Svart á hvítu - 01.01.1979, Síða 20
Gallerí Suðurgata 7 og tónlistarfélag MH bauð
hingað í nóvembermánuði s. I. kvennahljómsveit-
inni The Feminist Improvising Group. Hljómleik-
arnir voru vel sóttir og áheyrendur virtust kunna vel
að meta þessa nýjung í þreytulegu tónlistarlífi höf-
uðborgarinnar.
Tónlistin einkennist af tilraunum og tónleikarnir
voru uppfullir af óvæntum uppákomum. Það á ekki
bara við um nýstárlega notkun hljóðfæranna held-
ur líka þá umgerð, sem óundirbúin leikræn tjáning
var um tónlistina, og sambandið við áheyrendur,
sem varbeinna og óþvingaðra en gengurog gerist.
Húmorinn var allsráðandi. Þær virðast berjast
markvisst gegn hvers kyns dulmögnun tónlistar-
innar og listamannshlutverksins. ,, Við reynum að
koma tilraunum okkar á framfæri án þess að losna
úr tengslum við áheyrendur“, sagði Sally Potter í
viðtali við Jafnréttissíðu Þjóðviljans. ,,Okkur langar
ekkert til að lenda í einhverri einangraðri ,,avant
garde“ aðstöðu, en við viljum heldur ekki snúa
bakinu við þeim framförum sem verða á tónlistar-
sviðinu. “ Og þeim tókst ágætlega að hrífa áheyr-
endur inn í tónlistina, sem gerir raunar talsverðar
kröfur til hlustandans.
Allir eru meðlimirnir yfirlýstir feministar og
hljómsveitin stofnuð til að sporna við karlveldinu í
tónlistarheiminum og skapa hljóðfæraleikurunum
aukinn starfsvettvang. Þvíverður hver að svara fyrir
sig hvort feminísk lífsviðhorf þeirra hafa einhver
bein áhrif á tónlistarsköpunina og hvort tónlist
þeirra sé frábrugðin annarri spunatónlist í grund-
vallaratriðum. Sjálfar eru þær ekki á einu máli um
þetta atriði. Hins vegar hefur notkun þeirra á leik-
rænni tjáningu og töluðu máli oft pólitískt inntak.
Þær eru þó að því leyti ólíkar flestum flytjendum
baráttutónlistar að framsæknin birtist ekki bara í
textum heldur líka í sjálfu tónlistarforminu. Sú af-
staða til tónlistar sem kemur fram í flutningi þeirra,
m. a. hvernig þær vinna með hefðbundnar tónlist-
arstíltegundir, má skoðast sem háð á hefðbundna
vestræna tónlist, sem er reyndar tónlist karlveldis-
ins.
F.I.G. hefur nú nýlega gefið út kassettu með
uþþtökum frá Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og
Reykjavík og hljómplata mun vera á leiðinni, þar
sem líka verða verk af tónleikunum hér. Þær hafa
ferðast víða um Evrópu undanfarna mánuði og
hyggja á Ameríkuför. Þær halda þá ef til vill hljóm-
leika hérá vesturleið. Hér fylgja nokkrar Ijósmyndir
af hljómleikunum.
Á.Ó., K.ÓI.