Morgunblaðið - 27.10.2011, Page 19

Morgunblaðið - 27.10.2011, Page 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2011 O D D I- P1 1. 06 .4 23 Ljósberar fögnuðu við Langholtsveg „Þetta er húsið sem okkur hefur lengi langað til að eignast því það hentar þessari starfsemi mjög vel og er heimilislegt og notalegt,“ seg- ir Erna Magnúsdóttir, forstöðu- kona Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvar fyrir krabba- meinsgreinda. Ljósið fagnaði því í gær að nýverið var gengið frá kaupum á húsinu við Langholtsveg 43 og í veislu í tilefni húsakaupanna mátti sjá marga Ljósbera skarta forláta höttum. Erna segir að næsta skref sé að gera þjónustusamning við ríkið til að tryggja reksturinn til framtíðar. „Við höfum sannað okkur með öfl- ugu starfi í sex ár og það ætti ekki að þurfa meira til,“ segir Erna. Að- spurð hvort hún telji að slíkir samn- ingar náist á tímum niðurskurðar í heilbrigðisþjónustu segir hún að Ljósið hafi alltaf tileinkað sér já- kvæðni og bjartsýni. Mörgum sinnum í viku Ljósið hefur leigt húsið við Lang- holtsveg í fjögur ár, en var áður í tvö ár í kjallara Neskirkju. „Stefn- an hefur verið að eignast þetta hús síðan við fluttum hingað árið 2007. Við höfum safnað í sjóð með dyggri aðstoð landsmanna og húsið er keypt fyrir styrktarfé. Nú er þess- um áfanga náð og við þökkum stuðninginn af heilum hug,“ segir Erna. Hún segir að um 300 einstak- lingar komi í Ljósið í hverjum mán- uði og komurnar séu nokkur þús- und í mánuði. „Sumir koma mörgum sinnum í viku og fyrir utan námskeið og endurhæfingu er mik- ilvægt að fólk hittist og styrki hvað annað.“ aij@mbl.is  Ljósið stefnir að gerð þjónustusamnings við ríkið Morgunblaðið/Sigurgeir S. Veisla Slegið var upp veislu í Ljósinu fyrir Ljósbera í tilefni af húsakaupum og skörtuðu margir höttum. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Pálmi Haraldsson, eigandi Iceland Express, hefur farið fram á það hjá Sýslumanninum í Reykjavík að lög- bann verði sett á að Matthías Ims- land, fyrrum forstjóri félagsins, nýti sér trúnaðarupplýsingar sem hann bjó yfir í starfi til að vinna að stofnun annars flugrekstrarfélags. Er því einnig haldið fram í lögbannskröf- unni að Matthías hafi fegrað bókhald Iceland Express. Lögmaður Matthíasar, Jóhannes Árnason, sendi frá sér yfirlýsingu þar sem segir m.a. að lögbannskraf- an eigi sér enga stoð í lögum né í skriflegum samningum. Ráðningar- samningur Matthíasar, og ákvæði um takmarkanir á atvinnufrelsi hans, hafi fallið úr gildi um leið og Pálmi Haraldsson, eigandi Iceland Express, hafi kosið að segja Matt- híasi upp. Dæmalaus kröfugerð „Öllum má jafnframt vera ljóst hvert sé raunverulegt markmið þessarar dæmalausu kröfugerðar, það er að sverta skjólstæðing minn og gera tilraun til að kasta rýrð á störf hans á nýjum vettvangi,“ segir m.a. í yfirlýsingu lögmanns Matt- híasar Imsland. Einnig kemur fram að skoðað verði gaumgæfilega hvort ástæða sé til að höfða mál vegna „rógs og til- hæfulausra ásakana sem fram koma í lögbannskröfunni“. Fyrst verði far- ið fram á það að Sýslumaðurinn í Reykjavík hafni kröfugerð Pálma Haraldssonar. Sem fyrr segir er Matthías að undirbúa stofnun nýs flugrekstrar- félags. Er hann meðal eigenda fé- lagsins Iceland jet ehf. sem áformar áætlunarflug milli Íslands og Evr- ópu næsta sumar. Stærsti eigandi fé- lagsins er Skúli Mogensen en einnig er Baldur Baldursson meðal hlut- hafa en hann verður framkvæmda- stjóri félagsins, sem ekki hefur hlot- ið endanlegt nafn. Í tilkynningu frá aðstandendum félagsin segir m.a. að verið sé að leggja lokahönd á samn- inga við kanadískan flugrekanda um langtímaleigu á nokkrum Boeing- þotum sem mynda munu flugflota fé- lagsins til að byrja með. Höfuðstöðv- ar félagsins verða hér á landi og flug- reksturinn hefur að sögn verið fjármagnaður að fullu. Lögbannskrafa Pálma sögð án lagastoðar  Matthías Imsland tekur þátt í nýju flugrekstrarfélagi Matthías Imsland Pálmi Haraldsson Morgunblaðið/Sigurgeir S. Flugrekstur Eitt af síðustu verkum Matthíasar Imsland hjá Iceland Express var að rita undir samning vegna tónlistarverkefnsins Músík Express.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.