Teningur - 01.06.1989, Blaðsíða 36
JEAN-LOUIS DEPIERRIS
ÚR LJÓÐABÁLKINUM SJÁVARBORG
Jean-Louis Depierris er meðal helstu
núlifandi Ijóðskálda Frakka. Hann
fæddist 28. des. 1931 í Pau í Pýrenea-
fjöllum af frönskum og katalónskum
ættum. Faðir hans var embættis-
maður og móðir hans prófessor í bók-
menntum. Þau þurftu um þessar
mundir að starfa í Óran í Alsír, en
Jean-Louis ólst upp fyrstu árin hjá
móðurfrænku sinni sem var kennslu-
kona í héraðinu Haute-Garonne (fyrir
sunnan Toulouse). Þar tengdist hann
jörðinni og sveitalífinu. Frá fjögurra
eða fimm ára aldri var hann hjá for-
eldrum sínum í Óran á vetrum, en á
sumrum hjá frænku sinni í Frakklandi.
Hann lærði bókmenntafræði við Sor-
bonne-háskóla í París og við háskól-
ann í Clermont-Ferrand. Árið 1971
varð Depierris forráðamaður „Frönsku
stofnunarinnar" (Institut frangais) í
hafnarborginni Split í Júgóslavíu og
var hann jafnframt sendikennari við
háskólann þar. Hann gekk að eiga
júgóslavneska konu, Djurdju, og þau
bjuggu í húsi við sjóinn. Þannig varð
til bálkur sá sem hér er lítillega
kynntur. Skáldið horfir frá húsi við
sjóinn. Slíkt hús er á íslandi nefnt
Sjávarborg, ef því er að skipta, en á
nútímavísu má einnig tengja það nafn
venjulegri borg við sjó. Ljóðabálkur-
inn Sjávarborg (Loge de mer) er i
knöppu formi, erindin stundum ekki
nema tvær Ijóðlínur. Þannig yrkir
Depierris jafnan, ekkert orð hans er
tilviljunarkennt, hann er í þeim efnum
skyldur Valéry og Mallarmé. En ein-
kenni hans eru næm skynjun á náttúru-
öflunum.
Jean-Louis Depierris hefur undan-
farin ár verið menningarfulltrúi í
franska sendiráðinu í Reykjavík og
mjög áhugasamur um frönsk-íslensk
menningarsamskipti.
J.Ó.
minnsti andvari
íklæðist greinum
IV
eldingin hrein
grisjar feyskna gæfu
V
brimskafl mylur
bryggjusporðinn
regnið sitrar um stéttir
hamast regn yfir hafi
roksins áhlaup
rífur segldúka
fleyja við festar
34