Svart á hvítu - 01.01.1979, Qupperneq 50
Áhorfendapróf
Áhrif kvikmyndar á áhorfend-
ur koma fyrst fram þegar hún
hefur verið fullunnin. Þótt kvik-
myndin sé fullunnin og tilbúin til
sýninga, má gera vissar breyt-
ingar eftir viðbrögðum áhorf-
enda. Eins og áður segir prófa
framleiðendur oft smekk áhorf-
enda áður en endanleg gerð
myndarinnar er sett á markað.
Sé myndin byggð á leikriti, sem
sýnt hefur verið er að vissu marki
hægt að draga ályktun af við-
brögóum leikhúsgesta. Tii þess
aö prófa áhrifin af sprelli sínu og
uppátækjum fóru Marxbræöur í
sýningarferð áður en framleiðsla
einnar myndar þeirra hófst.
Þessi mynd ,,A Day at the
Races" reyndist vera sú mynda
þeirra sem mestar vinsældir
hefur hlotið. Þekktasta aðferðin
og sú sem jafnframt er mest
notuð er áhorfendapróf. Það er
kvikmyndasýning sem fer fram
áður en að kvikmynd hefur verið
auglýst. Er þetta gert til þess að
prófa viðþrögð áhorfenda sem
ekki hafa orðið fyrir áhrifum af
blöðum og auglýsingum. Mynd-
inni er síðan breytt eftir viö-
brögðum áhorfenda ef þörf þyk-
ir. Einnig hafa framleiðendur
farið út í það að gera athugun á
skoðunum fólks áður en fram-
leiðsla hefst. Þetta á aöallega viö
um hlutverk leikara og sýningar-
form, allt til þess að tryggja sem
mesta velgengni.
Fylgivörur
kvikmynda
Kvikmyndaiðnaðurinn hefur
yfir geysimiklu áróðurstæki að
ráöa. Hann aðlagar þarfir áhorf-
enda að framleiðslunni um leió
og hann kemur í veg fyrir að þær
breytist. Kvikmyndaauglýsingar
fjölga neytendum og auka
neyslu hvers neytenda. Óbeint
orkar kvikmyndaiðnaðurinn sem
áróður fyrir öðrum iönaöar-
greinum. Kvikmynd getur t. d.
leitt af sér tískustrauma, aukiö
upplag bókar sem hún kann að
byggja á og stuðlað að sölu tón-
listar sem hún notar. Þessar
fylgivörur eru í raun tekjuaukn-
Pottþéttir brandarar: Marx bræður í „A Day at the Races".
ing því þær auka eftirspurn eftir
kvikmyndinni sem um er að
ræða og á kvikmyndum yfirhöf-
uð. Til dæmis þegar kvikmynd
Walt Disneys ,,Mjallhvít“ sló í
gegn voru veitt 147 leyfi frá
framleiðslufyrirtækinu til þess
að framleiða 2183 ólíkar vöru-
tegundir, allar gerðar eftir per-
sónum úr myndinni. Salan á
þessum vörum lét ekki á sér
standa. Mjallhvítarglös seldust í
16.5 milljónum eintaka, 2 mill-
jónir af brúðum og 4 milljónir af
dvergasápum. Kvikmyndin
Mjallhvít mun á þennan hátt hafa
aflað amerískum leikfangaiðn-
aði rúmar tvær milljónir dala. Á
meðan kvikmyndin var sýnd
seldust sögurnar um Mjallhvít í
meira en 20 milljónum eintaka.
Einnig má nefna að bók Emilie
Bronté, Wuthering Heights seld-
ist í fleiri eintökum eftir kvik-
myndatökuna en í þau 92 ár sem
þá voru liðin frá frumútgáfu.
Allt skal selja í réttri röð;
ræmur selja varninginn:
Filmur selja bækur, blöð,
blöðin selja leiktöngin.
(Úr Disneyrímum
eftir Þórarin Eldjárn).
48
SVART A HVlTU