Svart á hvítu - 01.01.1979, Blaðsíða 27
Hann hugsaði um lífið. í rauninni fékkstu aldrei það
sem þú vildir. Alveg sama hversu mikió þú reyndir
gerðirðu alltaf mistök sem þú gast ekki losað þig úr.
Þú sást aldrei himininn eða hafið vegna þess að þú
varst ífangelsi, sem reyndar enginn kallaði fangelsi
og þó þú gerðir það skildu þau ekki um hvaó þú
varst að tala, eða þóttust ekki skiija þaö. Það lagð-
ist á hann drungi. Hann lá hreyfingarlaus án þess
að hugsa eða vorkenna sjálfum sér og öðrum.
En þegar hann fór loksins niður, hlakkandi yfir
því að Rósa hafði leyft honum að vera svona lengi
frá, án þess að nöldra, var fólk í sjoppunni og hann
heyrði skrækina í Rósu. Meðan hann var að troðast
áfram í gegnum þvöguna sá hann sér til skelfingar
að Rósa hafði gripið stelpuna glóðvolga, með
súkkulaðið, og hristi hana svo harkalega að höfuð
krakkans dinglaði einsog blaóra á priki. Með for-
mælingar á vörum þreif hann í Rósu og reif hana frá
stelpunni, sem var skelfingin uppmáluð.
„Hver djöfullinn gengur á,“ hrópaði hann til
Rósu, „ætlarðu að drepa hana?“
,,Hún er þjófur,“ æpti Rósa.
„Haltu þér saman.“
Hann sló hana til aö binda endi á öskur hennar
en höggið var þyngra en hann hafði ætlað sér.
Rósa datt afturábak meó andköfum. Hún rak ekki
uþp bofs en horfði ringluð á fólkið í kringum sig,
reyndi að brosa og allir viðstaddir sáu blóðflekki á
tönnunum.
„Faröu heirn," sagði Tommi við stelpuna, en í
sömu svipan varð ys og þys við dyrnar og mamma
hennar kom inn í sjoppuna.
„Hvað skeði?" spurói hún.
„Hún stal sælgætinu mínu," æpti Rósa.
„Ég leyfði henni að taka það," sagði Tommi.
Rósa góndi á hann einsog hún hefði verið slegin
aftur en síðan komu grátviþrur um munninn og hún
fór aó kjökra.
„Þú áttir að fá annað stykkið mamma," sagði
stelpan.
Mamma hennar sló hana harkalega í andlitið.
„Þú litla þjófstík, nú verða sko hendurnar á þér
brenndar."
Hún hremmdi stelpuna sneri uppá handlegg
hennar og dró hana á eftir sér. Eins og í afkáraleg-
um dansi hrasaði stelpan og þeyttist áfram en við
dyrnar tókst henni að snúa fölu andlitinu við og
reka framan í hann rauða tunguna.
Eftirtaldir aðilar styrktu útgáfu tímaritsins:
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar,
Austurstræti 18. Símar: 1880 og 13135
Nesco hf.
Laugavegi 10. Símar: 27788 og 27742
Mál og menning,
Laugavegi 18. Símar: 24240 og 24241
Safiwinnubankinn
SVART Á HVÍTU
25