Húsfreyjan - 01.12.1954, Blaðsíða 5
Lára Sigurbjörnsdóttir:
UM BARNAHEIMILI
Eins og kunnugt mun vera, ryður sú
skoðun sér æ meira rúm, að hin svoköll-
uðu systkinaheimili séu i alla staði væn-
legri til uppeldis barna, en skipan sú sem
algengust er á þeim málum.
Á systkinaheimilunum dvelja börnin
allt frá unga aldri, jafnvel frá vöggu og
til 16 ára aldurs. Kappkostað er að haga
öllu sem líkast venjulegu heimili. Æski-
legast er að hjón standi fyrir slíku heim-
ili, en oft vill stranda á því, að engin fáist
hjónin til að taka slíkt að sér. Ekki má
þó láta það aftra svo nauðsynlegu mál-
efni.
óþarfi virðist vera að minna á, að oft
hafa ekkjur orðið að ala upp stóran barna-
hóp og, þrátt fyrir lítil efni, skilað því
starfi með ágætum.
Fyrirkomulag það, er nú ríkir í málum
þessum er, að viss aldursflokkur barna
er hafður saman á heimili t. d. frá því
á fyrsta ári og til tveggja ára. Síðan eru
börnin flutt á annað heimili til skóla-
skyldualdurs og þá á næsta heimili.
Á systkinaheimilimum eru börnin á
rnismunandi aldri og bæði drengir og telp-
ur. Eldri börnin gæta yngri bamanna,
taka þátt í heimilisstörfunum, hvert eftir
sinni getu og síðast en ekki sízt, þau þurfa
ekki að yfirgefa fóstru sína, sem þau
hafa tekið ástfóstri við, fyrr en þau eru
orðin sjálfbjarga eða 16 ára gömul.
Fóstrurnar munu hafa svipaða sögu að
segja> því að lítil börn vinna hug hvers
þess, er annast þau.
1 sumar gafst mér tækifæri til að sjá
slík heimili, en annað þeirra var eingöngu
fyrir telpur frá 2—15 ára.
Þetta heimili er að Jægerspris á Sjá-
landi. Jægerspis-höll og jarðeignir þær,
sem henni fylgja, var eign greifafrú Dan-
ner, eiginkonu Friðriks VII Danakonungs.
Greifafrúin gaf þessa eign sína til rekst-
urs barnaheimilis árið 1874. Sjálf var
hún alin upp í mestu fátækt, móðir henn-
ar var þvottakona, svo að greifafrúin vissi
af eigin raun, hvað var að vera hálf heim-
ilislaus.
Við Jægerspris-höll eru 9 heimili flest
með 15 telpum á heimili, og er hvert heim-
ili algerlega sjálfstætt. Tvö af þessum níu
heimilum eru fyrir miður gefnar telpur
og þar eru 8 í heimili. Einnig er þar vöggu-
stofa.
Helzt eiga telpurnar ekki að vera komn-
ar á skólaskyldualdur, en 2ja ára mega
þær yngstu vera svo að þær komist á
heimilin, og dvelja þar til 16 ára aldurs.
Þær ganga auðvitað í skóla með öðr-
um börnum. Telpurnar fá tækifæri til að
læra það, sem þær eru hneigðar fyrir, en
allar læra þær heimilisstörf. Flestar þeirra
eru ráðnar til heimilisstarfa, víðs vegar
um landið frá 16 ára til 18 ára eða í tvö
ár. Þann tíma hefur stofnunin eftirlit með
þeim.
Undantekningarlítið halda allar telp-
urnar slikri tryggð við fóstrur sínar, sem
um góða móður væri að ræða. Þó dvelja
þarna alltaf nokkrar telpur, sem eiga móð-
ur á lífi, er heimsækir þær, en hefur ekki
tök á að mynda barni sínu heimili.
HÚSFREYJAN 5