Húsfreyjan - 01.10.1969, Síða 25
jjólcicjjajir íian cla jóÍL inu
!
Hvað á ég eiginlega að gefa fólkinu
í jólagjöf? Margir munu spyrja sjálfan
sig þessarar spurningar, t. d. ungu stúlk-
urnar, sem Iitla vinnu hafa haft í sum-
ar, og búnar eru að eyða miklu af sum-
arkaupinu sínu, kannski í skólaföt eða
bækur — eða annað.
Við vitum það með sjálfum okkur að
sú gjöf, sem gleður mest, er ekki alltaf
sú stærsta eða dýrasta, heldur sú sem
gefandinn hefur gert að einhverju eða
öllu leyti sjálfur og gefur því af glöðum
og heilum huga.
Margt er hægt að útbúa úr ódýrum
hráefnum, og stundum er hægt að kom-
ast af með afganga, sem til eru heima og
að litlu gagni mundu annars verða.
Hér koma nokkrar tillögur, sem gætu
ef til vill orðið einhverjum að liði, enda
þótt skammt sé til jóla.
Það er þá fyrst hann pabbi, hann
keypti sér glóðarpott (útigrill) til að
hafa með í útileguna í sumar, en hann
hafði enga svuntu og sletti sig auðvitað
allan út við matseldina. Gróft léreft
(pokaléreft) eða strigi er bezt í ,,grill-
svuntu". Hann kærir sig víst ekkert um
vasa eða skraut, svo að við höfum svunt-
una með bandi um hálsinn og svo
bundna aftur fyrir bak. Ekki sakar að
láta fylgja með pottalappa eða kannski
einn grillhanzka. Þá þarf að fóðra hann
með þykki efni eða tvöföldu pokalérefti.
Ágætt er að sauma hann saman að utan,
leggja skáband yfir og stinga svo í vél.
Pabbi gæti líka fengið stóran og góðan
poka undir öll verkfærin, sem nauðsyn-
FRAMHALD ó bls. 24.
HÚSFREYJAN
21