Húsfreyjan - 01.12.1954, Blaðsíða 28

Húsfreyjan - 01.12.1954, Blaðsíða 28
,,Já, það skulum við gera, Dísa mín“, segir mamma, ,,og svo búum við kannske líka til sitthvað fleira“. . . . Og hérna sjáið þið hvað mamma, Bjössi og Dísa búa til fyrir jólin. Stundum sezt pabbi hjá þeim og tekur þátt í gamninu, og jafnvel litli bróðir fær að vera með, þótt ekki séu Bjössi og Disa alltaf hrifin af ,,hjálp“ hans. Jólakörfur, rétthyrndar og hjartlaga. Þessar körfur er auðvelt að búa til úr þykkum pappír eftir teikningunni (mynd 1). Er hœfilegt, að hver reitur sé 4 cm. á veg Sé mislitur pappír ekki fyrir hendi, má lita hann fyrst, eða þá skreyta körfurnar með ýmsu móti eftirá, t. d. með því að lita á þær smámyndir eða líma á þær jólalímmiða. Fléttuð hjörtu eru búin til úr mislitum pappír, helzt gljápappír. Þarf að viðhafa nákvæmni, þeg- ar verið er að teikna þau, og verður að nota til þess reglustiku með centimetrakvarða. Stærð hjartnanna getur hver ráðið sjálfur. Sumum þykir lítil hjörtu, 4—5 cm á breidd, fallegust, en aðrir vilja heldur hafa þau nokkuð stærri, 7—8 cm. f hvert hjarta þarf tvö pappírsblöð, sitt með hvorum lit, og eiga þau að vera þrisvar sinnum lengri en þau eru breið. Eigi t. d. hjartað að vera 8 cm á breidd, verður pappírinn að vera 24 cm að lengd. Pappírsræmurnar eru brotnar saman um miðjuna (liturinn látinn snúa inn), síðan strikuð á þær nokkur strik (sjá t. d. mynd 2, lOb—lOe) frá brotinu, 8 cm löng og 2 mm betur, og klippt eftir þeim. Fer munstr- ið á hjartanu eftir því, hvernig strikin skipta fletinum. Þegar búið er að sníða báðar ræmurnar (þær verða að vera nákvæmlega eins), er þeim snúið við, þannig að liturinn snýr út, og síðan er farið að flétta, eins og mynd 2, lOg sýnir. Að lokum eru klipptir bogar á hjartað að ofan og límt ó það hald að innanverðu. Jólaengill. Mynd 3 sýnir fallegan lítinn jóla- engil, sem bæði má nota sem borðskraut og 28 HÚSFREVJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.