Teningur - 01.06.1989, Qupperneq 21
Azevedo varaði hann við að láta í sér
heyra. Yarmolinsky teygði sig í átt að
bjöllunni sem gat vakið allan liðsafla
hótelsins. Þvf svaraði Azevedo með
einu lagi í brjóstkassann. Þetta var
næstum því ósjálfrátt viðbragð.
Hálfrar aldar reynsla af ofbeldi hafði
kennt honum að auðveldast og
öruggast er að drepa ... Ég komst að
því tíu dögum síðar gegnum Yidische
Zaitung að þú værir að leita lausnar á
gátunni um dauða Yarmolinskys í
skrifum hans sjálfs. Ég las yfir Sögu
trúflokks Hasída. Ég komst að því að
lotningarfullur ótti við að nefna nafn
Guðs hefur komið á fætur kennisetn-
ingu þess efnis að nafnið sé almáttugt
og öllum hulið. Ég komst líka að því
að einhver Hasídi hafði gengið svo
langt í leit sinni að Hinu leynda nafni
að hann hafði reynt mannfórnir... Ég
vissi að þú myndir draga þá ályktun
að Hasídar hefðu fórnað rabbianum.
Ég tók mér fyrir hendur að renna
stoðum undir þá ályktun.
Marcel Yarmolinsky dó að kvöldi
hins þriðja desember. Ég valdi því
kvöld hins þriðja janúar til annarrar
„fórnarinnar''. Hann dó í norður-
hlutanum þess vegna hentaði vel að
önnur „fórnin" yrði framin í vestur-
hlutanum. Daníel Azevedo varð nauð-
synlega að deyja, hann átti það skilið.
Hann lét stjórnast af hvötum sínum,
hann var svikari. Handtaka hans gat
gert alla áætlunina að engu. Einn
okkar stakk hann og til þess að tengja
líkin skrifaði ég yfir tígla málningar-
búðarinnar: ANNAR STAFUR í
NAFNI HEFUR NÚ VERIÐ NEFNDUR.
Þriðji „glæpurinn" var látinn bera
upp á hinn þriðja febrúar. Það var eins
og Treviranus gat sér til sviðsetning.
Ég er Gryphius-Ginzberg-Ginsburg.
Það var ég sem þreyði leiðindin í viku
(uppábúinn með lélegt gerviskegg) í
þessum líka afskræmilega klefa við
rue de Toulon, allt þangað til vinir
mfnir komu og fóru með mig á burt.
Standandi á fótskör bílsins skrifaði
einn þeirra á skúrinn: SÍÐASTI
STAFUR í NAFNI HEFUR NÚ VERIÐ
NEFNDUR. í setningunni fólst að röð
Qlæpanna gerði þá að þrennd. Þannig
skildi líka almenningur það. Samt
sem áður dreifði ég fleiri táknum sem
þú rökhugsuðurinn Eric Lönnrot áttir
að skilja svo að um fernd væri að
ræða. Að horn í norðri, önnur í austri
og vestri kölluðu á fjórða hornið í
suðri. Tetragrammaton - nafn Guðs,
JHVH - er fjögurra stafa orð. Trúð-
arnir og tíglarnir á málningarbúðinni
bentu einnig í átt að fjórða punktinum.
Ég strikaði ennfremur undir málsgrein
í handbókinni frá Leusden. Þar
stendur að Hebrear ákvarði dag frá
sólarlagi til sólarlags. Af því átti að
vera Ijóst að dauðadagana átti að telja
til hins fjórða hvers mánaðar. Ég
sendi jafnhliða þríhyrninginn til Trevir-
anusar. Ég sá fyrir að þú myndir finna
þann punkt sem á vantaði. Þann
punkt sem vantaði til að mynda réttan
tígul. Punktinn þar sem bíður þín
nákvæmlega útlagður dauðadagi. Það
var ég sem lagði á ráðin, Eric Lönnrot,
til að ginna þig hingað í einsemdir
Triste-le-Roy.“
Lönnrot leit undan augnaráði
Scharlachs. Hann leit yfir tré og
himinn, allt klofið í óreiðu gulra,
grænna og rauðra tígla. Hann fann
ofurlítið til kulda og líka til dapurleika
en hann var ópersónulegur - næstum
því nafnlaus. Það var komið kvöld.
Utan frá rykgráum garðinum barst
fánýtt garg í fugli. í síðasta sinn velti
Lönnrot nú fyrir sér gátunni um hina
samhverfu og reglubundnu dauð-
daga.
„Þitt völundarhús er gert af þremur
línum". Sagði hann að síðustu. „Mér
er kunnugt um grískt völundarhús,
sem er ein bein lína. Á leið sinni eftir
henni hafa svo margir heimspekingar
villst, að ekki væri að undra þó þannig
færi fyrir einum leynilögreglumanni
líka. Þegar þú Scharlach í einhverju
öðru lífi verður enn að elta mig skalt
þú þykjast fremja (eða fremja) glæp á
punktinum A, annan glæp á B átta
kílómetrum frá A, síðan þriðja glæp-
inn á C, fjórum kílómetrum frá A og B,
það er mitt á milli þeirra. Bíddu mín
síðan á D punkti, tvo kílómetra frá A
og C það er mitt á milli þeirra. Dreptu
mig á D punkti rétt eins og þú ætlar nú
að drepa mig að Triste-le-Roy.“
„Næst þegar ég drep þig, “ svaraði
Scharlach, „þá lofa ég þér völundar-
húsi einnar línu sem er ósýnileg og
óendanleg."
Hann hopaði aðeins á hæl, tók mið
af nákvæmni og varlega i gikkinn.
Úr Skáldverkum 1944
Slgfús Bjartmarsson þýddi
19