Birtingur - 01.12.1967, Qupperneq 28
ATLI HEIMIR SVEINSSON: LISTAMANNALÍF
I>afi er eklci auSvelt fyrir tónskáld a$ Iýsa viS-
horfum sínurn til Iistarinnar í orðum. Mál
þess er hljóðið, og verkin mynd þess af list-
inni. Orðið getur aldrei komið í staðinn fyrir
hljóðið, hljóðið aldrei í stað litsins og línunn-
ar. Til eru þau svið mannlegs anda, sem orðið
eitt getur tjáð, og önnur, sem aðeins verða
túlkuð með hljóði, enn önnur sem aðeins
litur og lína megna að tjá. Orðið, hljóðið, lit-
urinn og línan eru mismunandi tjáningartæki,
geta stundum komið f stað hvers annars, en
ekki nærri alltaf. Vandamá listamanna í mis-
munandi listgreinum eru lfk að sumu leyti,
en ólík að öðru. Viðhorf listamanns til listar-
innar eru ákaflega persónuleg og mótuð af
starfi hans, því hann hefur við fátt annað að
styðjast. Og það er erfitt að skoða eigin hug,
þekkja sjálfan sig.
Óvissa um markmið og öryggisleysi fylgja
listamanninum alla ævi hans. Pað er enginn,
sem getur sagt honum eða bent honum á,
hvert ber að stefna. Oft veit listamaðurinn
ekki sjálfur hvert hann á að stefna eða hvert
hann stefnir. Það hefur engum tekizt að spá
neinu um framtíð listarinnar, og hún breytist
vanalega þveröfugt við það, sem vísustu menn
halda. En kannski hugsar listamaðurinn ekki
svo mikið um framtíðina, hvað þá heldur for-
tíðina. Bandaríska tónskáldið Varése sagði
þegar hann var spurður um framtíð tónlistar:
„Ég hef engan áhuga á framtíð listarinnar nó
fortíð, því ég er alltaf að fást við nútíðina."
En þegar maður veit ekki hvernig næstu tíu
sekúndur eiga að vera í tónverki og veltir því
fyrir sér klukkutímum saman, þá sækja að
þrálátar spurningar: Hvert ber að stefna? Já
— hvert er markmiðið? Það er ekki unnt að
gera áætlanir um framtíð listarinnar, því
markmiðið er svo óljóst.
Listamaðurinn veit aldrei hvers virði árang-
urinn er af starfi hans, sem oft er þrotlaust og
eflaust satt hjá Þórbergi, að aldrei hafi verið
sett saman svo léleg bók á íslandi, að það hafi
ekki kostað meira andlegt erfiði en að stjórna
togaraútgerð í heilt ár, að mig minnir.
Þó eitthvert verk slái í gegn, njóti vinsælda
og aðdáunar, þá þarf slíkt ekki að vera neinn
mælikvarði á listrænt gildi þess, og er það oft
ekki. Kannski er tíminn einn óskeikull list-
dómari (vonandi þó?), en hann kveður fyrst
upp dóm sinn, þegar höfundur verksins er
allur. Ýmsir listamenn, sem ég þekki, óska
þess af öllu hjarta, að verk þeirra lifi lengur
en þeir, en mér finnst þetta hroki, dramb, yf-
irlæti.
Ég get varla hugsað mér annað en að þau verk,
sem ég hef gert, hverfi um leið og ég af þessu
tilveruplani, því þau eru svo samtengd mér
og mínu lífi, svo mikill hluti af sjálfum mér.
Þau eru kannski heldur ekki svo merkileg,
26
BIRTINGUR