Teningur - 01.06.1989, Qupperneq 17

Teningur - 01.06.1989, Qupperneq 17
JORGE LUIS BORGES DAUÐINN OG ÁTTAVITINN Af fjölmörgum gátum sem glæfra- fengin dómgreind Lönnrots fékk aö spreyta sig á, var engin jafn furöuleg - jafn kaldranalega dularfull skulum við segja - og þeir blóöidrifnu atburðir sem gerðust með jöfnu millibili og náðu hámarki í þungum ilmi trölla- trjánna að setrinu Triste-le-Roy. Rví verður ekki á móti mælt að Eric Lönn- rot mistókst að koma í veg fyrir síð- asta morðið, en hann sá það fyrir, um það verður ekki deilt. Hann komst ekki heldur að því hvaða ógæfumaður það var, sem myrti Yarmolinsky, en honum tókst að ráða hina dularfullu formfræði að baki keðju ódæðanna og líka hlut Scharlachs rauða í þeim, en hann er einnig uppnefndur Scharlach fíni. Sá glæpamaður (eins og óteljandi aðrir) hafði svarið þess dýran eið að drepa hann, en Lönnrot hafði slíkar ógnanir að engu. Það var sannfæring Lönnrots að hann væri maður hreinnar rökhyggju, allt að einu og Auguste Dupin, en þó var í honum nokkur ævintýramaður, jafnvel ögn af áhættuspilara. Fyrsta morðið átti sér stað á Hotel du Nord. Það er til húsa í mikilli margstrendri byggingu og gnæfir yfir víkinni framan við árósana. Þar úti fekur sjórinn á sig liti eyðimerkur. Þangað upp í turninn (þaðan stafar í senn svo sem illræmt er hryllingi spít- alahvítu, rúðustrikun fangelsis og almennu yfirbragði hóruhúss) kom þann þriðja desember, sendifulltrúi frá Þodolsk. Hann var að fara á þriðja Talmud þingið. Doktor Marcel Yarmol- insky var gráskeggjaður maður og gráeygur. Við fáum aldrei að vita hvort honum féll vistin vel á Hotel du Nord, hann tók öllu sem að höndum bar af ævagamalli seiglu, en á henni hafði hann þraukað stríðsárin þrjú í Karp- atafjöllum og þrjú þúsund ár kúgunar og ofsókna. Honum var vísað til her- bergis á R hæð og gegnt svítunni þar sem Tetrarkinn í Galileu gisti, ekki alveg án glæsibrags. Yarmolinsky fékk sér að borða og sló allri skoðun á ókunnri borg á frest þar til næsta dag. Hann raðaði bókum sínum mörgum og einka eigum fáum samkvæmt venju. Fyrir miðnætti hafði hann slökkt hjá sér Ijósið. (Þetta er sam- kvæmt yfirlýsingu bílstjóra Tetrarks- ins sem gisti í næstliggjandi her- bergi). Klukkan 11.03 fyrir hádegi þann fjórða reyndi ritstjóri Yidische Zaitung að ná sambandi við hann um síma. Doktor Yarmolinsky svaraði ekki. Hann fannst í herberginu. Þegar komið var inn mátti sjá að andlitið var þegar farið að dökkna. Hann var klæddur í víða herðaslá, mjög forn- lega flík, en innanundir nærri því nakinn. Hann lá skammt frá dyrum sem opnast fram á ganginn. Djúpt sár eftir hníf skildi brjóstkassann í tvennt. Nokkrum stundum síðar, í sama her- bergi innan um blaðamenn, Ijós- myndara og lögregluþjóna voru nú Treviranus lögreglufulltrúi og Lönnrot að ræða málið í rólegheitum. „Þarflaus leit að þrífættum ketti hér." Var Treviranus að segja og brá um leið konunglegum vindli. „Allir vita að Tetrarkinn í Galileu á einhverja fínustu safíra í heiminum. Einhver sem ætlaði að stela þeim hlýtur að hafa brotist hér inn fyrir mistök. Yarmo- linsky vaknaði fór á fætur og ræning- inn neyddist til að drepa hann. Hvernig hljómar þetta." „Það er mögulegt, en ekki áhuga- vert.“ Svaraði Lönnrot. „Og þú svarar því þá til, að veruleikanum beri ekki nokkur skylda til að vera áhugaverður. Og þá svara ég því, að veruleikanum sé svo sem heimilt að forðast þá skyldu, en skýringartilgátunni ekki. Samkvæmt tilgátu þinni á tilviljun ríf- legan hlut að máli. Hér höfum við dauðan rabbía. Ég kýs heldur hreina rabbíska skýringu. Ekki ímyndaða óheppni ímyndaðs ræningja." Það lá ekki vel á Treviranusi þegar hann svaraði: „Mér er nokk sama um rabbínskar skýringar. Það sem mig varðar um er að handtaka þann sem stakk þennan ókunna einstakling.“ „Ekki svo ókunnan," leiðrétti Lönn- rot hann. Þarna er heildarútgáfa verka hans.“ Hann benti í átt að skáp við vegginn. Þar stóðu miklar bækur í röð: Til varnar Cabbala, Rannsókn á heimspeki Roberts Fludds, bókstafs- þýðing á Sepher Yezirah, ævikrónika Baal Shems, Saga trúflokks Hasída, fræðirit (á þýsku) um Tetragramma- ton, og annað um guðsnöfn Fimmbóka- ritsins. Lögreglufulltrúinn leit yfir bækurnar, smeykur að sjá, allt að því af andstyggð. Svo fór hann að hlæja. „Ég er nú bara vesæll maður og kristinn." Sagði hann. „Þú getur átt þessar mygluðu skruddur ef þú villt, ég hef engan tíma í júðska hjátrú." 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Teningur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.