Húsfreyjan - 01.12.1954, Page 29

Húsfreyjan - 01.12.1954, Page 29
09 Mynd 4. einnig til að hengja á jólatréð. Hann er búinn til úr stinnum pappír eða þunnum pappa, helzt mislitum. Bezt er að taka sniðið (mynd 4) upp á gagnsæjan pappír og teikna það síðan yfir á þykka pappírinn með því að nota litbréf (kalki- pappir). Sé notað hvítt bréf, er engillinn litaður, t. d. með vatnslitum, áður en hann er settur saman. Beygið kjólinn og festið honum að aftan með tvöföldum bréfklemmum gegnum raufirnar A og B. Vængirnir eru festir á með sömu klemmu og fer í gegnum A. Handleggjunum er stungið í gegn um rifurnar á kjólnum, þeir beygðir lítið eitt fram á við og hendurnar límdar á. Höfuðið er búið til úr hvítri léreftspjötlu. Er látin í hana hæfilega stór bómullarhnoðri og bundið fyrir að neðan, eins og myndin sýnir. Augu, nef og munnur eru teiknuð á með vatnslitum og höfuðið saumað við búkinn með fáeinum sporum. Að síðustu er geislabaugurinn látinn á. Borð- og veggskraut. Gaman er að hafa jóla- skreytingar víðar en á jólatrénu og matborð- inu. Með litlum tilkostnaði er hægt að búa til ýmiskonar smekklegt skraut, er nota má í dag- stofu, forstofu og barnaherbergi. Mynd 5 sýnir tvenns konar skraut af þessu tagi. Annars vegar er borðskraut, sem auðvelt er að búa til með því að stinga kertum ásamt grenigreinum, smá- hríslum, lyngi, könglum eða öðru þvilíku í leir- hnoð, sem látið hefur verið á hæfilega stórt, grunnt ílát, t. d. pappadisk. Hins vegar er ein- föld veggmynd, sem búin er til á þann hátt, að einstakir hlutar hennar eru klipptir út úr mis- litum pappír og límdir á t. d. gylltan pappír. Ætti ekki að vera mjög erfitt að stæla mynd HtJSFREYJAN 29

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.