Svart á hvítu - 01.01.1979, Síða 4
Björn Jónasson
Örn Jónsson
Reggae
Eftirfarandi grein er biggð á frásögn Sypheliu
Morgenstierna sem tók sér ferð á hendur til
heimalands Reggae tónlistarinnar. Syphelia starfar
mikið fyrir ágætt norskt tímarit, Gateavisa, sem
vonandi verður hægt að kinna nánar síðar. Reggae
nítur stöðugt meiri hilli á vesturlöndum og hafa
fjölmargar hljómsveitir tileinkað sér þetta tónlistar-
form. í greininni verður gerð tilraun til að kinna
tónlistina og þann bakgrunn sem hefur mótað
hana.
Tötralíðurinn á Jamaica
Á eijunni Jamaica búa um tvær milljónir manna. í
landinu ríkir mikil stéttaskipting og markast stétt-
arstaða nokkurn veginn af kinþætti. Fámenn hvít
ifirstétt, lítið eitt fjölmennari millistétt sem aöallega
samanstendur af kinblendingum og Ijósari svert-
ingjum og síðan snauður fjöldinn sem í ifirgnæf-
andi meirihluta eru svertingjar. Það eru þeir síð-
astnefndu sem skapað hafa Reggae tónlistina eða
sá hluti þeirra sem biggir fátækrahverfin í höfuð-
borg Jamaica, Kingston.
í landinu ríkir mikil fátækt og hafa þrjár helstu
útflutningsvörur landsins, bauxít, sikur og bananar
stöðugt orðið verðminni á heimsmarkaðnum. Að
nafninu til eru sósíal-demókratar við völd í landinu.
En tveir stærstu flokkarnir, Jamaicas Labour Party
og Peoples National Party eru báöir samdauna
landlægri spillingu. Kosningaloforðin og einhverjir
tilburöir til þjóðnítingar 1972 nægöu til að fjölþjóð-
legu auöhringar, sem höfðu hagsmuna að gæta,
kröföust þess aö málefnum landsins irði stjórnað af
alþjóðagjaldeirissjóðnum.
Undanfarin ár hefur verðbólgan verið gífurleg,
en laun frist. Verölag er svipað og á norðurlöndum,
en laun verkamanna aðeins um fimmtungur þess
sem þar tíðkast. Átök í efnahagslífinu eru hörð en
sá hópur sem þessi grein fjallar um hefur að mestu
staðið firir utan þau. Stór hluti svertingjanna er at-
vinnulaus og hefur enga von um vinnu. Sérstaklega
er atvinnuleisi algengt í þéttbíliskjörnum og hefur
þróast sérstæð menning í fátækrahverfunum. Stór
hópur heldur sér markvisst utangarðs, afneitar
bæöi gildum þess og verðmætum. Þaö var meðal
þessara utangarðsmanna eöa tötralíðs sem
Reggae tónlistin þróaðist.
Upphaf Reggae
í upphafi fimmta áratugsins var Rhythm & Blues
(R&B) tónlistin vinsæl í Bandaríkjunum. R&B svip-
aöi á margan hátt til tónlistarhefðar Jamaicabúa,
sem var einskonar blanda af afrískum takti, trúar-
legum dönsum, breskri þjóðlagatónlist og Calypso
frá Trinidad. f fátækrahverfum Kingston var fátt um
útvörp eöa plötuspilara. Ní starfsgrein varö til,
svokallaóir farandplötusnúðar. Þeir innréttuðu bíla
með hljómflutningstækjum og keirðu á staði þar
sem von var á fólki. Ferðadiskótekin eöa „Sound
Systems" eins og þeir sjálfir nefndu firirbærið, varð
fljótlega vinsæl skemmtun í fátækrahverfunum. í
Bandaríkjunum gekk R&B ifir eins og hver önnur
tískubilgja, en sama var ekki upþ á teningnum á
Jamaica, þar hélt hún vinsældum sínum og heima-
menn þróuðu hana áfram. í firstu var um nokkuð
nákvæma eftirlíkingu á R&B aö ræöa, en fljótlega
tók tónlistin níja stefnu og blandaðist hefðinni
heimafirir. Útkoman var nefnd SKA.
SKA
Einkenni SKA var sterkur taktur, kraftur og til-
finning. Einhverjir lesendur muna ef til vill eftir lag-
inu ,,My Boy Lollipoþ" meö söngkonunni Millie.
Þaö lag er einmitt dæmigert fyrir þessa tónlistar-
stefnu. Lagið varö vinsælt um allan heim og vakti
áhuga fjármagnseigenda. Hér var eitthvað nítt á
ferðinni. I kjölfarið filgdu nokkur lög sem einnig
náðu vinsældum á alþjóöamarkaði. Nöfnum eins
og Jimmy Cliff, Maytals og Wailers skaut upp á
erlendum vinsældalistum.
Rock St.eady
Tónlistin þróaðist ört. Hún var snar þáttur í dag-
legu lífi lágstéttanna og hafði þaö mótandi áhrif á
2
SVART Á HVlTU