Vera - 01.10.1982, Blaðsíða 25

Vera - 01.10.1982, Blaðsíða 25
T»L 6ERANPA KONUR OG TÓNLISTARIÐNAÐURINN Agot V. Óskarsdóttir uni" án efa sá þáttur sem hefur orðið sköpunargáfu og hugmynda- flugi konunnar og þörf hennar til að tjá sig nicstur fjötur um fót. Glimmerkjólar og „girlie groups“ Þegar litið er á þróun og uppgang dægurtónlistarinnar á sjötta ára- tugnum og í byrjun þess sjöunda er sýnt að ekki var um róttæka breyt- ingu á stöðu kvenna í tónlist að ræða. Reyndar voru konur byrjaðar að koma fram sem dægurtónlistar- konur en næstum eingöngu í hlut- verki söngkvenna. Það sem ein- kennir þátttöku kvenna í dægurtón- listarlífinu á þessu tímabili eru hinar svokölluð „girlie-groups" eða kvennasönghópar á borð við The Andrews Sisters, Beverly Sisters, The Marvelettes, The Supremes og The Pointers Sisters. Þessir söng- hópar, sent flestir voru skipaöir þremur konum, náöu feikna vin- sældum. Imynd þessara hópa var meira eða minna sköpuð af fram- leiðendum þeirra og var byggð á hefðbundinni kvenímynd, sem kom fram jafnt í tónlistinni og sviðsfram- komu, og það var ekki síst hið síðar- nefnda sem ýtti undir vinsældir hópanna. Þessi ímynd var byggö á ópersónulegri sviðsframkomu sem hafði mjög kynferðislegt yfirbragð. Stúlkurnar komu fram í þröng- um aðskornum glimmerkjólum, hreyfðu sig á lostafullan en þaul- skipulagöan hátt, í takt við sönginn, allar eins, svo það var eins og allar þrjár rynnu saman í eina eggjandi heild. Tónlistin einkenndist af stíf- um útsetningum, sem byggðust á hinum þríraddaða söng, og hún var oftast samin af karlmönnum eins og textarnir. Textarnir fjölluðu oftast um óuppfylltar þrár, söknuðinn eft- ir elskhuganum, um að geta ekki lifað án mannsins, sem sagt hug- myndir karlmanna um langanir og þrár konu. Þrátt fyrir að þessi tegund kvennasönghópa sé að mestu horf- in af sjónarsviðinu er þessi kynferð- islega ímynd ekki dauð. Hún kom aftur fram á áttunda áratugnum í tónlistarformi sem ekki síður var algerlega skapaö af framleiðend- um, með gróðasjónarmið í huga, nefnilega í diskótónlistinni. Diskó- tónlistarframleiðslan var afsprengi ákveðinnar þróunar í hljómplötu- iðnaðinum og tónlistin, sem var undir miklum áhrifum frá soul-tón- listinni, var orðin að vélrænu tækni- flippi, búnu til í takttölvum og öðr- urn hljóðmaskínum. „Það var eins og kvenlegunt eig- inleikum væri pumpað inn í fram- leiðslutækin í diskótónlistinni sem hverri annarri tæknibrellu. Þar sem kvenröddinni er gefinn mismun- andi hljóðblær eftir því sem við á hverju sinni, rennur hún gjörsam- lega saman viö aðra tilbúna og vél- ræna þætti í tónlistinni. Stunurnar og hvísliö fléttast samari við vélræna hrynjandi á misfellulausum hljóð- vegg. Stunur Donnu Sumrner í lag- inu „Lovc to Love You Baby" líkja eftir fullnægingu í dulmögnuðum samförum tækninnar." (K. Benson, bls. 2.) Neysluhyggja og tœkjadýrkun A sjöunda áratugnum hófst nýtt tímabil í sögu dægurtónlistarinnar og varsú þróun nátengd hinum víð- tæku æskuuppreisnum á þeim árum gegn ýmsum þáttum kapítalísks þjóðskipulags. Þessar uppreisnir áttu sér stað í þjóðfélagi sem ein- kenndist af auknum hagvexti sem leiddi til aukinnar neyslu og vcl- megunar. Þessar kringumstæður settu svip á uppreisn æskunnar: „Róttækni hennar var róttæk neysiuhyggja, sem beindist gegn hvers konar valdhöfum í þjóðfélag- inu (foreldrar, lögreglan, stjórn- málamenn), sem stóðu í vegi fyrir því að hún fengi stundað annars konar neyslu (popphátíðir, föt, fíkniefni, kynlíf)." (D. Laing, bls. 128.) En mikilvægur þáttur þessara uppreisna fólst í nýjum menningar- straumum, ekki síst í rokk-tónlist- inni. Með gífurlegum vinsældum rokk-tónlistarinnar skapaðist nýr tónlistarmarkaður og fjöldinn allur af nýjum tónlistarmönnnm kom fram á sjónarsviðið. Þetta voru sem sagt aö miklum meirihluta karl- menn og ekki breyttist hefðbundið viðhorf til kvenna í þessari rokk- sprengju svo heitið gæti. Mikið af þessari rokktónlist snerist um kyn- lífið og birtist þar oft á tíðum of- beldishneigð sem lýsti megnri kven- fyrirlitningu. Hún fjallaði um kynlíf út frá sjónarhorni karlmannsins, konan var þar ekki annað en það sem girnd karlmannsins og kynlífs- langanir beindust að. Að öðru leyti takmarkaðist hlutur kvenna í rokk- sprengjunni, eins og áður, við þol- andahlutverkið, sem kaupendur og neytendur hljómplatna og rokktón- leika. En þrátt fyrir allt komu þó fram tónlistarkonur í þessari nýju tónlist- arbylgju (að vísu ennþá mest söng- konur) sem lögðu sitt af mörkum til breytinga á hefðbundnu kven- ímyndinni bæði í sviðsframkomu og með því að semja sjálfar bæði tónlist og texta (t.d. Janis Joplin, Grace Slick, Nico o.fl.). Þróun rokktónlistarinnar á átt- unda áratugnum markaðist mjög af því hversu háð hún varð hljóm- plötuiðnaðinum og þar nteð stóru plötuútgáfufyrirtækjunum. í sam- ræmi við hina geysilegu tækniþróun í upptökustúdíóunum var lögð æ meiri áhersla á tæknilega fullkomn- un og srnám saman varð forsendan fyrir „góðri tónlist" betri og dýrari tæki. „Farið var að líta á notkun þessarar tækni sem forsendu fyrir góðri og vandaðri tónlist á hljórn- plötum. Erfitt er að fá aögang að

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.