Teningur - 01.06.1989, Page 30
ÞORIR KR. ÞORÐARSON
GLETTNI SEM GRÍMA RAUNVERULEIKANS
i
Jónasarbók Gamla testamentisins er
frásögn meö glettnisfullum brag, en
að baki kankvísrar frásagnargleðinnar
býr djúp alvara. Frásögnin er borin
uppi af andstæðum, annars vegar
grátbroslegum raunum Jónasar sem
heldur sig fast við reglur og lögmál,
en hins vegar miskunn Guðs, sem
tekur mannlegum breyskleika með
nokkurri kímni og lýtur ekki mann-
legum lögmálum. Höfundurinn beitir
ýmsum brögðum til að sýna viðbrögð
Jónasar og til að sýna þverstæðu
frelsisins og miskunnarinnar. í fyrri
hluta bókarinnar eru áberandi and-
stæðurnar milli niðurstigningar og upp-
stigningar, þess að sökkva niður í
örvilnan, og hins að stíga upp til trúar
og vonar. í síðari hluta bókarinnar eru
meginandstæðurnar annars vegar milli
litríks konungsins í Niníve, sem er
sýndur í trúðslegu Ijósi, og einstreng-
ingslegs spámannsins sem boðar eld
og brennistein, og hins vegar Guðs
aö gantast við löghyggjumanninn
Jónas til þess að koma miskunnsemi
í hjarta hans. Markmið Jónasarbókar-
innar er að sýna fram á þverstæðu
miskunnseminnar. Það gerir höfund-
urinn hins vegar ekki með því að setja
fram kennisetningar, heldur með því
að segja sögu.
FLÓTTI JÓNASAR
Sagan hefst á viðburði sem er sama
eðlis og þegar spámenn Guðs fengu
kall um að gegna þjónustu:
Orð Drottins kom til Jónasar, sonar
Amittaj: „Leggðu af stað og farðu til
Níníve, hinnar miklu borgar! Prédik-
aðu gegn henni, því að illska hennar
hefur stigið upp til mín!“
Jónas leggur að sönnu af stað, eins
og honum var boðið, en í þveröfuga
átt. í stað þess að halda, eins og Guð
hafði boðið honum, íaustur, til Níníve
við ána Tígrís í Mesopótamíu, heldur
hann /' vestur, niður að Miðjarðarhaf-
inu, til borgarinnar Jaffa. Þar kaupir
hann sér far alla leið til Spánar
(Tarsis).
Jónas er á flótta. Skipið leggur af
stað, en ekki höfðu þeir lengi siglt er
fárviðri skellur á. Særokið rýkur um
reiða skipsins og himinháar öldur hafa
skipið að leiksoppi og hóta að færa
það í kaf. Á dekkinu er allt á tjá og
tundri er skipverjar berjast við ofviðrið
og kasta öllu lauslegu fyrir borð og
einnig farmi skipsins í þeirri von að
það sykki ekki sökum ofhleðslu. þeir
reka upp skelfingaróp og hrópa hver á
sinn guð.
En hvar er Jónas? Skipstjórinn
leitar hans um allt og finnur loksins.
Þar liggur Jónas neðst niðri í lestum
skipsins steinsofandi!
Þessi sýn er næsta spaugileg. En
hún vekur líka óhug. Jónas er í
djúpum svefni, nærri því eins og vank-
aður. Flótti hans er með einhverjum
hætti í andstöðu við hið rétta eðli hlut-
anna, brot á rökum lífs hans. Skip-
stjórinn reynir að vekja hann:
„Hvað gengur að þér? Þú sefur!
Rístu upp og ákallaðu guð þinn! Ef til
vill hugsar hann náöarsamlega til
okkar svo að við förumst ekki!“
Athyglisvert er að skipstjórinn
ávarpar Jónas hinu sama orði, „Rís
upp,“ {qúm) og Drottinn ávarpaði
Jónas með í upphafi sögunnar:
„Leggðu af stað" (qúm). Það er eins
og kall Guðs til ábyrgðar, sem Jónas
var á flótta undan, sé endurtekið fyrir
munn hins „heiðna" skipstjóra. Þetta
kall um að standa á fætur, rísa upp og
takast á við lífið hefur sína andstæðu
í lífi Jónasar, sem sífellt fer niður.
Hann fer ofan (yarad) til Jaffa, hann
fer niður (yarad) í skipið (fer um
borð), og í skipinu, þegar allt er á tjá
og tundri uppi á dekki í vitlausu veðri. ^
fer hann niður (yarad) í neðsta rúm í
skipinu og sofnar þar í uppgjöf sinni.
Nú fer að renna upp Ijós fyrir skip-
verjunum. Það hlaut að vera til skýr-
ing á þessu skyndilega óveðri sem
brast á eins og þruma úr heiðskíru
lofti og ógnaði lífi þeirra og ætlaði að
færa skipið í kaf. Og þeir kunnu
örugga aðferð til þess að komast
að því hvað ylli ógæfunni og hvernig
komast mætti úr lífsháskanum. Þeir
kasta hlutum og teningarnir sýna að
farþeginn furðulegi á sök á þessu!
Og nú hefst yfirheyrsla yfir Jónasi:
„Segðu okkur: í hvaða erinda-
gerðum ertu? Hvaðan kemur þú? Frá J
hvaða landi ertu? Af hvaða þjóð?“
Hann svaraði: „Ég er Hebrei, og ég
trúi á Drottin, guð himinsins, sem
skapað hefur sjó og land.“ Þá urðu
skipverjarnir skelfingu lostnir og
sögðu við hann: „Hvað hefur þú
gert! “
Nú lýkst það upp fyrir þeim sem
Jónasi var hulið, að enginn getur
umflúið Guð né sjálfan sig né örlög »
sín. Það eru kannski kynni þeirra af
28