Birtingur - 01.12.1957, Blaðsíða 14
Ég ætla að segja ykkur frá heirasókn til franska málarans Auguste
Herbin. Heimilisfangið fékk ég hjá Denise René: 17 bis rue Falguiere.
Ég kannaðist við götuna, vissi að þar lágu listamannahverfi, en það rann
ekki upp fyrir mér fyrr en ég var kominn að húsinu nr. 17 b, að ég hafði
reyndar gengið fram hjá því um fjölda ára. Sízt hefði mig grunað, að
Herbin ætti þar heima, því þessi eldgamli hjallur líktist meira gripahúsi
en híbýlum manna: öskuhaugamatur af lakara tagi. Ég leita dyrabjöllu,
nafnspjalds, en finn hvorugt, stjaka þvi við hurðinni, og hún lætur undan
með ámátlegu marri eins og á dramatískum augnablikum í mergjuðum
kvikmyndum. Ég kem inn í langan dimman og sóðalegan gang, grilli í
skímunni í miða með nafninu Herbin og ör sem bendir inn í biksvart
ginnungagap. Ég geng varlega innar eftir ganginum, þangað til ég sé
móta fyrir þvergöngum: önnur hurð, annar miði: Herbin — önnur ör:
10
Birtingur