Teningur - 01.06.1989, Síða 22
JORGE LUIS BORGES
VINUR í RAUN
Mynd okkar af borginni er alltaf svo-
lítiö úrelt. Kaffihús hafa afmyndast í
krár; og nú eru gömul bogamynduð
andyri með flúruðum járnhliðum, þar
sem eitt sinn brá fyrir görðum og slút-
andi vínvið, subbulegir gangar sem
vísa beina leið að lyftu. í samræmi við
þetta hélt ég í nokkur ár að í vissri
húsaröð við Talcahuanogötu fyndi ég
enn Bókaverslun Bueones Aires. En
einn morgun uppgötvaði ég að í
hennar stað var komin fornminjaversl-
un og mér var sagt að herra Santiago
Fischbein, eigandi hennar, væri látinn.
Fischbein hafði verið þrekvaxinn
maður, í þyngra lagi, en útlit hans
man ég síður en langar samræður
okkar. Á sinn þögla en ákveðna hátt
hafði hann alla tíð verið andsnúinn
Zionisma, sem hann taldi að mundi
breyta Gyðingnum í ósköp venju-
legan hversdagsmann - njörvaðan
við eina hefð og eitt föðurland en ekki
lengur auðgaðan af átökum og erjum.
Eitt sinn sagði hann mér að hann
hefði verið að vinna að víðtæku safn-
riti með verkum Baruch Spinoza, án
allra rúmfræðilegra skýringa, sem, í
sömu mund og þær gefa hinu undar-
lega kerfi blekkjandi nákvæmni, slá
lesandann flatan. Hann vildi ekki selja
mér en leyfði mér að kíkja í sjaldgæft
eintak af Kabbala Denudata eftir
Rosenroth. Heima á ég enn nokkrar
bækur um Kabbala eftir Ginsburg og
Waite með stimpli frá bókaverslun
Fischbeins.
Eitt síðdegi, þegar við vorum tveir
einir, trúði hann mér fyrir sögu frá
æskudögum sínum, og nú finnst mér
sem ég geti skrifað hana niður. Eins-
og vænta má færi ég eitt eða tvö
smáatriði í stílinn. Hér á eftir fer það
sem Fischbein sagði.
Ég ætla að segja þér svolítið sem ég
hef aldrei sagt neinum áður. Ana -
konan mín - veit ekkert um þetta, né
neinir af nánustu vinum mínum. Þessir
atburðir gerðust fyrir svo mörgum
árum að nú finnst mér stundum sem
þeir hafi hent aðra persónu. Þú getur
kannski notað eitthvað af þessu í
sögu - sem þú vitaskuld dulbýrð. Ég
veit ekki hvort ég hef sagt þér að ég
er fæddur í Entre Ríos héraðinu. Ég
get ekki kallað okkur gyðinglega
kúreka - það voru aldrei til neinir gyð-
inglegir kúrekar. Við vorum verslunar-
eigendur og bændur. En hvað sem
því líður fæddist ég í Urdinarrain,
borg sem ég man varla eftir lengur.
Ég var mjög ungur þegar foreldrar
mínir fluttu til Buenos Aires til að opna
verslun. Skammt frá þar sem við
bjuggum var Maldonado og fyrir
neðan þann skurð tóku við opin
svæði.
Carlyle segir að menn þurfi að
dýrka hetjur. í argentínskum skóla-
bókum var reynt að fá mig til að dýrka
San Martín, en í honum sá ég lítið
annað en hermann sem háði orustur
sínar í öðrum löndum og sem nú er
aðeins bronsstytta og nafn á torgi.
Samt sem áður - því miður fyrir okkur
báða - sá tilviljunin um að útvega mér
annars konar hetju. Þú hefur áreiðan-
lega ekki heyrt hans getið áður. Hann
hét Francisco Ferrari.
Okkar hverfi var kannski ekki jafn
slæmt og Griparéttirnar eða eyrin, en
það hafði sinn skammt af ofstopa-
mönnum sem héngu á gömlu kránum.
Ferrari vandi komur sínar á sérstakan
stað á horninu á Triunvirato og
Thames. Þar urðu þau atvik sem
hrundu mér í fang hans. Ég hafði
verið sendur á krána til að kaupa lítinn
pakka af grasatei þegar inn gekk
ókunnugur maður með sítt hár og
yfirvaraskegg sem pantaði einn sjúss
af gini. í mildum tón sagði Ferrari við
hann: „Hvernig er það, hittumst við
ekki í fyrrakvöld á ballinu hjá
Júlíönnu? Hvaðan ert þú?“
„Frá San Cristóbal," sagði hinn
maðurinn.
„Ég mundi telja, sagði Ferrari, enn
mjúkur á manninn, „að þér væri holl-
ast að vera annars staðar. í þessu
hverfi eru allir að snapa vandræði."
Um leið snerist maðurinn á hæl -
yfirvararskeggið og allt. Kannski var
hann jafn mikill maður og Ferrari en
hann vissi að aðrir úr hópnum voru í
nánd.
Frá því síðdegi að telja var Fran-
cisco Ferrari sú hetja sem ég sem
fimmtán ára var í leit að. Hann var
dökkur yfirlitum, beinn í baki og stór-
flottur á mælistiku tímans. Hann var
alltaf svartklæddur. Einn dag átti sér
stað annað atvik sem tengdi okkur.
Ég var úti á götu með móður minni og
frænku þegar við rákumst á hóp af
ungum ribböldum. Einn þeirra sagði
hátt við hina:
„Gamalt hyski. Leyfið þeim að
komast."
20