Birtingur - 01.12.1967, Blaðsíða 16

Birtingur - 01.12.1967, Blaðsíða 16
jafn hættulegir þjóðfélaginu, því að þeir geti ekki samlagazt því. Luchino Visconti kemst einnig að sömu niðurstöðu í sinni frábæru kvikmynd, Rocco og bræður hans. En Nazarin og Viridiana eru í rauninni sama manneskjan. Viridiana fjallar um unga konu í klausturskóla, sem ætlar sér að verða nunna. Hún heimsækir frænda sinn á óðali hans; hann blandar henni svefnlyf í því skyni að njóta hennar, en gugnar og hengir sig síð- an í sippubandi. Launsonur hans, Jorge, og Viridiana erfa eignirnar og ætlar hún að verja sínum hluta af óðalinu í góðgerðastarfsemi. Hún safnar að sér betlurum og öðrum laus- ingjalýð. En meðan þau Viridiana og Jorge, ásamt vinnukonunni, eru að heiman, ráðast flækingarnir til inngöngu í óðalið og brjóta þar allt og bramla. I einhverju fífldjarfasta atriði, sem sézt hefur á kvikmyndatjaldi, klæð ist einn betlarinn í gervi Péturs postula undir hljómfalli Messiasar eftir Hándel, og umrenn- ingarnir stilla sér upp einsog Jesús og postul- arnir í hinni heilögu kveldmáltíð meðan létf úðardrós læzt ljósmynda söfnuðinn með því að lyfta pilsum. Þegar Viridiana kemur heim, ætlar einn betlaranna að nauðga henni, en henni er naumlega bjargað. Viridiana gefst upp; góðlyndi hennar hefur verið til einskis. Bunuel er heiðingi og deilir því ekki á guð, heldur á kaþólska trúarsiði, falskan mann- kærleika og alls konar kreddur. Myndin er einnig bitur ádeila á þjóðfélagsástand Spán- arveldis og það furðulegasta við þessa mynd er, að hún skuli einmitt vera gerð á Spáni. En sú er ástæðan, að Franco einræðisherra bauð þeim listamönnum heim, er flúið höfðu land. Bunuel þáði boðið með því skilyrði, að hann fengi að gera hvaða mynd sem væri. Hann blekkti yfirvöldin með sakleysislegu handriti, en þegar mönnum var farið að lengja eftir myndinni, kvaðst hann ætla að senda hana til Frakklands til að fullgera hana. Þannig bjarg- aðist kvikmyndin frá eilífri glötun, og hlaut hún síðan æðstu verðlaun á kvikmyndahátíð- inni í Cannes 1961, en það var í fyrsta skipti, sem Spánverjum var sýndur slíkur heiður. Að vísu féll sá heiður ekki í góðan jarðveg hjá ríkisstjórninni einsog vænta mátti, og ríkir nú lögboðin þögn um þessa kvikmynd á Spáni. Bunuel hverfur aftur til Mexíkó og gerir Engil dauðans (E1 Angel Exterminador), sem er jafnvel ennþá raunsærri og miskunnar- lausari en öll hans fyrri verk. Bunuel skyggn- ist djúpt inní mannssálina; hann sýnir okkur úrkynjun mannsins x dag, formfast siðferði hans og andlegt getuleysi. Maðurinn dregur sig í skel sinnar eigin vitundar, afneitar öllum úrlausnarefnum og felur sig í heimi blekk- ingar og afturhaldsemi. Bunuel hlífir engum og hverjum skyldi ekki svíða sárt undan þeirri 14 BIRTINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.