Teningur - 01.06.1989, Page 58
AÐ SKAPA LITI OG HRYN I TONUM
SAMTAL VIÐ ÁSKEL MÁSSON
j
1
Ég átti heima á Rauöalæk um þessar
mundir. Dag nokkurn um veturinn var
meö ólíkindum kalt, frostharka og
vindgustur. Ég átti aö mæta í kennslu-
stund síödegis og æföi mig því á
klarínettið af kappi fram á seinustu
stundu. Tók þá strætó niður í Hljóm-
skála og var dauðhræddur um aö
hljóðfærið spryngi á leiðinni vegna
frostsins. Þaö sást ekki hræöa á stjái.
Þegar niður í Hljómskála kom tók ekki
betra viö - þar var engan að finna.
Trjánum var kalt. Mér var kalt. Ég
hékk nötrandi við luktar dyrnar um
stund, þó ekki jafn lengi og maðurinn
hjá Kafka. Ákvað að því búnu að selja
klarínettið. Held ég hafi aldrei orðið
jafn reiður á ævinni. Þetta var svo
mikið virðingarleysi. Ég var tíu ára.
Skömmu seinna byrjaði ég svo að
fikta við ásláttarhljóðfæri, blaða í
nótum og kynna mér vinnuaðferðir
tónskálda. Mig langaði að vita hvaða
lögmál lægju að baki þessari undar-
legu skrift. Kannski það sé því Páli
Pampichler að kenna hver ég varð.
Þeim dyraverði.
2
Svo var það Tónlistarskólinn. Sá kafli
er stuttur. Ég sætti mig ekki við
kennsluaðferðirnar og gekk út, kom
mér heim. Þarna voru hafðar fyrir
manni reglur eins og þær væru algild
lögmál. Við fengum hins vegar ekki
að vita AF HVERJU? Ég hafði áður
kynnt mér eftir föngum tónlist gömlu
meistaranna og vissi að þeir þver-
brutu þessar reglur þegar þeim þókn-
aðist. Svo ég gekk út, kom mér heim.
Það var náttúrlega minn barnaskapur
að skilja ekki að maður lærir reglur til
að geta brotið þær. En kannski mér
hafi bara legið á. Um þetta leyti var
mér orðið Ijóst að músíkin yrði mitt
hlutskipti. Það var engin spurning. Ég
lagðist því í sjálfsnám, fór yfir fingra-
skóla fyrir orgel, lá yfir nótum og byrj-
aði að semja verk. Áður hafði ég
reyndar fengist við að skrifa laglínur-
þrettán eða fjórtán ára.
Næstu árin voru viðburðarík. Það er
eins og allt hafi gerst í einni svipan og
margt af því betur gleymt en geymt.
Ég spilaði með popphljómsveitinni
Náttúru í hálft ár, sótti tíma í Myndlist-
arskólanum og stofnaði ásamt öðrum
Combó Þórðar Hall sem varð lands-
fræg af litlum efnum, flutti til Hafnar í
blindni og spilaði jass í Montmartre
með hljómsveitinni Kodans Bölge, lifði
lífinu og fékk mig fullsaddan. Þegar
heim kom eftir nokkra mánuði vissi ég
ekki mitt rjúkandi ráð. Mig langaði til
að gera eitthvað í músík en vissi ekki
hvað. Fann fyrir einhverju afli hið innra
en kunni ekki að virkja það. Ekki þá.
3
Klarínettið er mitt fyrsta hljóðfæri. Ég
byrjaði að læra á það sjö eða átta ára
gamall í Barnamúsíkskólanum þar
sem ég fékk leiðsögn í rúmt ár hjá
Gunnari Egilssyni. Við vorum þrír
strákar hjá honum. Kennsla Gunnars
er mér ógleymanleg vegna þeirrar
virðingar sem hann bar fyrir sínu
hljóðfæri og tónlist yfirleitt. Hann var
að fást við eitthvað sem var ekkert
venjulegt, eitthvað sem var stórkost-
legt og af guðlegum toga. Þessi til-
finning situr enn í mér enda hef ég
samið allmikið af klarínettutónlist.
Fyrir allmörgum árum skrifaði ég til
dæmis klarínettukonsert fyrir Einar
Jóhannesson sem frumfluttur var í
Reykjavík 1981 en hefur farið víða og
verið leikinn á hljómplötu og geisla-
disk. Á næstunni mun Einar flytja
hann á írlandi. Þessi konsert er lag-
rænn og hrynmikill, byggður upp á
elegískum línum og þremur kadens- J
um. Að hluta til er hann unninn upp úr
mínu fyrsta hljómsveitarverki sem
kallaðist HUGHRIF og var eitt sinn
leikið í Bergen. Klarínettið er heillandi
hljóðfæri. Það er lipurt, hefur vítt
tónsvið og býður upp á mikla mögu-
leika. Það er nánast hægt að spila allt
á það. Annars hef ég skrifað konserta
fyrir ýmis hljóðfæri - víólu, litla
trommu, marimbu, píanó og básúnu.
Öll hafa þessi hljóðfæri sína einstæðu
möguleika.
4
Ég tók að skrifa tónlist í alvöru
skömmu eftir heimkomuna frá Höfn. j
Ætli það hafi ekki verið 1970. Mitt
fyrsta verk, „opus 1" var SILJA, samið
fyrir þrjá slagverksleikara. Mér hafði
fundist mjög erfitt að skrifa fyrir áslátt-
arhljóðfæri en var svo heppinn að
komast yfir nótur að verkinu ZYCLUS
eftir Carl-Heinz Stockhausen. Þar sá
ég skemmtilega lausn: grafíska nótna-
skrift. Ég hugsaði mér SILJU sem fæð-
ingu. Verkið er einfalt að formi og hefst *
á látlausum klið - flytjendur ganga inn
56