Húsfreyjan - 01.10.1969, Síða 28
leg eru í hverjum bíl. Við getum saum-
að stafina hans pabba og bílnúmerið á
pokann, svo að hann týnist nú síður, og
kannski þarf hann þá ekki að leita að
einu skrúfjárni um allt, undir sætum
og aftur í skotti, það verður auðvitað
allt í röð og reglu í pokanum!
■ ‘téfá WÍSÍé/Á
Vv
#1. wMm
iW',*Æ
n Af, --------
. Ci,* ' , ':í:;
iv i-w » .
Mamma er alltaf að týna nálunum
sínum, og allir eru hræddir við að
stinga sig á þeim. Þetta stafar sjálf-
sagt af því, að hún á ekki nógu stóran
og fallegan nálapúða. Við sníðum tvær
kringlur, 12 sm í þvermál, og svo eina
lengju, 4x38 sm, allt með 1 sm saum-
fari. 1 aðra kringluna saumum við eitt-
hvert lítið munstur, t. d. sól með lykkju-
spori í ýmsum gulum og rauðum litum.
Svo fyllum við púðann með bómull eða
svamptætlum. Svo væri líka tilvalið að
gefa henni reglulega notadrjúga hrein-
gerninga-svuntu, hún er hvort sem er
sífellt að taka til og gera hreint, og þá
þarf hún auðvitað að hlaupa margar
ferðir fram og aftur um húsið, af því
að hún hefur gleymt einu hér og öðru
þar. Nú getur hún haft allt sem þarf
til hreingerninganna í svuntuvösunum.
Við setjum vasa, mismunandi að stærð
og lögun, hér og þar um alla svuntuna,
sumir mættu vera úr plastefni eða fóðr-
aðir með plasti fyrir raka klúta eða
bursta og fægiefni, og þægilegast er að
brydda þá með skábandi, áður en þeir
eru stungnir fastir.
Ef við viljum ráðast 1 meiri háttar
hlut handa mömmu, væri gaman að fá
sér strigaefni og prenta svo með taulit
fallegt munstur á tehettu og bakkabönd
í stíl við hana eða dúk á eldhúsborðið
eða hettu yfir hrærivélina eftir vild.
Þá er dálítill vandi að gleðja ömmu
og afa, þótt þau geri ekki stórar kröfur
til neins. Kannski vantar þau einmitt
bókarmerki og gleraugnahús. Hvort
tveggja má búa til úr smáleðurbút eða
sauma út í hörefni, en svo þarf að fóðra
þetta og sauma saman. 1 hannyrðaverzl-
unum fást ofin efni, sérstaklega ætluð
í bakkabönd, þau má gjarna nota í bók-
armerki og kögra þá endana, eða í gler-
augnahús og sauma þau þá saman í
1 yfp,„ J./1. W>''v;/?'*V-''--*-'1--*'’.