuli verða af uppbyggingu á Bakka. Þar sé orka og tækifæri sem þurfi að nýta. Eins valdi drátt- ur á framkvæmdum í Helguvík áhyggjum. „Við þurfum að stækka kökuna og það gerist ekki nema með fjár- festingum,“ segir Sverrir. Kakan stækkar ekki nema ráðist verði í fjárfestingar Sverrir Albertsson Forseti ASÍ telur mikilvægt að ræða milliliðalaust við pólitíska forystumenn helstu ríkja Evrópu um beina aðstoð þeirra til að treysta stöðu gjaldmiðilsins, hugsanlega með því að tengja krónuna beint við evruna. Þann- ig gæti almenningur notið þeirra vaxtalækkana og stöðugleika sem hann þurfi á að halda. Í framhaldi af þessu sagði Gylfi frá því að unnið væri að úttekt á því hvaða áhrif núnver- andi peningamálastjórn, í stað inngöngu í ESB, hefði haft fyrir félagsmenn ASÍ sl. 10 ár. Þar kæmi fram að húsnæðisvextir hér á landi hefðu verið fimm til sex sinnum hærri en á evru- svæði ESB. Hjón á meðallaunum sem keypt hefðu þriggja herbergja íbúð árið 2000 hefðu mátt leggja 12% af ráðstöfunartekjum sínum aukalega á hverju einasta ári í greiðslubyrði lána. Í heild- ina samsvaraði það þriðjungi af ráðstöfunartekjum landsmanna. 12% aukalega í húsnæðisvexti FORSETI ASÍ VILL ATHUGA TENGINGU KRÓNUNNAR VIÐ EVRU Formenn aðildarfélaga ASÍ ræða atvinnumálin í ljósi „grárrar“ hagskýrslu sambandsins Morgunblaðið/Sigurgeir S Forseti Gylfi Arnbjörnsson talar á formannafundi sambandsins. „Það er ljóst að aðalmálið í dag er að koma fram- kvæmdum af stað. Því var lof- að í síðustu kjara- samningum sem ríkisstjórnin kvittaði upp á,“ segir Björn Snæ- björnsson, for- maður Einingar – Iðju í Eyjafirði. Hann nefnir að hagspá ASÍ sýni hvað það gæti breytt miklu ef framkvæmdir hæf- ust við álver í Helguvík. Björn segir að atvinnuástandið sé ekki slæmt á Eyjafjarðarsvæðinu. Þar séu færri á atvinnuleysisskrá en á sama tíma í fyrra og nokkur bjart- sýni ríkjandi. Hann segir að vissu- lega hafi það verið áfall þegar hætt hafi verið vinnu við að undirbúa byggingu álvers á Bakka. Það hafi verið mikilvægt verkefni. Hann segir að ákveðin óvissa sé uppi hjá launamönnum almennt. Fólk hafi trúað því að það væri verið að hífa þessi mál upp, bæði atvinnu- málin og fjármál heimilanna en ým- islegt hafi farið úrskeiðis, til dæmis við úrvinnslu á skuldum heimilanna. Aðalmálið nú er að koma fram- kvæmdum af stað Björn Snæbjörnsson Skannaðu kóðann til að sjá mynd- skeið með Gylfa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.