Vera - 01.10.1982, Blaðsíða 3

Vera - 01.10.1982, Blaðsíða 3
Kœra Vera. Konur! Komið til starfa Þó Kvennaframboðiö liafi nú fengið tvær konur kjörnar í borgarstjprn og hafi komiö konum inn í fjöldann allan af nefndum og ráðum á vegum borgarinnar, þá hrekkur það skammt ef ekki fylgir öflugt starf í kjölfarið. Viö viljum gjarnan rcyna að sctja fyrir þann leka með því að hafa starf- andi bakhópa sem móta stefnuna í einstökum málaflokkum í'rá degi til dags. Pessir hópar eru nú þrír. 1) Félagsmálahópur sem hittist á þriðjudögum kl. 2030 á Hótel Vík. Pcssi hópur er stefnumótandi fyrir starf Kvennaframboösins í félagsmálaráöi, heilbrigðisráði, æskulýösráði, stjórn Verkamannabústaöa o.fl. Hópurinn getur jafnframt tekið upp öll þau verkefni scm snerta þessa málaflokka og hann hcfur áhuga á að vinna að. 2) Umhverfismálahópurscm hittist á þriðjudögum kl. 2100 á Hótel Vík. Undir þcnnan hóp falla skipulagsncfnd, um- hverfismálaráð, bygginganefnd, stjórn S.V.R. og urn- ferðanefnd. Allt sem snertir mannlegt umhverfi er innan áhugasviðs þessa hóps svo komið endilcga meö tillögur. 3) Menningar- og frœdsluhópur. í hópnum sitja fulltrúar Kvennaframboösins i sljórn Kjarvalsstaða og Borgar- bókasafnsins og þessi hópur mun að öllum líkindum bcita sér fyrir ýmiss konar fræöslu á veguni Kvennaframboös- ins. Fundartími hópsins er enn óákveðinn en upplýsingar um hann er væntanlega hægt að fá á skrifstofu Kvenna- framboðsins. 4) Borgarmálarád Kvennaframboðsins hittist síöasta þriöjudag í hverjum mánuði kl. 203Oá Hótel Vík. í ráöinu eiga sæti allir fulltrúar og varafulltrúar Kvennaframboðs- ins í ráöum og nefndum borgarinnar en þaö er að sjálf- sögöu opiö öllum þeim sem áhuga hafa á borgarmálum og fylgja Kvennaframboöi að rnálum. Þau mál scm ekki eiga sér bakhóp koma til kasta borgarmálaráðsins og ráðiö tckur afstööu til hinna stærri mála sem varða stefnuna í borgarstjórn. Eins og þið sjáið er í nógu aö snúast svo komiö endilega til starfa. Ef þið viljið fá nánari upplýsingar um starf hópanna þá getiö þið t.d. haft samband viö Sólrúnu (stmi 18926) eða Guöný Gerði (12932, vs. 84412) í umhverfismálahóp, C3uð- rúnu (83737) cða Ástu (12427) í félagsmálahóp, Kristínu (10242) eöa Sigríöi Dúnu (16397) í mcnningar- og fræðslu- hóp. Nú svo getiö þið líka snúið ykkur til skrifstofu Kvenna- framboðsins milli 15 og 18 alla virka daga, sírninn er 21500. Ég ætla að byrja á því að óska þér til hamingju með útkomu þína. Ég vona að þú eigir eftir að verða framsækið og gott blað. Ástæöa þess aö ég skrifa til þín er kvik- mynd Hrafns Gunnlaugssonar, Okkar á milli í hita og þunga dags- ins. Sú mynd sem þar er dregin upp at’ konum er vægast sagt hörmuleg. Svo ég byrji nú á lýsingunni, þá voru konurnar í myndinni ekki að gera neitt annaö en að þjóna karl- mönnum, annað hvort sem hús- in í hans augum gömul, Ijót og leið- inleg kerling (eins og konur verða með aldrinum). Eiginkonan var auðsjáanlega undir stjórn Benja- míns, enda sagöi hann henni aö þegja og fara að sofa þegar honum sýndist svo — og hún hlýddi. Benjamín átti son sem þau hjónin voru ákaflega stolt af, enda var hann á pottþéttri framabraut. Hann var aö fara utan í verkfræði- nám, eins og faðirinn haföi gert forðum. Sonurinn átti kærustu. Kynferðislegur fasismi — svona okkar á milli sagt mæöur eða kynverur (ekki hvoru- tveggja því slíkt fer aldrei saman í svona myndum). Karlmennirnir voru hins vegar á framabraut, sem mennta- eða hljómlistarmenn og hugsuðu um kvenlíkama í frístund- utn. Aöal söguhetjan var Benjamín, karl unt fimmtugt, verkfræöingur og forstjóri. Hann átti konu á svip- uöum aldri sem var húsmóðir. Benjamín var auðvitað búinn að fá hundleið á henni og farinn að þrá að yngja upp hjá sér, enda hún orð- Hún var ekki að gera neitt annað en að vera kærasta. Benjamín átti dóttur. Hvaö gerði hún? Jú, hún sýndi sig nakta í einhvers konar leikhúsi, frammi fyrir hálf slefandi karlmönnum. Pað var hennar hlut- verk. Starfsbróðir og vinur Benja- míns (sá er lést) átti líka dóttur. Ekki haföi hún annað hlutverk í myndinni en að vera annars vegar ímynduð ástmær Benjamíns og hins vegar fyrir jafnaldra hennar (stráka) til að káfast utan í. Þessar stúlkur voru auðvitað vel vaxnar, myndarlegar og með sítt hár (eitt af því sem nauðsynlegt er hjá konum til að geta verið kyntákn). Sá karl- maður sem kom mikið við sögu auk Benjamíns var verkfræðinemi og söngvari í hljómsveit. Drauma- dís Benjamíns var einnig fyrir hann til að kyssa og káfa á. Benjamín var orðinn svo þurfandi fyrir ungar, fallegar, síðhærðar konur að þegar hann lá með eiginkonu sinni, ímyndaði hann sér að hann væri tneð dóttur vinar síns, eða bara eig- in dóttur. Gefið var í skyn að ekkja vinar Benjamíns hefði kynnst öðr- um karlmanni, útlendingi. Dökkur svipur kom á Benjamín er hann uppgötvaði það og maður fékk þá hugmynd að konan væri algjör „drós", ekki síst þar sem þetta var útlendingur. Það hefur löngum svert konur að vera kenndar við

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.