Húsfreyjan - 01.12.1954, Blaðsíða 9

Húsfreyjan - 01.12.1954, Blaðsíða 9
r verið þriðjungur af kaupi kennarans miðað við kr. 500,00 vikukaup sem hámark, þ. e. að aldrei hefur verið greitt af hærra kaupi en þessu, enda þótt kaupið kunni að hafa verið hærra. Það venjulega hefur þá verið,að greidd- ar hafa verið kr. 166,66 á viku miðað við 36 stunda kennslu, en sums staðar hafa laun kennarans verið lægri en kr. 500,00 á viku og þá hefur styrkurinn orðið lægri sem því svarar. Sú breyt- ing var gerð með hinni nýju reglugerð, að ætíð væri miðað við sömu hlutfalls- tölu, þannig, að þau félög, sem ráða kennara fyrir lægra kaup en það sem miðað er við, fá ekki fyrir það lægri styrk en hin, sem hafa kaupdýrari kennara. Á síðastliðnu ári var ákveðið að styrkja garðyrkjunámskeið með þessum sömu skliyrðum. Matreiðslunámskeiðin eru hins veg- ar styrkt með helmipgi 'af kaupi kenn- arans miðað við kr. 690,00 kaup á viku, þ. e. með kr. 345,00. Eins og fyrr er sagt, þá er kaupið miðað við það, að kennt sé 36 stundir á viku og auk þess allt að tveggja stunda undirbúningsvinna á dag. Víða, einkum í kaupstöðum, er vinnutíminn ekki svo langur, því að þar eru kvöld- námskeið algengust, en þá er líka styrk- upphæðin ákveðin eftir því. Þar sem t. d. kennt er aðeins 18 stundir á viku, þarf tvær vikur til þess að ná 36 stund- um og þá er aðeins greitt af 500 kr. kaupi fyrir tvær vikur. Það var ákveðið að greiða ekki styrk út á námskeið með færri nemendum en 8, nema í mjög strjálbýlum héruð- um. Þar mega nemendur fara niður í 6. 1 umræðunum um þetta mál kom ýmislegt fram um tilgang saumanám- skeiðanna, sem eru fyrst og fremst kennsla, en svo mjög öðrum þræði mikil hjálp fyrir heimilin. Einnig var rætt um hinar mismunandi aðstæður og erfiðleika húsmæðranna á því að stunda námskeiðin reglulega, svo og þau vandkvæði, sem eru á því að halda regluleg námskeið, þar sem langt er á milli bæja. Hér er ekki rúm til þess að rekja frekar það sem gerðist á formanna- fundinum, en það er von allra þeirra, sem vinna að málefnum kvenna, að þessir fundir, þar sem eiga sæti for- menn sambandanna alls staðar að af landinu, megi verða til þess að efla kvenfélögin og styrkja þau til áfram- haldandi góðra og þjóðnýtra starfa. hOsfreyjan 9

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.