Húsfreyjan - 01.12.1954, Side 19
Draumterta.
og smyrja síðan mótin mjög vel og renna þau
innan með brauðmylsnu og baka svo marengið
sér og leggja það á botnana, þegar kakan er
borin fram.
Annarri kökunni er hvolft á tertufat, þannig
að marengið snúi niður. Aprikósumaukinu smurt
á kökuna og dálitlum þeyttum rjóma þar ofan
á. Hin kakan lögð ofan á og þeyttum rjóma
sprautað upp með hliðum kökunnar.
Ath.: Kakan verður ágæt, þó að venjulegur
tertubotn sé hafður undir og aðeins marengs-
bótn ofan á.
SANDKAKA
125 g. smjörlíki 80 g. hveiti
125 g. sykur % tsk. lyftiduft
100 g. kartöflumjöl 2 egg
Hrærið smjörlíkið ljóst og létt með sykrin-
um og síðan eggjarauðunum saman við; einni
í éinu. Blandið svo hveitinu, kartöflumjölinu og
lýftiduftinu saman við og loks eggjahvítunum
stlfþéyttum. Setjið deigið í smurt mót og bakið
við hægan hita % klst.
125 g. smjörlíki 1 tsk. kardemo
125 g. sykur 4 — lyftiduft
3 egg 500 g. hveiti
100 g. rúsínur Ví 1. mjólk
50 g. súkkat '
Hrærið smjörlíkið með sykrinum og eggin
þar út í, allt í senn. Sáldið saman hveiti, lyfti-
duft og kardemommur og hrærið því saman við
deigið ásamt mjólkinni, rúsínunum og súkkat-
inu. Setjið í jólakökumót og bakið kökuna ljós-
brúna við meðalhita 2—3 stundarfjórðunga.
KLEINUR
500 g. hveiti
2% dl. mjólk
40 g. smjörlíki
165 g. sykur
3 tsk. lyftiduft
1 — hjartarsalt
1 — kardemommur
2 egg
Sáldið saman hveiti, sykur, lyftiduft, hjartar-
salt og kardemommur. Bræðið smjörlikið. Vætið
í með eggjunum, smjörlíkinu og mjólkinni.
Steikið kleinurnar í tólg eða plöntufeiti.
HÚSFREYJAN 19