Birtingur - 01.12.1957, Page 20
honum að mestu til að geta betur kannað möguleika formsins. Ég lagði
og legg enn, segir hann, höfuðáherzlu á litinn. Liturinn er mér allt: hann
er aðal málaralistarinnar. Þess vegna varð ég smám saman viðskila við
kúbistana, kannaði nýjar leiðir, losaði mig kringum 1919 algjörlega við
þekktar fyrirmyndir og gerði nokkurskonar geómetrískar skreytimyndir.
En ég var ekki ánægður, fannst ég hafa þörf fyrir fyrirmyndir og málaði
þannig um nokkurt árabil, en frá því 1926 hef ég málað algjörlega óhlut-
lregt.
Hann leggur áherzlu á að leit hans hafi verið algjörlega sjálfstæð,
hann hafi ekki haft hugmynd um tilraun þeirra Kandinskys og Mondri-
14
Birtingur