Teningur - 01.06.1989, Blaðsíða 8
SIGRUN A. EIRIKSDOTTIR
JORGE LUIS BORGES
Jorge Luis Borges fæddist í Buenos
Aires 24. ágúst 1899. í báöar ættir var
hann kominn af hermönnum sem
tekið höföu þátt í baráttu ríkja Suður-
Ameríku fyrir sjálfstæði og jafnvel
fallið sem hetjur, en einnig átti hann
ættir að rekja til menntamanna.
Snemma hefur komið í Ijós að fyrir
Borges lægi að fylla síðarnefnda hóp-
inn enda var hann nærsýnn og fremur
pasturslítill sem drengur. Faðir Borg-
esar var lögfræðingur og sálfræðingur
og mun hafa átt sér draum um að ger-
ast rithöfundur. Þessi draumur var lát-
inn rætast í syninum sem alinn var
upp innan um bækur sem hann las af
áfergju, en uppáhaldshöfundar hans
voru Kipling, R. L. Stevenson, Jos-
eph Conrad, H. G. Wells o.fl. sem
skrifuðu sögur sem áttu sér svið ein-
hvers staðar á mörkum draums og
áþreifanlegs veruleika. Föðuramma
Borgesar var ensk og enska og
spænska var töluð jöfnum höndum á
heimilinu, en nafnið Borges er portú-
galskt og, eins og Borges benti
stundum á, af germönskum stofni.
Líklega hefur það verið áhugi á eigin
uppruna sem varð til þess að Borges
lagði stund á engilsaxnesku og síðar
íslensku; hann vildi geta lesið forn-
bókmenntir Norður-Evrópu á því máli
sem þær voru ritaðar á. Hans eigið
hlutskipti sem rithöfundar er ef til vill
ástæðan til þess að andstæður
sverðs og penna, hetjuskapar og
heigulsháttar eru honum hugleiknar.
Sennilega er það engin tilviljun að
Snorri Sturluson sem eyddi miklum
hluta ævinnar í að skrá afreksverk
annarra en reyndist sjálfur heigull sé
Borges hugstæður. í mörgum verkum
Borgesar eru argentískar hetjur í
aðalhlutverkum, ekki víkingar, heldur
smábófar vopnaðir hnífum.
Það var einnig hjá föður sínum sem
Borges kynntist fyrst heimspekinni.
Einkum er tvennt sem Borges nefndi
oft í sambandi við heimspekilegt upp-
eldi sitt. Annars vegar þverstæða
Zenós um kapþhlaup Akkillesar og
skjaldbökunnar þar sem hinum fótfráa
Akkilles tekst aldrei að hlaupa hæg-
fara skjaldbökuna uppi. Hitt atriðið
varðar minnið. Faðir Borgesar
útskýrði fyrir honum hvernig við
minnumst atburðar aðeins einu sinni,
næst þegar við rifjum atburðinn upp
erum við í raun að rifja upp síðustu
minningu okkar um hann og þannig
koll af kolli. Ressi tvö atriði er að finna
í mismunandi útgáfum í mörgum
verkum Borgesar, annars vegar þver-
stæðuna sem byggð er á óyggjandi
rökum, hins vegar bilið á milli hlut-
stæðs veruleika og okkar huglægu
skynjunar á honum, sem síhvikult
minni okkar tekur síðan að sér að
varðveita.
Árið 1914 flyst fjölskyldan til Genfar
í Sviss og dvelur í Evrópu til 1921.
Þessi ár verða enn frekar til að móta
smekk og persónu Borgesar. Hann
lærir frönsku, þýsku og latínu og les
mikið á þessum tungumálum, m.a.
þýska heimspekinga. Þá kynnist hann
verkum Schopenhauers sem hefur
líklega verið honum kærastur heim-
spekinga. Þegar fjölskyldan snýr
heim eftir langa fjarveru uppgötvar
Borges fæðingarborg sína með nýrri
sýn og nefnist fyrsta Ijóðabók hans
Ást til Buenos Aires (Fervor de
Buenos Aires) og kom út árið 1923.
Borges hóf rithöfundarferil sinn
sem Ijóðskáld og ritgerðasmiður.
Fyrstu þrjú ritgerðasöfnin eru orðin
dýrmætir safngripir núna því að aldrei
leyfði hann endurútgáfu á þeim. Árið
1932 kom út ritgerðasafnið Rökræður
(Discusión), 1935 Saga hinna iit-
ræmdu (Historia universal de la
infamia) og 1936 Saga eilífðarinnar
(Historia de la eternidad) sem öll hafa
verið endurútgefin margoft síðan. í
því síðastnefnda er að finna allmerka
ritgerð um kenningar í íslenskum
fornkveðskap.
Segja má að árið 1938 marki tíma-
mót í rithöfundarferli Borgesar. Þá
meiðir hann sig á höfði og fær blóð-
eitrun svo að dögum saman liggur
hann milli heims og helju (oft er talið
að sagan „Suðrið" sem út kom á ís-
lensku í samnefndri bók árið 1975
byggi að einhverju leyti á þessari
reynslu). í afturbatanum skrifaði hann
fyrstu smásöguna sem segja má að sé
dæmigerð fyrir hann: Pierre Menard,
höfundur Don Kíkóta (Pierre Menard,
autor del Quijote). Sagan líkist alls
ekki venjulegri smásögu heldur rit-
gerð eða minningagrein. Borges þyk-
ist vera að minnast franska rithöfund-
arins Pierre Menard sem er nýlátinn
og nefnir helstu verk hans, en dvelur
þó einkum við hans mesta verk sem
var í því fólgið að gleyma sögunni um
don Kíkóta en skrifa hana svo upp á
nýtt, orðrétt eins og Cervantes skrifaði
6