Húsfreyjan - 01.10.1969, Side 22
Marcngsfjall.
4 dl þeyttur rjómi 12 marengskökur
1 tsk. sykur Vínber
50 g möndlur Dökkt súkkulaði
Bezt er að baka marengskökurnar
sjálfur, notið uppskriftina á undan án
mandla. Sprautið deiginu í toppa á plöt-
una, ef vill má láta 1 tsk. af kakaó í
helming þess. Stífþeytið rjómann með
sykrinum og raðið síðan kökunum í topp
á fat, setjið rjóma á milli laga, sundur-
skorin vínber og flagaðar möndlur. —
Skreytið fjallið með vínberjum, möndl-
um og gróft rifnu súkkulaði.
Krcinrönd nirö ciilainauki.
4 eggjarauður
2 eggjahvítur
75 g sykur
8 blöð matarlím
1 tsk. rifinn
sítrónubörkur
2% dl rjómi
10 litlar makkarónur
Matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn.
Eggjarauðurnar hrærðar með sykri,
rifna sítrónuberkinum blandað saman
við. Matarlímið undið upp úr vatninu og
brætt, kælt með 1 msk. og vatni, síðan
hrært saman við eggjarauðurnar.
Eggjahvíturnar stífþeyttar, einnig
rjóminn og blandað varlega saman við,
að lokum er muldum makkarónunum
hrært í kremið. Hellt í smurt hringmót.
Geymt á köldum stað, þar til kremið er
hlaupið.
Hvolft með gætni á fat. Eplamauk
sett í miðjuna. Rífið 3—4 epli á fínu
rif járni. Suðunni hleypt upp á eplunum,
sykrað eftir smekk. Gott er að blanda
dálitlu af söxuðum möndlum í maukið.
Súrinjólkiirliúölngur.
4 dl súrmjólk eða áfir % tsk. vanilludropar
75 g sykur 50 g möndlur
6 blöð matarlím 1 dl rjómi
Súrmjólk og sykur hrært vel, möndl-
unum, flysjuðum og smátt söxuðum,
blandað saman við. Matarlímið lagt í
bleyti í kalt vatn, undið upp úr vatninu
og brætt, kælt með dálitlu vatni, áður
en því er hrært saman við. Þeyttum
rjómanum hrært saman við, þegar súr-
18
mjólkin er byrjuð að þykkna. Hellt í
skál, skreytt með rjóma og rifnu súkku-
laði.
Tívolitcrta.
200 g hveiti
150 g smjörlíki
1 eggjarauða
2 msk. rjóma
4 msk. sykur
Innan í:
2 eggjarauður
4 msk. sykur
5 bl. matarlím
50 g flysjaðar,
saxaðar möndlur
2% dl þeyttur rjómi
2 þeyttar eggjahvítur
Skreyting:
Rautt hlaup eða
hlaup úr
1 dl af Cherry Herring
og
2 bl. af matarlími,
sem leyst er upp í
3 msk. af sjóðandi
vatni
2 dl þeyttur rjómi
Græn skrautber
Smjörlíkið mulið í hveitið, deigið
hnoðað saman með eggjarauðu, rjóma
og sykri. Tertumót þakið að innan með
deiginu, búinn til kantur úr deigafgöng-
unum og deigið pikkað. Skelin bökuð
tæpar 30 mínútur við 200°C.
Eggjarauður og sykur þeytt létt og
ljóst. Matarlímið lagt í bleyti og brætt
í 2 msk. af vatni, hrært saman við egg-
in. Síðan er möndlunum, rjómanum og
eggjahvítunum blandað í. Búðingnum
hellt í kalda skelina.
Áður er tertan er borin fram, er hlaup-
ið skorið í rsémur og lagt í mynstur
ofan á búðinginn, auk þess er hann
skreyttur með þeyttum rjóma og berj-
um. Borið fram vel kælt.
HÚSFREYJAN