Svart á hvítu - 01.01.1979, Page 59

Svart á hvítu - 01.01.1979, Page 59
mikið lá á og hve prentunaraðstæð- ur voru fátæklegar urðu menn að reiöa sig aö miklu leyti á handavinnu en auðvitað bar fjölföldunartækni þótt óbrotin væri mestan árangur. Það voru prentuð ríkislög og her- skipanir sem litu út einsog mynda- blöð." (El Lissitsky Erinnerungen Briefe Schriften. Dresden 1967, s. 359.) Á öðrum áratugnum var rúss- neska kvikmyndin komin langt fram úr ríkjandi framleiðsluöflum: Kino- glas Pudovskis og Kino Pravda Dziga Vertovs voru ekkert í stíl við ,,í vikulokin" né neina fréttayfirlits- þætti, heldur var þetta pólitískt sjónvarpsefni á hvíta tjaldinu. Lestr- arkennsluherferðin á Kúbu rauf formgerðarmúra bókmiðilsins. I kín- versku menningarbyltingunni gegndu veggspjöld hlutverki raf- magnsfjölmiðla a. m. k. í stærstu borgunum. Andspyrna tékknesku þjóöarinnar gegn innrás Sovét- manna varð til þess að almenningur varð virkur í framleiðslu sem fór langt út fyrir ramma hefðbundinna opinberra fjölmiðla. Slíkar aðstæður heyra til undantekninga og eru út- ópískar að svo miklu leyti sem þeim tekst ekki að breyta framleiðsluhátt- unum varanlega, sem auðvitað er forsenda þess að sigur vinnist. Slík- ar aðstæður sýna einnig betur en nokkuð annaö hversu gífurleg póli- tísk og menningarleg orka býr í mýldum fjöldanum og með hve miklu ímyndunarafli hann nýtir sér möguleika nýrra fjölmiðla á lausn- arstundum. 15. Marxísk vinstrihreyfing verð- ur bæði í daglegri baráttu og fræði- legri umræðu að taka mið af þróuð- ustu framleiðsluöflum þjóðfélags- ins. Hún verður að nýta skipulega alla frelsandi þætti þessara afla. Það er ekki akademísk krafa, það er pólitísk nauðsyn. Marxistar hafa ekki, að undanteknum Walter Benjamin og í fótspor hans Brecht, áttað sig á vitundariðnaðinum; þeir hafa gert sér grein fyrir kapítalísk-- borgaralegum bakgrunni hans án þess að uppgötva sósíalíska mögu- leika hans. Georg Lukacs er einn helsti fulltrúi þessarar fræðilegu sem og praktísku stöðnunar. Verk Horkheimers og Adorno eru heldur ekki laus viö eftirsjá eftir gamaldags borgaralegum fjölmiðlum. Hér verður ekki rætt um hug- myndir þeirra Horkheimers og Adorno um menningariðnaðinn. I ritgerð eftir Lukacs sem ber heitiö Alte Kuitur und neue Kultur kemur afstaða marxista á millistríðsárun- um skýrt í Ijós (í Kommunismus. Zeitschrift der kommunistischen Internationale fur die Lánder Sudosteuropas. 1. árg. (1920). bls. 1538—49). „Allt það sem menning- in færir fram", getur samkvæmt Lukacsi ,,því aðeins haft raunveru- legt menningargildi, að það hafi gildi í sjálfu sér. . . þegar tilurð sér- hvers verks er frá sjónarmiði höf- undarins einstakt og endanlegt ferli: ferli sem ákvarðast af mannlegum möguleikum og hæfni höfundar. Dæmigert fyrir slíkt ferli er listaverk- Walter Benjamin. ið. Listaverkið er eingöngu og al- gjörlega afrakstur vinnu lista- mannsins og sérhvert smáatriði í verkinu háð og mótað af séreigin- leikum hans . . . í vélvæddum iðnaði hins vegar hverfur allt samband milli framleiðanda og þess sem framleitt er. . . Manneskjan þjónar vélinni og lagar sig að henni; framleiðslan verður algjörlega óháð mannlegum möguleikum og hæfni." Þessi „menningarfjandsamlegu öfl" valda breytingum á eðli verka; ekki er lengur um „upprunalegan efnivið" að ræöa, ,,gæði“ fara forgörðum og „verkið" verður ekki lengur til „sem tilgangur í sjálfu sér“. „Menningar- verðmæti" mynda ekki lengur „líf- ræna, harmóníska, gleðiríka heild"; menningu kapítalismans hlaut að skorta „hið náttúrulega og einfalda samræmi og fegurö eldri menning- ar: menningu í orðsins fyllstu og bókstaflegustu merkingu“. Sem betur fer þarf siíkt ástand ekki að vara eilíflega. „Menning öreiga- samfélagsins" — sem ekki er hægt að lýsa nánar „því ekki er hægt að skilgreina hana vísindalega enn sem komið er“ — mun bjarga okkur út úr þessari lágkúru. Lukacs spyr sjálfan sig spurningarinnar: „hvaða menningarverðmæti eru það sem innan þessara takmarka er hægt að fá lánuð úr gamla þjóðskipulaginu og þróa áfram í hinu nýja". Svar: ekki ómanneskjulegar vélar heldur „hugmyndina um manneskjuna sem tilgang í sjálfu sér, grundvallar- hugmynd nýrrar menningar", sök- um þess að hún er „arfurinn frá klassískum ídealisma 19. aldar". Einmitt það já. „Hér skrefa fram í öllu sínu holduga veldi þær hug- myndir broddborgara um listina, að hún eigi alls enga samleið með neins konar tækninýjungum og sjái ögrun og dauða í tilkomu nýrrar tækni" (Walter Benjamin: Kleine Gesichte der Photographie í Das Kunstwerk im Zeitalter seiner tech- nischen Reproduzierbarkeit, Frank- furt 1963, bls. 69). Þessi tregafulla eftirsjá eftir landslagi liðinnar aldar, þessar úreltu fyrirmyndir, eru for- boði sósíal-realismans. Sósíal-real- ismans sem með köldu blóði hefur galvaníserað og jarðað einmitt þau „menningarverðmæti" sem Lukacs vildi vernda. Jafnframt fór sovéska menningarbyltingin í hundana, því miður, þótt fagurfræðingurinn Lukacs hafi varla metið möguleika hennar meiri en I. V. Stalin. Gloppóttur skilningur marxista á fjölmiðlum og vafasöm notkun þeirra á þeim leiddi af sér eins kon- ar tómarúm sem í vestrænum iðn- aðarlöndum hefur verið fyllt með alls kyns ómarxískum kenningum og starfsemi. Allt frá Cabaret Vol- taire til Andy Warhol’s Factory, frá grínleikurum þöglu myndanna til Bítlanna, frá fyrstu myndasögu- teiknurunum til svokallaöra under- ground-managers hafa möguleikar fjölmiðlanna verið þróaðir fram- SVART A HVÍTU 57

x

Svart á hvítu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.