Íslenzk tunga - 01.01.1960, Qupperneq 136
Ritfregnir
Bertil Malmberg. Nya vagar inom sprákforskningen; en oriente-
ring i modern lingvistik. Scandinavian University Books. Svenska
bokförlaget/Norstedts. Stockholm 1959. x+255 bls.
Almenn málvísindi eru nú ofarlega á baugi og margt og mikið um þau ritað.
I síðasta hefti þessa tímarits var t. d. rætt um þrjár nýjar bækur um þessi
efni (bls. 143—150), sem eru þó fyrst og fremst ætlaðar sem kennslubækur. En
auk þeirra, sem þar voru nefndar, mætti minna á Modern Linguistics (London
1957) og Language in the Modern World (Ilarmondsworth 1960), báðar eftir
Simeon Potter, og Sprálcet; inledning till det vetenslcapliga sprakstudiet eftir
Björn Collinder (Stockholm 1959), allt góðra gjalda verðar bækur, ætlaðar
almenningi, en óvefengjanlega á miklu lægra stigi en bók sú, er hér verður gerð
að umtalsefni.
Bertil Malmberg, höfundur bókarinnar, er prófessor í hljóðfræði við háskól-
ann í Lundi, einhver fremsti hljóðfræðingur Svía, víðkunnur fyrir rit og rit-
gerðir um sérgrein sína. En þessi er fyrst bóka hans um almenn málvísindi, þótt
áður hafi hann birt ritgerðir, er svipuð efni varða.
I stuttum inngangi gerir prófessor Malmberg grein fyrir verkefni því, sem
hann hefir hugsað sér að taka til meðferðar í bókinni, en það er yfirlit uni
helztu stefnur innan málvísindanna á síðari tímum. Með málvísindum er þá átt
við það, sem á sænsku kallast lingvistik. Orðið sprákvetenskap notar hann sem
sameiginlegt heiti á filologi (textafræði) og lingvistik. Samkvæmt skilgreiningu
höfundar fellur textafræðin utan við efnissvið bókarinnar, þótt hann viður-
kenni hið nána samband þessara greina.
I fyrsta kafla bókar sinnar fjallar prófessor Malmberg í stuttu, en skýru
máli um þróun sögulegu stefnunnar innan málvísindanna frá því um 1800. Sum-
unt kann ef til vill að þykja fljótt yfir sögu farið, en sú er einmitt ætlun höf-
undar, því að hann segir, að kaflinn eigi aðeins „att tjana som utgSngspunkt
för den följandc framstállningen“. Ilér er þó m. a. að finna stutt yfirlit um
germönsku hljóðfærsluna, Vernerslögmál, flokkttn indógermanskra méla, starf
ungmálfræðinganna (t. d. Brugmanns, Ilermanns Pauls o. fl.), gagnrýni á kenn-
ingar þeirra, „substrat“-kenningarnar, marrismann, sem var undir áhrifum fra
marxismanum og Jósef Stalin gekk af dauðum, o. m. fl. Mikill kostur er það,